Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 6
„Maður er óneitanlega frekar niðurdreginn eftir svona fréttir,“ segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi. Sumar- bústaður Gunnars í Grímsnesi brann til kaldra kola í gær. Ummerki á vettvangi benda til þess að brotist hafi verið inn í bústaðinn. „Þetta er hundleiðinlegt mál. Þetta var griðastaður fjölskyld- unnar. Maður gat farið þarna til að hvíla sig,“ segir Gunnar. Hann segir mikið af persónulegum munum hafa verið geymda í bústaðnum. Tilkynnt var um eldinn á níunda tíman- um í gærmorg- un. Logaði þá glatt og sást reykurinn frá Selfossi. Eld- sprenging varð í bústaðnum þegar reykkafarar Brunavarna Árnessýslu ætluðu að ráðast til inngöngu til að kanna hvort einhver væri inni. „Við héldum fyrst að það væri kannski eitthvað fólk inni,“ segir Kristján Einarsson slökkviliðs- stjóri. „Það var enginn bíll á svæðinu en maður veit aldrei.“ Slökkviliðsmennirnir sluppu heil- ir á húfi úr sprengingunni. Eng- inn hefur verið í bústaðnum með vitneskju Gunnars síðan á sunnu- daginn síðasta. Unnið er að rannsókn á elds- upptökum. Kristján segir að ummerki bendi til þess að brotist hafi verið inn. „Mínir menn sem komu fyrstir á staðinn sáu að það hafði örugglega verið brotist inn í bústaðinn. Það var búið að spenna upp glugga á honum. Okkur datt í hug að þetta gæti hafa verið hústökufólk eða eitt- hvað slíkt. En það er ekkert sem er vitað að svo stöddu.“ Tæp 300 þúsund þorskígildistonn skiptast á milli 767 skipa og báta á nýju fiskveiði- ári sem hefst í dag. Bróðurparturinn, 268 þúsund tonn, kemur í hlut 345 skipa í aflamarkskerfinu en rúmum 33 þúsund tonnum er úthlutað til 422 krókabáta. Aflaheimildir nýja fiskveiðiárs- ins eru tæpum nítján prósentum minni en þess nýliðna. Er þetta mesti samdráttur aflaheimilda á milli ára frá því kvótakerfið var innleitt. Enn eru óveidd um tíu þúsund tonn af þorski frá fiskveiðiárinu sem lauk í gær og rúm fjórtán þús- und tonn af ýsu. Að sama skapi veiddist talsvert meira af löngu, keilu og steinbít en útgefið afla- mark síðasta árs sagði til um. Heimilt er að flytja ónýttar afla- heimildir milli ára. HB Grandi er kvótahæsta útgerð landsins en á eftir koma Samherji og Brim. Skip Brims; Guðmundur í Nesi og Brimnes hafa mestar afla- heimildir skipa í þorskígildis- tonnum talið. Niðurdreginn eftir bruna griðastaðarins Sumarbústaður Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra Kópavogs, brann til kaldra kola í gærmorgun. Ummerki benda til þess að kviknað hafi í af völdum innbrots- þjófa eða hústökufólks. Slökkviliðsmenn sluppu heilir frá öflugri eldsprengingu. Finnst þér lögregluþjónar of lágt launaðir? Finnst þér ríkisstjórnin hafa staðið sig vel á fyrstu hundrað dögunum við völd? „Já, þú mátt alveg kalla það sögulegar sættir. Ég myndi kannski ekki hafa orðið „sögulegt“ um þetta en þetta er merkilegt og vonandi farsælt skref,“ segir Halldór Guðmundsson, væntanlegur stjórnar- formaður Forlagsins, nýrrar bókaútgáfu. Jóhann Páll Valdimarsson bókaútgefandi undirritaði í gær viljayfirlýsingu um nýtt útgáfufyrirtæki með gömlum félögum, þeim Árna Einarssyni og Halldóri Guðmundssyni. Forlagið yrði sameinuð bókaútgáfa Máls og menningar, JPV-útgáfu, Vöku-Helgafells og annarra forlaga, sem áður voru undir Eddu- miðlun, utan Almenna bókafélagsins. Jóhann tengdist Máli og menningu, eftir að hún keypti eldra Forlag hans árið 1990. Jóhann yfirgaf seinna fyrirtækið við litla hrifningu Menningarmanna. Halldór segir að mikið vatn hafi runnið til sjávar síðan og löngu gróið um heilt. Hann hafi til að mynda gefið út tvær bækur hjá JPV í millitíðinni. Mál og menning vinnur nú að því að kaupa bókaút- gáfu Eddu og kæmi Jóhann Páll inn í kaupin til helminga, að því loknu. Undanfarin ár hafa verið erfið í bókaútgáfu, segir í tilkynningu vegna þessa, en með nýju félagi verði stefnt að aukinni hagræðingu og nýtingu bókalagers og réttinda. Halldór óttast ekki að verið sé að endur- taka leikinn frá því þegar Edda var stofnuð með sameiningu Máls og menningar og Vöku- Helgafells, en þeirri tilraun lauk nærri gjaldþroti. „Allir aðilar þessa máls hafa í sögu íslensks bókamarkaðar gert ýmis mistök. En við eigum líka flotta og stolta bókaútgáfu- sögu og við höfum ýmislegt lært.“ Ef af verður, sest Árni Einarsson, núverandi forstjóri Eddu, í stjórn hins nýja félags. Jóhann Páll tekur við stöðu útgefanda og sonur hans, Egill Örn, verður framkvæmdastjóri Forlagsins. Halldór fer með stjórnarformennsku, sem fyrr segir. Sögulegar sættir á íslenskum bókamarkaði
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.