Fréttablaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 21.05.2007, Blaðsíða 37
O D D I H Ö N N U N P 07 .0 4. 21 6 Bókarkápan 2006 Taktu þátt í netkosningu á www.oddi.is/prentun Auk netkosningar er valin besta bókarkápan að mati Félags starfsfólks bókaverslana, bestu þrjár bókarkápurnar að mati dómnefndar ásamt sérstakri viðurkenningu fyrir athyglisverða bókargerð. Verðlaunin verða afhent að Kjarvalsstöðum 23. maí nk. Höfðabakka 3-7 110 Reykjavík Sími 515 5000 www.oddi.is Bruce Willis fetar í fótspor fyrr- verandi eiginkonu sinnar, Demi Moore, og yngir aldeilis upp. Eins og flestir vita giftist Demi unglambinu Ashton Kutcher fyrir um tveimur árum síðan, en hann er heilum fimmtán árum yngri en leikkonan. Willis, sem er 52 ára gamall, er hins vegar í sambandi við Playboy-fyrirsætuna Tamöru Witmer, sem er 23 ára gömul. Á milli skötuhjúanna eru því ein tuttugu og níu ár. Witmer, sem er einungis fimm árum eldri en elsta dóttir Will- is og Moore, Rumer, segir aldurs- muninn ekki vera vandamál. „Þótt hann sé sköllóttur plagar það mig ekkert. Hann er virkilega flottur,“ sagði hún í viðtali við blaðið Steppin´ Out. Willis herm- ir eftir Demi Bítillinn Sir Paul McCartney og eiginkona hans, Heather Mills, hafa gert með sér friðarsam- komulag. Hér eftir verður gengið frá skilnaði þeirra í rólegheitum, enda telja þau að lætin í kringum skilnaðinn séu farin að hafa áhrif á þriggja ára dóttur þeirra, Bea. Paul og Heather hittust á sátta- fundi á föstudag á veitingastað í London. Þar ræddu þau saman í rólegheitum í tíu mínútur á meðan dóttir þeirra lék sér. Þetta þykir til marks um gjörbreytt andrúmsloft þeirra á milli því hingað til hafa barnfóstrur séð um að afhenda öðru hvoru foreldrinu Bea eftir að hún hefur dvalist hjá hinu. Samkomulag þeirra Pauls og Heather felur í sér að Paul heitir því að lögfræðingar hans muni innan árs ganga frá skilnaðarsátt- mála sem Heather sættir sig við. Þá hefur verið ákveðið að þau muni saman fagna 65 ára afmæli Pauls með Bea. Á móti heitir Heath- er því að hætta við þau áform að flytjast til Bandaríkjanna. Fjár- hagsvandræðum Heather er með þessum sáttmála lokið í bili því Paul greiðir henni umsvifalaust eina milljón punda, um 125 millj- ónir króna. „Þetta eru miklir erfiðleikar en mér líður sífellt betur. Það segja mér allir að líta á það jákvæða sem kom út úr þessu hjónabandi og það er Bea. Það gefur mér mikið,“ segir Paul McCartney. Paul og Heather semja frið Tvíburasysturnar Mary-Kate og Ashley Olsen munu væntanlega feta í fótspor þokkadísanna Ursulu Andress, Jane Seymour og Halle Berry og taka að sér hlutverk í næstu Bond-mynd, sem hefur vinnutitilinn Bond 22. Samningur systranna mun þó fela í sér að þær þurfi ekki að leika í kynlífssenum. Talið er að Olsen-systur muni fara með hlutverk njósnara sem að- stoða 007. Aðrir sem orðaðir hafa verið við næstu Bond-mynd eru Goran Visnjic og hin ástralska Abbie Cornish. Judi Dench verð- ur á sínum stað sem M og Daniel Craig leikur Bond að nýju. Orðaðar við Bond-hlutverk Britney Spears þakkar aðdá- endum sínum fyrir allan þeirra stuðning á þeim erfiðu tímum sem hún hefur gengið í gegn- um að undanförnu í ávarpi sem birtist á opinberri heimasíðu söngkonunnar. Á heima- síðunni birtist mynd af Britney fáklæddri, þar sem hún hylur brjóst sín með krosslögð- um höndunum auk þess sem hún ber ljósa hárkollu. „Ég nýt þeirr- ar blessunar að þið hugsið til mín og þykir vænt um mig. Ég mun halda áfram að lifa í því ljósi sem fylgir ykkur að- dáendum á þessum erfiðu tímum,“ segir Britney meðal annars í ávarpinu, en sem kunnugt er fór söng- konan afar illa út úr skilnaði sínum við Kevin Feder- line fyrr í vetur og er hún til- tölulega nýkomin úr áfengis- meðferð. Léttklædd Britney þakkar aðdáendum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.