Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 76

Fréttablaðið - 01.09.2007, Qupperneq 76
Lausn krossgátunnar er birt að viku liðinni á vefnum, www.this.is/krossgatur Þú sendir SMS skeytið JA LAUSN LAUSNARORÐIÐ á númerið 1900! Dæmi hvernig SMS gæti litið út ef svarið er Jón. Þá sendir þú SMS-ið JA LAUSN JON. Dregið úr réttum svörum n.k. fimmtudag kl. 12. - 99 kr. smsið Hitinn og svitinn sem fylgdi keyrslunni frá Zion-þjóðgarðinum í Utah til Las Vegas var óbærilegur. Til að sleppa lifandi út úr Nevada- eyðimörkinni var ræst fyrir sólar- upprás þegar borg syndanna var yfirgefin. Þótt steikjandi sólin væri ekki risin úr rekkju gengu spila- vítin eins og vel smurð vél. Klukkan sex á mánudagsmorgni sátu menn við spilaborðið með drykk og vindling í hönd eins ekkert væri eðlilegra. Við yfirgáfum hið synd- samlega líferni, á hraðferð út úr eyðimörkinni á trúaðri slóðir. Mormónaríkið Utah kom mér mikið á óvart. Ég átti von á hreinni náttúru og stórbrotnu landslagi, sem vissulega má finna í fjölmörgum þjóðgörðum og víðar um ríkið. En keyrslan eftir hraðbrautinni, frá eyðimörkinni í suðri til skóglendisins í norðri, bar vott um mikinn þungaiðnað og mengun. Auk þess keyrðu heimamenn eins og þeir ættu lífið að leysa, sem gerði ferðalagið stressþrungið. Okkur létti því þegar við lögðum bílnum ósködduðum í höfuðborg ríkisins, Salt Lake City. Yfirmormóninn, Brigham Young, lagði hornstein að borginni árið 1847. Fylgisveinar hans er mjög áberandi í borginni, sem og nærliggjandi sveitum. Heilögustu kirkju og höfuðstöðvar trúarhreyfingarinnar er að finna í miðborg Salt Lake City. Álfslegir mormónar streyma inn í kirkjuna, sem lítur út eins hvítur kastali. Út úr höfuðstöðvunum, sem teygja sig til himins tugi hæða, þramma jakka- fataklæddir trúboðar, líkt og her- menn á leið í orrustu. Um tíma leið mér sem ég væri staddur í Disney- teiknimynd, nema hvað Andrés var hvergi sjáanlegur (var ég kannski í hlutverki andarinnar?). Mormóna- trú lítur áfengi hornauga og öll öldurhús í borginni eru því sett upp sem einkaklúbbar, því aðeins þeim er leyfilegt að selja vínanda. Ég er því núna orðinn meðlimur í einhverjum kjánalegum klúbbi í Utah; veit ekki hvort að ég nýti mér það mjög mikið. Borgin sjáf var annars lítið frábrugðin öðrum stórborgum Bandaríkjanna. Finna mátti góða veitingastaði og bari ef bíll var við hönd og menn til í að eyða hálftíma í bílferð til að ná áfangastað. Frá Utah var stefnan tekin á Yellowstone- og Teton-þjóðgarðana. Wyoming er kúrekaríki af guðs náð. Kúastrákarnir brölta þó ekki lengur um á hestum, heldur keyra um á mótorfákum. Líkt og forverar þeirra höfðu stað til að binda hesta sína á öldurhúsum villta vestursins eru kúrekar boðnir velkomnir í dag með, „Bikers Welcome“ skiltum á börum ríkisins og mörg hótel bjóða upp á „Complimentary Bike Wash“. Ummerki byssuglaðra manna má sjá á vegaskiltum víðsvegar um fylkið. Mörg þeirra líta út eins og gatasigti, eftir að hafa verið notuð sem skotmörk. Við keyrðum hratt gegnum Teton- þjóðgarðinn með há sandsteinsfjöll til beggja handa. Stuttu eftir kom- una inn í Yellowstone var mér litið í austur, og sá ég stóran vísund hlaupa í átt að bílnum. Hjarta mitt tók kipp. Þessir villtu uxar eru merkileg dýr. Loðinn frampartur, hnúður og stór haus einkenna þessa stæltu forneskjulegu veru. Okkur tókst að skjótast undan hornum dýrsins. Kannski var það rauður litur bílsins okkar sem kveikti í bola. Ef til vill ekki, því þegar yfir veginn var komið, snéri hann við og reyndi við næsta bíl. Yellowstone minnti á