Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 1
Laugardagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í júlí 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
34%
B
la
ð
ið
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
37%
71%
30
Í NÝJU LAUGARDALS-
HÖLLINNI UM HELGINA
Opið í dag Laugardag
Smiðjuvegi 76
200 Kópavogur
Baldursnes 6
603 Akureyri www.tengi.is
Laugardaga
10.00-15.00
NÝR BÆKLINGUR FYLGIR
MEÐ BLAÐINU Í DAGVet
rar
sól
Stefnt er að því að gera tilraun með
að skattyfirvöld telji fram fyrir ákveðna
einstaklinga strax árið 2009. Mögulegt er að
skattgreiðendur þurfi að samþykkja framtalið,
en einnig er mögulegt að aðhafist þeir ekki
teljist þeir hafa samþykkt framtalið óséð.
Eftir er að útfæra þessar hugmyndir nánar
segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri.
Hann hyggst skera upp herör gegn því að ein-
staklingar skili ekki inn framtali. Á síðasta ári
skiluðu 14.500 einstaklingar ekki skattframtali,
sem var nokkur aukning frá ári á undan.
„Það getur ekki gengið út frá sjónarmiði
skattframkvæmdarinnar að það séu tæplega
fimmtán þúsund manns sem ekki skila skatt-
framtali,“ segir Skúli.
Starfshópur Ríkisskattstjóra og skattstjóra
hefur undanfarið fjallað um málið, og verða
tillögur hópsins til úrbóta kynntar stjórnvöldum
í október. Skúli vill ekki upplýsa um tillögurnar,
en boðar róttækar breytingar á því hvernig tekið
er á málum einstaklinga og fyrirtækja sem ekki
skila framtalsgögnum, nái þær fram að ganga.
Skúli segir hluta þeirra sem ekki skili framtali
erlenda starfsmenn sem farnir séu af landi
brott þegar komi að því að telja fram. Eðlilegt
væri að leggja á þann hóp eftir hendinni, áður
en fólkið fer úr landi. Aðrir sem ekki skili verði
hugsanlega aðvaraðir áður en gripið verði til
þess að áætla á þá opinber gjöld.
Framtíðarlausnin sé þó að losa sem flesta
undan framtalsskyldu með því að skattyfirvöld
geri framtöl fyrir einstaklinga. „Við treystum
okkur ekki til að gera þetta fyrir alla, heldur
einungis þá sem uppfylla ákveðin skilyrði,“
segir Skúli.
Eftir einhvern ótilgreindan árafjölda gæti því
einstaklingur sem ekki stendur í atvinnurekstri
og kaupir hvorki né selur eignir sloppið við að
gera framtal, veiti hann skattyfirvöldum heimild
til að fá upplýsingar um stöðu á bankareikning-
um.
Ríkisskattstjóri boðar róttæk-
ar breytingar á skattframtali
Stefnt er að því að sem flestir einstaklingar sleppi við að skila skattframtali og skattyfirvöld telji fram fyrir
þá. Ríkisskattstjóri hyggst skera upp herör gegn því að fólk og fyrirtæki skili ekki skattframtali sínu.
Finnur Ingólfsson, stjórn-
arformaður Icelandair, hefur selt
alla eigin hluti í félaginu og mun í
framhaldinu hætta í stjórn félags-
ins. Karl Wernersson mun taka
kjölfestu í félaginu ásamt Einari
Sveinssyni í gegnum sameiginlegt
félag þeirra Mátt. Karl og Einar
seldu ráðandi hlut í Glitni í vor með
mesta gengishagnaði sem náðst
hefur í innlendum viðskiptum.
Gengishagnaður Finns af sölunni
er um 400 milljónir ef horft er
framhjá fjármagnsliðum. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
var eignarhlutur Finns hátt skuld-
settur og miðað við kauptíma bréf-
anna og erlenda fjármögnun má
gera ráð fyrir hagnaði af fjármögn-
un eignarhlutarins í ljósi styrking-
ar krónunnar frá því að Icelandair
fór á markað. Finnur fer sáttur frá
félaginu. „Ég mun snúa mér að
öðrum verkefnum,“ segir Finnur
en hann fór nýlega fyrir hópi fjár-
festa sem keypti skoðunarfyrir-
tækið Frumherja.
Uppgjör félagsins olli vonbrigð-
um og kom los á kjölfestuna í félag-
inu sem leiddi til sölunnar. -
Finnur floginn úr Icelandair
HÖNNUNRottuveggfóður og breytilegur vasi
GRANDHÓTEL
Kallast á við Eddu Snorra
INNLITErfðagripir og minimalismi
hús&heimiliLAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007
Gjörningaklúbburinn heldur
veglega yfirlitssýningu í
Hafnarhúsinu.
Maður á
fimmtugsaldri hafði í frammi
ósæmilega tilburði þegar hann
reyndi að fróa sér fyrir framan
tvær unglingsstúlkur fyrir utan
verslunarmiðstöðina Fjörð í
miðbæ Hafnarfjarðar í gærkvöld.
Í fyrstu hafði maðurinn reynt
að fá stelpurnar heim með sér,
en þær færðust undan því.
Tvær lögreglukonur sinntu
útkalli vegna þessa. Þegar þær
nálguðust manninn brást hann
hinn versti við og veittist að
þeim. Eftir hörð átök náðist að
koma manninum í handjárn.
Önnur lögreglukonan særðist í
andliti og var flutt á slysadeild
Landspítalans í Fossvogi. Hún er
mjög bólgin eftir árásina en að
sögn varðstjóra var ekki vitað í
gærkvöld hvort hún hefði
brákast eða brotnað í andliti.
Árásarmaðurinn var undir
áhrifum áfengis og hefur komið
við sögu lögreglu áður. Hann
gisti fangageymslur í nótt.
Handtekinn
fyrir að áreita
unglingsstúlkur