Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 12
Lögregla í Póllandi
handtók á fimmtudag fyrrver-
andi innanríkisráðherra landsins,
sem sakar forsætisráðherrann,
Jaroslaw Kaczynski, um að beita
leyniþjónustunni til að njósna um
stjórnarandstæðinga og blaða-
menn.
Handtaka Janusz Kaczmareks,
sem Kaczynski rak úr embætti
innanríkisráðherra í byrjun
ágúst, kyndir enn frekar undir
nýjasta hneykslinu í pólskum
stjórnmálum, sem snýst um ásak-
anir um misbeitingu valds af
hálfu hins íhaldssama stjórnar-
flokks, Laga- og réttlætisflokks-
ins, í aðdraganda þingkosninga
sem stefnir í að verði haldnar í
haust.
Saksóknaraembættið í Varsjá
staðfesti að Kaczmarek hefði
verið handtekinn, ásamt fyrrver-
andi yfirmanni pólsku lögregl-
unnar, Konrad Kornatowski, og
Jaromil Netzel, yfirmanni trygg-
ingafélagsins PZU, sem er að
meirihluta í ríkiseigu.
Er Kaczynski rak Kaczmarek
gaf hann upp þá ástæðu að hann
lægi undir grun um að hafa lekið
upplýsingum sem spilltu fyrir
spillingarrannsókn. Síðan þá
hefur Kaczmarek sakað Kacz-
ynski og fleiri framámenn í
ríkisstjórninni um að beita leyni-
þjónustunni til að grafa upp eitt-
hvað misjafnt um stjórnarand-
stæðinga og til að njósna um
blaðamenn.
Rekinn ráðherra handtekinn
Dala-Rafn er eina útgerð-
arfélagið sem hefur ákveðið að
höfða mál á hendur olíufélögunum
Olís, Skeljungi og Keri, áður Olíu-
félaginu, vegna samráðs olíufélag-
anna á árunum 1993 til og með
meirihluta árs 2001.
Guðmundur Kristjánsson, for-
stjóri Útgerðarfélagsins Brims,
segir málsókn að hálfu fyrirtækis-
ins hafa verið slegna út af borðinu
að athuguðu máli. „Lögfræðingar
töldu það ekki borga sig fyrir
okkur að fara í mál,“ sagði Guð-
mundur. Friðrik J. Arngrímsson,
framkvæmdastjóri Landssam-
bands útvegsmanna, sagðist ekki
vita til þess að önnur útgerðarfé-
lög en Dala-Rafn ætluðu sér að
fara í mál við olíufélögin, en LÍÚ
aðstoðaði forsvarsmenn Dala-
Rafns við undirbúning málsins.
Samkvæmt málsgögnum sem
Samkeppnisyfirvöld öfluðu við
rannsókn á samráðinu þá höfðu
olíufélögin skýrlega samráð vegna
viðskipta við útgerðarfélög víða
um landið, meðal annars í Vest-
mannaeyjum og á Akureyri.
Í stefnunni í máli Dala-Rafns
gegn olíufélögunum, sem Frétta-
blaðið hefur undir höndum, er
meðal annars vitnað til fundar
forstjóra olíufélaganna, Kristins
Björnssonar, Geirs Magnússonar
og Einars Benediktssonar, sem fór
fram 24. júní 1997. Í svarbréfi til
framkvæmdastjóra markaðssviðs
stórviðskipta segir Kristinn: „Það
kom fram á fundi með [Einari
Benediktssyni forstjóra Olís] og
[Geir Magnússyni forstjóra Olíu-
félagsins] í gær, að þeir væru sem
næst búnir að afleggja að afgreiða
gasolíu til kúnna sem skipagas eða
SD, F-5. Kæmu kúnnar á SD/MD
inn á hafnir, þar sem bara væri
gasaolía þá þýddi ekki um að tala
annað verð en gasolía, eða þá keyrt
væri í þá. Þetta VERÐUM við að
skoða einkum á stærri stöðum, t.d.
Akranesi og víðar. Við erum senni-
lega að toppa hin félögin í eftir-
gjöfum og afsláttum.“
Dala-Rafn, sem hefur höfuð-
stöðvar í Vestamannaeyjum, krefst
8,3 milljóna króna í bætur vegna
samráðsins, ásamt vöxtum og
dráttarvöxtum.
Dala-Rafn fer eitt útgerðarfélaga í mál
Taka átti Kenneth
Foster, sem var ökumaður
flóttabíls í vopnuðu ráni sem
endaði með mannsdrápi, af lífi í
fangelsi í Texas í fyrrinótt, en
Rick Perry, ríkisstjóri Texas,
ákvað á elleftu stundu að
dómnum skyldi breytt í
lífstíðarfangelsi.
Mikil mótmæli höfðu verið
gegn fyrirhugaðri aftöku
Fosters. Larry Cox, talsmaður
Amnesty International, sagði
aftöku manns, sem ekki hleypti
af skoti, vera „hneykslanlega
misbeitingu laganna“
Aftaka Fosters hefði orðið sú
24. í Texas í ár.
Lífi dauða-
dæmds þyrmt
Umsókn Nova um að
reisa fjarskiptamastur við
Háteigsveg 43 hefur verið dregin
til baka. Fjöldi athugasemda
barst skipulags- og byggingar-
sviði vegna umsóknarinnar,
meðal annars vegna hugsanlegra
krabbameinsáhrifa mastursins á
íbúa í kring og skólabörn í
Háteigsskóla.
Liv Bergþórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Nova, segir
umsóknina hafa verið afturkall-
aða meðal annars vegna þessara
athugasemda. „Við ákváðum að
draga umsóknina til baka á
meðan við ræðum við sérfræð-
inga og skoðum hvernig hægt er
að standa betur að málinu.“
Hætt við
Háteigsmastur
Hundurinn Rocky í
Limerick-fangelsinu á Írlandi
finnur svo mikið af fíkniefnum að
fangarnir hafa sigað leigumorð-
ingja á hann. Að
sögn norður-
írska dagblaðs-
ins The Belfast
Telegraph eru
fangarnir
orðnir svo
pirraðir á
velgengni
hundsins að
þeir hafa beðið
kollega sína utan veggja fangels-
isins að drepa hann.
Fangelsið er nánast fíkniefna-
laust þökk sé hundinum, og hefur
heimsóknum fækkað um 30
prósent síðan hann hóf störf.
Ætla að koma
fíkniefnahundi
fyrir kattarnef