Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 88

Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 88
Smalinn úr Mývatnssveit farinn til Noregs Eyjólfur Sverrisson til- kynnti í gær val sitt á landsliðs- hópnum sem mætir Norður-Írlandi og Spáni í næstu viku í undan- keppni EM 2008. Tveir nýliðar eru í hópnum, þeir Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Sverrir Garðarsson, báðir úr FH. Ásgeir Gunnar var reyndar einnig valinn í landsliðið í fyrra en kom ekki við sögu þá. Sérstaklega athygli vakti að Eyjólfur valdi Eið Smára Guð- johnsen í hópinn en hann hefur átt við meiðsli að stríða. „Hann er allur að koma til en ég hef verið í góðu sambandi við hann undanfarið. Hann er að æfa með liðinu og er á réttri leið. Ég vonast til að hann nýtist okkur eitthvað í þessum leikjum,“ sagði Eyjólfur. Arnór Guðjohnsen, umboðsmað- ur og faðir Eiðs Smára, sagði hins vegar að hann byggist ekki við því að Eiður kæmi við sögu. „Hann verður í kringum hópinn og fær nú tækifæri til að hitta lækni landsliðsins líka en hann hefur verið í miklu sambandi við hann. Ég efast samt um að hann komi nokkuð við sögu í þessum leikjum. Hann er engan veginn til- búinn í það,“ sagði Arnór. Eyjólfur valdi 22 leikmenn en það kemur til þar sem margir leik- menn gætu fengið leikbann í síð- ari leiknum, fái þeir gult spjald gegn Spáni. „Við þurfum að vera við öllu búnir. Þetta verða tveir gríðarlega erfiðir leikir og við þurfum að vera þéttir fyrir. Varnarleikurinn þarf að vera til fyrirmyndar. Við ætlum að standa okkur vel í leikj- unum og vera þjóðinni til sóma. Það er lykilatriði. Við fórum vel yfir það í síðasta leik að það væri gríðarlega mikilvægt að menn væru stoltir að spila fyrir Íslands hönd.“ Hann sagði að engin sérstök markmið væru sett fyrir leikina, hvað úrslit varðar. „Okkar megin- markið, sérstaklega á móti Spáni, er að sýna þjóðinni að við viljum standa okkur vel og ganga af vell- inum með reisn.“ Hann býst við því að spila 4-5-1 leikkerfið eins og hann gerði í æfingaleiknum gegn Kanada. Gengi landsliðsins til þessa í keppninni hefur ekki verið gott en í vor gerði liðið 1-1 jafntefli við Liechtenstein á heimavelli og tap- aði 5-0 fyrir Svíum ytra. Eyjólfur var mikið gagnrýndur þá en hann telur ekki að framtíð hans sé undir í þessum leikjum. „Það er alveg á hreinu að þetta snýst ekki um mig. Ég er ekki að velta því fyrir mér hvað mín per- sóna hefur með þetta að gera. Ég er að stjórna íslenska landsliðinu og íslenska landsliðið ætlar að standa sig og vera þjóð sinni til sóma.“ Spurður hvort hann væri kom- inn í þrot með liðið sagði hann að svo væri alls ekki. „Ég tel mig hafa af mikilli reynslu að miðla. Ég var lengi í atvinnumennsku og þekki þennan heim mjög vel. Það er langt í frá að ég sé kominn í þrot með liðið.“ Ísland mætir fyrst Spáni á Laug- ardalsvelli á laugardaginn klukk- an 20. Miðasalan á þann leik geng- ur ágætlega en enn voru í gær um fimm þúsund miðar eftir óseldir. Leikurinn við Norður-Írland fer fram miðvikudaginn 12. septemb- er og hefst klukkan 18.05. Miða- sala er einnig hafin á þann leik. Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari tilkynnti í gær landsliðshópinn sem mætir Spáni og Norður-Írlandi í næstu viku. Eiður Smári Guðjohnsen var valinn en faðir hans telur ólíklegt að hann verði orðinn leikfær. