Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 63
ugir skrifa hins vegar ekki grein í
Morgunblaðið en fjölmargar kveðj-
ur berast hins vegar frá vandalaus-
um á minningarsíðurnar og í mörg-
um kveðjum má greina sterkar
tilfinningar þar sem þeir segjast
ekki geta hætt að gráta. Pétur segir
það vera vel þekkt að það sé auð-
veldara að lifa sig inn í annarra
manna sorg en opna sína eigin og
þeir sem lifi sig inn í þetta að þessu
leyti eigi oft óuppgerðar sorgir. „Í
slíkum tilfellum er yfirleitt um svo-
kallaða tilfærslu að ræða. Það er að
segja, að þegar fólk er að lifa sig
inn í sorg ókunnugra er þar eitt-
hvað sem snertir þá vegna þeirra
eigin reynslu sem þeim finnst erf-
itt að tengjast og þurfa því að tengj-
ast því í gegnum aðra.“
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðing-
ur vill að hluta til skýra það að fólk
lifi sig svo inn í sorgir annarra með
því að Íslendingar séu almennt séð
mjög samúðarfullir. Þjóðin sé til-
finningarík, hafi mikla þörf fyrir
að tjá sig og það hafi margsinnis
sýnt sig að þegar áföll dynji yfir sé
hún ein stór fjölskylda. Blogg um
sorgir, missi og baráttu við sjúk-
dóma sé þó ekki leið sem henti
öllum. „Þeir sem skoða síður þar
sem fólk er til að mynda að berjast
við sjúkdóma reglulega fyllast oft
spennu og eftirvæntingu sem væri
þeir aðilar máls. Því meira sem
þeim er boðið að ganga inn í líf ein-
staklingsins því meira finnst þeim
þeir þekkja eiganda síðunnar og
þegar og ef áfallið kemur, upplifa
þeir sorgina allt að því sem væru
þeir nákomnir ættingjar.“
Kolbrún telur einnig að ástæður
þess að fólk skrifi á opnum heima-
síðum um persónulega sorg vera
þá að samfélagið sé mjög breytt.
„Það sem eitt sinn var „tabú“ að
ræða er nú orðið algengt og opið.
Það sem eitt sinn þótti einkamál
er nú allra og svona mætti lengi
telja. Við höfum að mörgu leyti
misst okkur í að auglýsa innstu
þarfir, hugsanir og hvatir. Til-
finningar eru að manni finnst
jafnvel til sölu eða liggja á lausu
fyrir hvern þann sem vill. Má
slíkt sjá í raunveruleikaþáttum
þar sem fólk elskar, hatar og
syrgir í beinni.“
Að blogga um sorgir og missi
hefur bæði slæmar og góðar hlið-
ar að mati Kolbrúnar. Þarna sé
farvegur fyrir mikið tilfinninga-
flóð og það sé gamalt og gilt með-
ferðarúrræði að skrifa sig frá
vanlíðan og sorg. Á heimasíðunni
safna syrgjendur að sér fólki og
fallegum orðum. Stuðningur alls
þess er eins og einn stór klettur
sem viðkomandi getur hallað sér
upp að. „Svo eru aðrir sem finnst
þeir vera að gengisfella sorg sína
og tilfinningar með því að skrifa
opinberlega um þær. Þeir upplifa
slíka opinberun sem vanvirðu við
ástvini sína þar sem að einungis
sé hægt að deila svo viðkvæmum
hlut með nánustu vinum og ætt-
ingjum þar sem fullt traust ligg-
ur fyrir. Fyrir þessu fólki er þetta
eins og óhreinkun á dýrmætum
tilfinningum og kannski vill þessi
hópur þess utan ekki heldur taka
áhættuna á því að fá neikvæð við-
brögð frá ókunnugu fólki á net-
inu.“
Slíkt getur komið fyrir – að fólk
fái neikvæð viðbrögð eða að illa
sé farið með þær upplýsingar
sem á heimasíðunni eru gefnar og
það getur verið mikið áfall fyrir
viðkomandi og skapað enn meiri
vanlíðan en ella. „Annað sem
mætti spá aðeins í er hvar þetta
endi svo allt saman. Daglegur
trúnaður við bloggið getur auð-
veldlega orðið vanabindandi og ef
viðkomandi hefur allt að því ein-
ungis verið að blogga um sorg,
missi og veikindi hlýtur það að
taka enda einn góðan veðurdag.
Það eru ekki endalaust nýjar
framfarir eða bakslög. Allt tekur
enda um síðir og einn góðan veð-
urdag er jafnvel ekki svo mikið
að blogga um. Ef bloggfærslur
um svo viðkvæm málefni verða
að enda er hætt við að það mynd-
ist tómarúm hjá þeim sem skrifar
á síðuna. Allur stuðningur sem
viðkomandi bloggari þreifst á er
ef til vill horfinn einn daginn og
slíkt geta verið mikil viðbrigði.“
„Það er ofboðslega mikið rok úti og það hvín í öllu hérna.
Ég er ein heima. Mömmu
finnst oft svo gott að vera ein með hugsunum sínum. Þú
veist vonandi hvað mamma elskar þig heitt og innilega
prinsessan mín.“
„ÉG veit ekkert hver þið eruð
og þið vitið ekkert hver ég er.
Ég datt inná þessa síðu óvart,
ég var bara að leita á google.
is. En ég samhryggist innilega
og ég vona að þið náið ykkur
upp úr þessum hrikalega
missi.“
LENGRI HELGI
FRÁ 10 TIL 18 LAUGARDAG
OG FRÁ 13 TIL 17 SUNNUDAG
Á LAUGAVEGI
HVERGI Á LANDINU ERU FLEIRI
NÚ ER OPIÐ
VERSLANIR OG VEITINGASTAÐIR EN
VIÐ LAUGAVEG
FÓLKIÐ Í BÆNUM
WWW.LAUGAV.IS LAUGAV@LAUGAV.IS
HAGSMUNASAMTÖK VERSLUNAR OG ÞJÓNUSTU VIÐ LAUGAVEG
BASK
LAUGAVEGI 95
FRIIS-COMPANY
LAUGAVEGI 55
RÁÐHÚSBLÓM
BANKASTRÆTI 4
RE YK JA VI K ST OR
LA UG AV EG I 86 -94 , S: 51 1-20
SIA
LAUGAVEGI 86-94
LIGGALÁ
LAUGAVEGI 67
COUTURE
LAUGAVEGI 86-94
EVA
LAUGAVEGI 89
MONA
LAUGAVEGI 66
REYKJAVÍK
PIZZA COMPANY
LAUGAVEGI 81
G-STAR
LAUGAVEGI 86-94
GALLERÍHÚSIÐ
LAUGAVEGI 91
66° NORÐUR
BANKASTRÆTI 5
GK REYKJAVÍK
LAUGAVEGI 92
MAIA
LAUGAVEGI 86-94
[Tískuhús á tveimur hæðum]
[Tískuvöruverslun]
[Fylgihlutir]
[Tískuverslun]
[Tískuverslun
með eigin hönnun]
NAKTI APINN
BANKASTRÆTI 14
[Tískuvöruverslun]
VÍNBERIÐ
LAUGAVEGI 43
[Blómabúð]
[Veitingastaður]
[Barnavörur][Tískuverslun]
[Tískuverslun]
[Tískuverslun]
[Húsbúnaður]
[Tískuverslun]
WWW.LAUGAV.IS // LAUGAV@LAUGAV.IS Visa og Landsbankinn eru bakhjarlar Fólksins í bænum.
Í VERSLUNUM OKKAR