Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 44
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
- Húsið er aðeins örfáa kílómetra frá Akureyri
- Kyrrð og ró með frábæru útsýni yfir Akureyri og Eyjafjörð
- Fullbúið hús með þremur herbergjum og svefnlofti,
vönduðum innréttingum og búnaði
- Heitur pottur og hiti í gólfum, stór verönd og grill
- Leigist minnst í tvær nætur í einu
Höfum milligöngu um sjóstangveiði og hestaferðir.
Kjörið fyrir brúðhjón, fjölskyldur, starfsmannafélög eða
aðra sem vilja eiga notalegar stundir í stórkostlegu umhverfi.
Upplýsingar veitir Eva Reykjalín netfang: evareykjalin@simnet.is
eða Elvar í síma 892 9795
VAÐLA VILLAN LÚXUSHÚS Í HEIÐINNI
EKTA GISTING OG SPORT
við Akureyri
1. SEPTEMBER 2007 LAUGARDAGUR
Valgerður Árnadóttir, kölluð Vala,
er deildarstjóri hjá húsbúnaðar-
deild Next í Kringlunni, ljósmynd-
ari og hönnunartæknir svo fátt
eitt sé nefnt. Hún deilir íbúð með
móður sinni í hjarta borgarinnar,
en þar eiga Vala og sjö ára sonur
hennar, Benjamín, sinn helming
meðan móðir hennar býr í hinum
helmingnum.
„Mamma hefur búið hérna í
tæp tíu ár og ég svona annað slag-
ið. Fyrir einu og hálfu ári ætluðum
við að búa hjá henni tímabundið
en öllum líkaði samveran svo vel
að við Benjamín erum enn ekki
farin,“ segir hún og hlær en Vala
átti meðal annars heima í Dan-
mörku í nokkur ár þar sem hún
stundaði nám í hönnunartækni.
„Ég fór í hönnunar- og við-
skiptaskólann Teko Center í
Herning á Jótlandi. Þar sérhæfði
ég mig í námi sem gengur út á
hvernig koma eigi hönnun í fram-
leiðslu. Ég starfaði náið með hönn-
uðum og hafði innkaupastjórn
sem aðalfag, en innkaupastjórn í
þessu fagi gengur út á að komast
að því hvernig best sé að nálgast
efni og finna sérhæfða framleið-
endur,“ segir Vala en undanfarið
hefur hún í frítíma sínum unnið
að slíkri stjórnun fyrir fatamerki
sem bráðlega kemur á markað.
Jafnframt því hefur hún, ásamt
vinkonu sinni Evu Guðbjörnsdótt-
ur, unnið að ljósmyndasýningu
sem nú hangir uppi í Gallerí Gel á
Hverfisgötu.
Spurð að því hvernig hún eign-
ist húsgögn og innanstokksmuni
segist Vala fá þau eftir ýmsum
leiðum.
„Fyrir nokkrum árum var ég
með allt í tekk og fúnkisstíl, en
fékk leið á því þegar ég flutti
heim frá Danmörku og seldi öll
húsgögnin. Núna er ég með svart-
an og hvítan mínimalískan stíl hjá
mér en er samt alltaf að skoða
hönnunarblöð ásamt því að versla
í Next og kíkja í Ikea og Góða
hirðinn, svo stíllinn er í stöðugri
mótun,“ segir þessi fjölhæfa kona
að lokum.
Áhugsamir um ljósmyndasýn-
inguna geta kíkt á www.myspace.
com/evalanches
margret@frettabladid.is
Erfðagripir og mínimalismi
Í miðju póstnúmeri 101 búa mæðgur tvær ásamt hinum sjö ára gamla sverðasafnara Benjamín. Móðirin
hefur dálæti á antik og gömlum munum en dóttirin segist skipta um stíl á nokkurra ára fresti.
Margir nytjahlutir geta breyst í skraut-
muni með tímanum og því um að gera
að fara vel með eigur forfeðranna.
Dúa og Krummi eru óneitanlega krútt-
legir kettir.
Sólin kastar geislum sínum á vesturgluggann. Barbídúkkan situr spök á kistli eftir að hafa tekið þátt í módelstörfum fyrir Völu,
sem er ljósmyndari, hönnunartæknir, deildarstjóri og mamma. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sverðasafn Benjamíns, sonar Völu, hefur
hér fengið góðan samastað og útkoman
hreint augnayndi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fegurri klukku er vart að finna í borg-
inni. Þessi gripur er í eigu móður Völu og
hefur haldist í fjölskyldu þeirra mæðgna
síðustu fimm ættliði.