marga vegu á Ísland. Meira skóglendi en við eigum að venjast á Fróni, en hverir og háhitasvæði. Ásamt landslagi mótuðu af eldvirkni sem kveikti á Íslendingnum í mér. Í einni af fjölmörgum þjónustu- miðstöðvum varð mér ljóst að ég var ekki einn um að sjá þessa samlíkingu. Á litlu safni um þjóð- garðinn var umfjöllun um eld- virkni og blasti þar við stækkuð Morgunblaðsforsíða á vegg, sem þakinn var blaðagreinum frá eld- fjallasvæðum. Einhverra hluta vegna kom íslenska forsíðan engan veginn eldgosum við, ólíkt hinum forsíðunum. Slys á Reykjanes- braut og eitthvað fleira óeldvirkt var í fréttum þennan daginn. Kannski var íslenskukunnátta safn- haldara ekki upp á marga fiska. Eftir kalda nótt í tjaldi í Yellowstone héldum við í norður, til Montana. Kólnaði nú enn frekar og er við fórum yfir fjallgarð á ríkismörkum Wyoming og Mont- ana lá fönn yfir fjallstindum. Þetta heillaði ferðafélaga mína (sem og mig) og hófst snjókast á fjallstoppi milli krakka í stuttbuxum og stuttermabol. Merkilegt nokk þá fékk snjórinn bleikan ljóma þegar hann var hnoðaður. Fengum við seinna þá skýringu að þetta sé vegna þörunga, sem lifa á toppi fjallsins. Þegar komið var niður á sléttur Montana virtist himinninn stækka. Þótt fjöll væri til beggja handa voru þau það langt í burtu að himinninn tók upp stærri hluta sjónsviðsins en áður. Allt umhverfi virkaði örsmátt í samanburði við heiðbláan himininn. Skiljanlegt hví ríkið er kallað „Big Sky Country“. Nú eru aðeins fimm dagar eftir af ferðinni og um tvö þúsund mílur á leiðarenda. Best að spýta í lófana og setjast undir stýri, ef maður ætlar að komast heim til Boston. Heimspeki er það sem stendur á milli lína í skáldsögum, af því að viska heimsins býr í hinu ósagða. Því skýtur skökku við að heim- spekirit séu oft svona miklir doðr- antar. En ég er ekki heimspeking- ur og ég er ekki skáld. Ég kann ekki þá list að dulbúa sögur né heldur að hrófa upp hátimbraðri speki, en skrái þessi atvik til að gefa þögninni mál og minna á hið gleymda. Einar Már Guðmundsson: Draumar á jörðu (2000) Hér í Fbl. 4. ágúst er sagt í fyrir- sögn, að fyrirferðarmikill Vest- mannaeyingur hafi „viðhaft ömur- lega framkomu“ – og þykir mér undarlega orðað, enda af tagi hins hræmulega stofnanamáls. Auðvelt er að beita einni sögn, koma (vel/ illa) fram, haga sér, hegða sér, láta. Eftirfarandi klausa birtist í mark- aðsblaði Fbl. 8. ágúst: „Áhrifanna [af alþjóðlegu svipmóti íslensks viðskiptalífs] verður þó ekki síður vart í tungutaki áhrifamanna í við- skiptalífinu. Þannig hafa góð og gild íslensk orð á borð við vanmat og skuldsetning, vikið fyrir hinum engilsaxnesku undervalued og leveraged.“ Er þetta ekki greið leið til að týna tungunni? „…eftir því sem bíllinn sé ekinn hraðar,“ sagði fréttamaður á Stöð 2, 10. ágúst. Aka bílinn? Hingað til hefur so. aka stýrt þágufalli, sbr. orðatiltækið Gott er heilum vagni heim að aka, sem fyrst kemur fyrir í Egils sögu. Þá er viðteng- ingarhátturinn misnotaður, sem oftar. Eftir því sem bílnum er ekið hraðar, er það nokkuð flókið? Aðalfyrirsögn á netmiðlinum Vísi. is 15. ágúst: Olíuverð hækkar í verði. Er hægt að komast öllu lengra í aulaskap? Er maður sem skrifar svona fær um að gegna rit- störfum? Hver er metnaður þessa miðils? Þessi braghenda varð til vestur í Staðarsveit á Snæfellsnesi á liðnu vori: Lyfta brúnum Ljósufjöll á lygnum degi. Betra á vorið bjarta eigi en brosi sól og vindur þegi. Vilji menn senda mér braghendu eða góðfúslegar ábendingar: npn@ vortex.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.