Fréttablaðið - 08.06.2007, Síða 42
8. JÚNÍ 2007 FÖSTUDAGUR4 fréttablaðið menntavegurinn
Jóhann Arnarsson, Svava Ýr Baldvinsdóttir, Jörundur Áki Sveinsson, Bjarni Gaukur Þórmundsson og Torfi Magnússon eru öll
kennarar á afreksíþróttaáfanga Fjölbrautaskólans í Breiðholti.
Frá haustönn 2007 verður
boðið upp á skipulagt nám
fyrir afreksfólk framtíðarinnar
í handknattleik, knattspyrnu
og körfuknattleik við Fjöl-
brautaskólann í Breiðholti.
Þetta mun vera kjörið tæki-
færi fyrir afreksíþróttafólk til
að tengja saman nám og íþróttir
en nemendur á brautinni munu
fá þrjár æfingar á viku á skóla-
tíma undir stjórn góðra þjálf-
ara. Eingöngu verður um ein-
staklingsþjálfun að ræða, en
nemendurnir munu æfa áfram og
keppa með sínum íþróttafélögum
og æfingarnar koma í stað allrar
verklegrar kennslu í íþróttum í
skólanum.
Afreksíþróttanemendur geta
stundað nám á öllum braut-
um skólans en meðal annars eru
gerðar þær kröfur að þeir fái
meðmæli frá sínu íþróttafélagi
þar sem staðfest er að um efni
í afreksfólk sé að ræða. Skóla-
sókn þarf að vera 95%, nemendur
mega hvorki nota áfengi, tóbak né
önnur vímuefni og verða að ljúka
um 13-15 einingum á önn.
Sérstakt leyfi verður veitt
fyrir keppnisferðum og reikn-
ast þær sem almenn skóla-
sókn. Nemendur brautarinnar fá
sérstakan umsjónarkennara sem
fylgist með framvindu náms og
aðstoðar þar sem við á.
Bjarni Gaukur Þórmunds-
son, íþróttakennari og upplýs-
ingafulltrúi við Fjölbrautaskól-
ann í Breiðholti, fagnar tilkomu
brautarinnar enda segir hann
lengi hafa verið vöntun á slíkum
valkosti fyrir fólk sem er duglegt
að stunda sína íþrótt. „Þau geta
stundað nám á öllum brautum
skólans en æft með sínu félagi á
kvöldin. Þrisvar í viku gefst svo
tími til æfinga á skólatíma undir
stjórn þjálfara, en það leiðir til
þess að með tímanum verður við-
komandi betri og betri í sinni
íþrótt.“
Um samning varðandi strangt
bindindi á öll vímuefni segir
Bjarni Gaukur: „Við erum ekki
að leita að þeim sem eru efnileg
núna en eru svo að dútla í þessu
og skemmta sér um helgar. Við
erum bara að leita að þeim sem
vilja verða afreksfólk í framtíð-
inni.“ mhg@frettabladid.is
AFREKSFÓLK
á sérstakri braut í FB