Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 83
Í kvöld er frumsýning á fyrsta
verkefni Leikfélags Reykjavíkur í
Borgarleikhúsi. Verkið er nýlegur
skoskur farsi eftir Anthony Neilson
sem kallast Lík í óskilum og er sýnt
á Litla sviðinu. Leikstjóri er
Steinunn Knútsdóttir.
Verkið um lík á lausu er
uppvakning á hinu gamalkunna
farsaformi misskilnings og blekk-
inga. Óborganlegt lögguteymi fær
það hlutverk að boða eldri hjónum
váleg tíðindi á aðfangadagskvöld.
Áður en erindið hefur verið útskýrt
að fullu kemur upp misskilningur
sem erfitt reynist að leiðrétta.
Fljótlega eykst misskilningurinn,
fleiri persónur slást í hópinn,
flækjan verður sífellt flóknari og
hjartveiki eiginmannsins gerir
verkefni lögreglunnar nánast
ómögulegt. Löggur, lygar og lygileg
atburðarás. Lík í óskilum var
forsýnt í vor og hlaut frábærar
viðtökur áhorfenda á hláturs-
hátíðinni sem forráðamenn Leik-
félagsins hafa nú efnt til í tvígang.
Leikarar í sýningu kvöldsins eru
Þórhallur Sigurðsson, Aðalbjörg
Árnadóttir, Eggert Þorleifsson,
Helga Braga Jónsdóttir, Halldóra
Geirharðsdóttir, Jörundur
Ragnarsson og Þór Tulinius. Öll eru
þau vel að sér í hinu vandmeðfarna
formi. Það er nýnæmi að farsi sé
settur upp á Litla sviðinu og verður
spennandi að sjá hópinn í svo mikilli
nálægð.
Aðrir aðstandendur sýningar-
innar eru þau Sigurvald Ívar Helga-
son sem gerir hljóðmynd, Magnús
Arnar Sigurðarson sem annast lýs-
ingu, Sigríður Rósa Bjarnadóttir
sem sér um leikgervin, Rannveig
Kristjánsdóttir sníður búninga, en
verkið er þýtt af Sigurði Hróars-
syni. Leikmynd annast Ilmur Stef-
ánsdóttir.
Anthony Neilson hefur á liðnum
árum vakið mikla athygli á
Bretlandseyjum fyrir verk sín. Þau
hafa nokkur komið hér á svið og
vakti sviðsetning Benedikts Erlings-
sonar í fyrra á Lísu í Sundralandi
eða Ófögru veröld mikið umtal.
Nýir gamanleikir sem snúast að
nokkru um að skekja hið forna
form hafa verið fátíðir hér á landi;
þeir hafa aftur notið mikilla
vinsælda sem eru sniðnir að hinu
hefðbundna formi farsans, einkum
þeir sem hafa farið í gegnum
smiðju enskra þýðenda.
Lík í óskilum og allt í vitleysu