Fréttablaðið - 01.09.2007, Page 90
Arnór Guðjohnsen,
umboðsmaður og faðir Eiðs Smára
Guðjohnsen, sagði í samtali við
Fréttablaðið um miðjan dag í gær
að landsliðsfyrirliðinn yrði ekki
seldur frá Barcelona í bili. Meiðsli
hans hefðu orðið til þess að
feðgarnir vildu ekki fara í neinar
alvöru viðræður við önnur lið.
„Hann verður áfram hjá
Barcelona, hversu lengi sem það
verður. Það á eftir að koma í ljós,“
sagði Arnór. Hann sagði að Eiði
hefði þó verið sýndur mikill áhugi
eins og fréttaflutningur síðustu
vikna gæfi til kynna.
„Það hefur hellingur af fyrir-
spurnum borist og búið að ræða
við helling af félögum. En á
þessum tímapunkti teljum við
ekki æskilegt að hann flytji sig um
set á meðan hann er meiddur.
Hann vill sjálfur vera tilbúinn í
slaginn þegar hann skiptir um lið
og við höfum því ekkert verið að
spá í neitt slíkt fyrr en hann verður
góður.“
Spurður segir Arnór að mikið af
tilboðum hafi einnig borist í Eið
Smára, ekki bara fyrirspurnir.
„Mörg lið hafa sent tilboð og
örugglega fleiri en við vitum af.
Mest af þessu fer í gegnum
Barcelona, sem hefur svo samband
við okkur. Forráðamenn Barcelona
hafa aldrei sett neinn þrýsting á
okkur en eins og gengur og gerist
í fótbolta hefur allt staðið opið.“
Meðal þeirra félaga sem hafa
verið orðuð við Eið eru Englands-
meistarar Manchester United.
Arnór vildi ekki bera kennsl á þau
félög sem hefðu gert tilboð en
vissi ekki til þess að Manchester
United hefði gert það. Hann gaf þó
sterklega til kynna að West Ham
hefði gert tilboð.
Hann segir erfitt að meta hversu
alvarleg hnémeiðsli Eiðs Smára
séu og hversu lengi hann verði
frá.
„Meiðslin hafa nú verið að hrjá
hann í rúma tvo mánuði. Það eru
reyndar ákveðin batamerki en það
er samt ekki svo gott að hann sé
tilbúinn í slaginn. Hann hefur ekki
tekið þátt í neinni einustu æfingu,
nema til að hlaupa smá. Hann er
ekki tilbúinn að spila neinn
fótbolta.“
Arnór segir að aðgerð á hnénu
sé síðasti valkosturinn í stöðunni.
Allt annað verði reynt fyrst. „Hnéð
lítur ekki illa út á myndum en það
er vökvasöfnun og fleira að angra
hann í hnénu. Það gæti verið að
hann þyrfti að fara í speglun bara
til að sjá almennilega hvað er að
hrjá hann.“
Hvað sem gerist segir Arnór að
mikilvægt sé ekki að flýta sér um
of. „Mér fannst til dæmis að Eto‘o
(félagi Eiðs hjá Barcelona) hefði
ekki verið tilbúinn þegar hann
byrjaði aftur eftir sín meiðsli. Það
er mikilvægt að ná sér 100%
góðum áður en farið er á fulla ferð
aftur. Eiður er þolinmóður og veit
að það er betra að gefa sér einum
mánuði meira en minna.“
Því má svo bæta við að nýlega
var tilkynnt að Samuel Eto‘o yrði
frá næstu tvo mánuðina vegna
meiðsla.
Arnór Guðjohnsen, umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir að Barcelona
hafi borist mikið af tilboðum og fyrirspurnum um landsliðsfyrirliðann. Arnór
hafi hins vegar tekið fyrir allar umræður þar til Eiður nái sér góðum á ný.
Markið sem KR-
ingurinn Bjarnólfur Lárusson
skoraði eftir aðeins 10 sekúndna
leik gegn FH í Kaplakrika í
fyrrakvöld er annað fljótasta
markið frá upphafi.
Metið á Eyjamaðurinn Leifur
Geir Hafsteinsson, sem skoraði
eftir aðeins 8 sekúndur í 1-0
sigri ÍBV á KR 6. júlí 1995.
Bjarnólfur komst hins vegar í
annað sætið upp fyrir Sigþór
Júlíusson, sem skoraði eftir
aðeins 17 sekúndur í 1-0 sigri KR
á ÍA 18. maí 1999.
Annað fljótasta
mark sögunnar
Valskonur komust aftur á
toppinn í Landbankadeild kvenna
með því að vinna stórsigur á
Breiðabliki, 6-0, á blautum Val-
bjarnarvellinum í gær. Með sigr-
inum náði Valur KR að stigum á
toppnum en Valur hefur 13 marka
forskot þegar litið er á markatöl-
una. Liðin eiga nú bara tvo leiki
eftir þangað til að þau mætast á
KR-vellinum 13. september í
væntanlega óopinberum úrslita-
leik um Íslandsmeistaratitilinn.
Valsliðið náði þar með að hefna
fyrir ófarirnar í bikarnum en Blik-
ar slógu Íslands- og bikarmeistar-
ana út úr átta liða úrslitunum fyrr
í sumar. Fimm mörk Valskvenna
komu á lokakafla hálfleikjanna og
það sjötta rétt í upphafi leiks.
Margrét Lára Viðarsdóttir og
Nína Ósk Kristinsdóttir skoruðu
báðar tvö mörk í leiknum og þær
Rakel Logadóttir og Guðný Björk
Óðinsdóttir gerðu hvor sitt markið.
Nína Ósk skoraði bæði mörk sín á
keimlíkan hátt eftir að hafa sloppið
ein í gegn en hún kom inn á sem
varamaður og spilaði bara síðasta
hálftíma leiksins.
Aðstæður til að leika knatt-
spyrnu voru vægast sagt vondar
enda völlurinn varla leikfær
sökum vatnselgs. Dómgæslan var
hins vegar í góðum gír en Kristinn
Jakobsson dæmdi leikinn í gær.
Guðný lék fyrsta klukkutímann
inni á miðju Valsliðsins í stað þess
að vera í bakverðinum og var þá
besti maður Valsliðsins. Markið
sem hún skoraði var einkar lag-
legt og án nokkurs vafa fallegasta
mark leiksins.
Sigur Valsliðsins var alltof stór
miðað við gang leiksins en mörkin
tvö sem Valur skoraði í lok fyrri
hálfleiks gerðu út um leikinn.
Fram að því höfðu Blikar gerst
ágengir upp við mark Vals.
Valskonur hefndu
fyrir bikarskellinn