Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 94
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Rokkarinn Chris Cornell hyggst nýta væntanlega
Íslandsferð sína vel en hann heldur tónleika í
Laugardalshöll laugardaginn 8. september.
Rokkarinn kemur hingað ásamt eiginkonu sinni,
Vicky Karayiannis, á fimmtudaginn og fer ekki
fyrr en á sunnudeginum. Til stendur að fara
með skötuhjúin á snjósleða og fjórhjól og
má fastlega gera ráð fyrir að hann ætli
einnig að ná ferðaþreytunni úr sér í Bláa
lóninu. Jafnframt verður blásið til
mikillar veislu strax eftir tónleikana á
laugardeginum á skemmtistaðnum
REX en hann hefur hýst flestöll teiti
þeirra stórstjarna sem leggja leið sína
hingað.
Með Cornell í för verður einnig
umboðsmaður hans og til
stórtíðinda gæti því dregið í
íslensku tónleikahaldi. Sá sér víst
einnig um að binda alla lausa
hnúta hjá grunge-rokksveitinni
Pearl Jam og samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins hefur
hann í hyggju að skoða hér
aðstæður fyrir Eddie Vedder og
félaga. Fjölmargir tónleikahaldarar
hafa reynt að fá Pearl Jam til landsins og heimildir
Fréttablaðsins herma að nú sé hafið vinnuferli sem
miðar að því að fá
rokkgoðsagnirnar hingað
til lands, fyrr en seinna.
„Ég get ekkert tjáð mig
um þetta mál,“ segir
Ísleifur B. Þórhallsson,
framkvæmdastjóri
Concert, og var þögull sem
gröfin þegar Fréttablaðið
bar þetta undir hann.
Chris Cornell og Pearl
Jam eru hins vegar
bundin miklum vina-
böndum og hefur verið
töluverður samgangur
þar á milli. Fréttablaðið
hefur heimildir fyrir því að
starfsmenn Concert muni því
leggja sig enn meira fram við að
gera allt sem best úr garði.
Unnið að komu Pearl Jam
Ásgeir Gunnar Ásgeirsson
Ýmsir viðburðir Ljósanætur í
Reykjanesbæ rata ekki í formlega
dagskrá hátíðarinnar. Meðal þess
er árleg súpu- og pylsugerð
leynilögreglumannsins Lofts
Kristjánssonar og konu hans
Kristlaugar Maríu Sigurðardóttur
rithöfundar. Þau hjónin gera um
50 lítra af súpunni og eiga von á
fjölda fólks í mat.
„Við erum búin að gera þetta í
5-6 ár,“ segir Kristlaug. „Í fyrra
komu um 80 manns í gumbó
súpuna og flestir komu tvisvar,
fyrst í kvöldmat og svo aftur eftir
flugeldasýninguna. Við héldum að
við hefðum gert nóg til að eiga
afgang daginn eftir en það var
ekki hægt að skafa dropa upp úr
botni pottanna eftir daginn.“
Uppskriftin að súpunni er ættuð
frá New Orleans en það tekur Loft
2-3 daga að útbúa hana. „Loftur
fór til New Orleans fyrir 10 árum
síðan og lærði súpugerðina af
kokki þar,“ segir Kristlaug. „Hann
sér alfarið um að gera súpuna, ég
er bara aðstoðarkokkur. Reyndar
hef ég reynt að gera hana af því
að dagsdaglega er ég mun betri
kokkur en hann. Ég varð þó að
játa mig sigraða hvað súpuna
varðar,“ segir Kristlaug og hlær.
Helstu innihaldsefni súpunnar
eru kjúklingur, “heilög þrenning”
og svokallaðar anduille pylsur
auk chili pipars og tabasco sósu.
„Í þrenningunni er laukur, græn
paprika og sellerí sem er sett í
roux – smjörbollu sem er við það
að brenna. Pylsurnar fást ekki
hér á landi svo við þurfum að búa
þær til og gerðum það um síðustu
helgi. Svo byrjuðum við súpu-
gerðina í fyrradag og ég er með
þrjá potta á hlóðunum núna.“
Kristlaug segir að þau Loftur
renni blint í sjóinn hvað fjölda
gesta varðar. „Fyrir fimm árum
síðan komu tíu manns og fjöldinn
hefur vaxið ár frá ári. Kannski
kemur enginn núna,“ segir hún
og hlær. Hún segir að flestir
gesta séu ættingjar eða vinir.
„Stundum kemur fólk sem við
þekkjum ekki neitt. Það eru allir
velkomnir!“
„Við vorum að keyra út plakatið
fyrir kvikmyndina Veðramót og
höfðum farið í flestalla framhalds-
skóla höfuðborgarsvæðisins,“
segir Halldór Halldórsson, betur
þekktur sem Dóri DNA. „En þegar
við komum í MR var okkur mein-
að að setja plakatið upp sökum
þess að á því sést stúlka vera að
reykja. Við buðumst til þess að
líma yfir sígarettuna en allt kom
fyrir ekki, þetta mátti ekki út af
sígarettunni,“ segir Halldór sem
er sonur Guðnýjar Halldórsdóttur,
leikstjóra myndarinnar.
Yngvi Pétursson, rektor Mennta-
skólans í Reykjavík, segir að regl-
ur um þessi mál séu skýrar og að
þeim sé hiklaust framfylgt. „Hér
má ekki hengja upp neinar auglýs-
ingar þar sem
auglýst er
áfengi eða
tóbak,“ segir
hann og tekur
fram að það
gildi einu hvort
um sé að ræða
beinar eða
óbeinar
auglýsingar.
„Við förum
enda eftir gild-
andi reglugerð
sem segir að
reykingar séu
bannaðar í og
við skólann.
Þessu fylgjum
við stíft eftir.“ Yngvi segir þetta
ekki vera í fyrsta skipti sem aðila
sé neitað um að hengja upp
veggspjald á þessum forsendum.
„Auglýsingar og annað verða
náttúrulega að vera samkvæmt
reglum skólans.“ Hann segist ekki
hafa skýringar á því hvers vegna
Menntaskólinn í Reykjavík hafi
verið eini skólinn sem meinaði
Dóra að hengja spjaldið upp. „Nú
veit ég ekki hvernig þetta hefur
verið útfært annars staðar.
Hugsanlega hefur þetta bara verið
hengt beint upp og enginn spurður
um leyfi.“
Veggspjald Veðramóta bannað í MR