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, sagði á blaða- mannafundi í gær að hann vildi að landsliðið stæði sig betur en það hefur gert í síðustu leikjum. „Í síðustu undankeppni fengum við fjögur stig og nú erum við með fjögur stig. Ég vil að við fáum fleiri stig og að landsliðið sýni betri frammistöðu heldur en í vor. Ég vona að sú reynsla sem við höfum úr vorleikjunum og fyrri hluta keppninnar nýtist okkur og að það verði breyting á leik liðsins. Ég treysti Eyjólfi til þess.“ Vill fleiri stig Birna Valgarðsdóttir er leikjahæsta landsliðskona Íslands frá upphafi en hún verður fjarri góðu gamni í dag þegar íslenska liðið mætir Hollandi. Birna er komin tæpa sjö mánuði á leið og missir því af sínum fyrstu landsleikjum síðan í desember 1995. Síðan þá hefur Birna spilað alla 67 leiki íslenska landsliðsins. „Þetta er frekar skrýtið og ég vildi geta tekið þátt í þessum leikjum. Ég er búin að spyrja stelpurnar í Keflavík hvernig þetta hefur gengið. Þær eru allar að standa sig á æfingum þannig að ég er glöð yfir því,“ segir Birna Valgarðsdóttir, sem man eftir einu skipti þar sem hún var í hættu að missa af landsleik á þessum tólf árum. „Þegar við fórum til Eng- lands milli jóla og nýárs tognaði ég illa á ökkla en einhvern veginn náði ég að púsla mér saman og gat spilað,“ segir hún. „Ég játa alveg að mig klæjar alveg í fingurna,“ segir Birna sem ætlar að mæta og styðja stelpurnar. „Að sjálfsögðu ætla ég að mæta á leikinn,“ segir Birna. Ísland mætir Hollandi á Ásvöllum klukkan 16.00 í dag og liðið á enn möguleika á að komast upp í A-deild vinni það leikinn. Holland vann alla þrjá leiki sína síðasta haust, þar á meðal 66-61 sigur í Rotterdam í fyrri leik þjóðanna. „Ég hef alveg tröllatrú á stelpunum að þær eigi eftir að hanga í þeim og jafnvel vinna þær. Það munaði rosalega litlu í fyrri leiknum þannig að við eigum góða möguleika í þessum leik,“ segir Birna sem er hvergi nærri hætt í körfunni. „Ég á að eiga 14. nóvember. Ef allt gengur að óskum þá verður maður byrjaður um áramótin,“ segir Birna að lokum. Með í öllum lands- leikjum í tólf ár Kvennalandsliðið mætir Hollandi klukkan 16.00 í dag á Ásvöllum í b-deild Evrópu- keppni landsliða. Skeljungur mun bjóða áhorfendum frítt á leikinn en Skeljungur og KKÍ undirrituðu á þriðjudaginn nýjan samstarfs- samning en Skeljungur er orðinn aðalstyrktaraðili landsliðs og afreksstarfs KKÍ. Frítt á leikinn Hollenska landsliðið sem mætir Íslandi í b-deild Evrópukeppni landsliða kvenna er mjög sterkt. Frægasti leikmaður liðsins er hin 193 sm háa Marlous Nieuw- veen. Nieuwveen hefur spilað við góðan orðstír á Ítalíu tvö síðustu tímabil en var þar á undan með Los Angeles Sparks í WNBA- deildinni. Hún var með 9,3 stig og 7,8 fráköst á 26,3 mínútum með Viterbo á Ítalíu síðasta vetur. Með WNBA- miðherja BRETTIN UPP! Frumsýnd 31. ágúst með íslensku og ensku tali! Þú sendir SMS skeytið BT BTF á númerið 1900. Þú færð spurningu. Þú svarar með því a ð senda SMS skeytið BT A, B eða C á númerið 1900. Aðalvinningur Toshiba Satellite fartölva + PSP tölva + leikir! Aðalvinningur er Toshiba Satellite fartölva + PSP tölva + leikir! Geggjaðir aukavinningar: Medion vídeóspilari, Playstation 3, iPod nano, Panasonic tökuvél, Sony myndavél, GSM símar, Playstation 2 tölvur,Guitar Hero, Gjafabréf frá Tónlist.is, bíómiðar á „Brettin upp“, DvD myndir, Tölvuleikir, kippur af gosi og margt fleira! *A ða lv in ni ng ar d re gn ir út ú r ö llu m in ns en du m sk ey tu m . V in ni ng ar v er ða a fh en tir í B T Sm ár al in d, K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 9 9 kr /s ke yt ið . Þ ú fæ rð 5 .m ín ti l a ð sv ar a sp ur ni ng u. 10. hver vinn ur!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.