Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 4
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Fjárfestingafélögin
Lindberg og Gómur eiga orðið tvo
stóra reiti í Örfirisey sem for-
svarsmenn félagsins vonast til að
verði hægt að byggja á veglega
íbúabyggð. Heildarfjárfestingar
Lindberg og Góms þar nema um
3,5 milljörðum króna.
Ólafur Garðarsson hæstarétt-
arlögmaður, sem á fjórðungshlut
í félögunum, segir uppbyggingu
byggðar í Örfirisey geta glætt
borgarlífið miklu lífi. „Við höfum
auðvitað horft til þess að borgar-
yfirvöld hafa áhuga á því að
byggja upp íbúabyggð þarna og
okkar kaup miðast við það. Þetta
getur orðið stórglæsilegt svæði, á
besta stað í miðbænum.“ Aðrir
eigendur félaganna eru Magnús
Jónatansson, Gísli Steinar Gísla-
son og Icebank en allir eigend-
urnir eiga jafnstóran hlut.
Lindberg hefur keypt upp eign-
ir við götuna Fiskislóð, frá 16 til
32.
Stýrihópur á vegum Reykjavík-
urborgar, sem er að meta hvernig
best sé að haga uppbyggingu í
Örfirisey, hefur enn ekki lokið
störfum.
Eins og greint var frá í Frétta-
blaðinu í gær sendi Árni Vil-
hjálmsson, stjórnarformaður HB
Granda, erindi til stjórnar Faxa-
flóahafna þar sem óskað var eftir
því að kvöðum um nýtingu á
lóðum fyrirtækisins yrði aflétt,
en þær eru skipulagðar undir
sjávarútvegsstarfsemi. Stjórn
Faxaflóahafna ákvað á stjórnar-
fundi á þriðjudag að verða ekki
við kröfum HB Granda og því
verða lóðirnar áfram ætlaðar
undir sjávarútvegsstarfsemi.
Jón Grétar Jónsson, fram-
kvæmdastjóri fasteignasölunnar
Húsakaupa, segist finna fyrir
auknum áhuga á svæðinu. „Auð-
vitað skiptir miklu máli hvers
konar nýting verður leyfð í Örfir-
isey og hvernig borgaryfirvöld
sjá skipulagið fyrir sér. Ég hef
orðið var við að fjárfestar hafi
sýnt svæðinu mikinn áhuga. Alls
konar þjónusta er farin að sækja
nær þessu svæði, til dæmis hár-
greiðslustofur, sem ekki hefðu
farið inn á þetta svæði fyrir
nokkru síðan.“
Í starfshópi Reykjavíkurborgar
eru Björn Ingi Hrafnsson, sem er
formaður, Árni Þór Sigurðsson,
Gísli Marteinn Baldursson, Hanna
Birna Kristjánsdóttir, og Dagur
B. Eggertsson.
Veðjað á veglega
íbúabyggð í Örfirisey
Fjárfestar hafa í auknum mæli keypt upp eignir í Örfirisey að undanförnu. Tveir
stórir reitir eru komnir í eigu fjárfestingafélaganna Lindbergs og Góms. Þetta
gæti orðið glæsilegt svæði, segir Ólafur Garðarsson lögmaður og einn eigenda.
Anders Fogh Rasmussen,
forsætisráðherra Danmerkur,
stokkaði upp í ríkisstjórn sinni í
gær. Mesta athygli vakti að hann
skipaði „flokkaflakkarann“ Karen
Jespersen í embætti félagsmála-
ráðherra. Hún gegndi því embætti
í síðustu ríkisstjórn jafnaðar-
manna, sem fór frá árið 2001. Hún
gekk í flokk forsætisráðherrans,
Venstre, í fyrra.
Auk nýs félagsmálaráðherra
skipaði Fogh Rasmussen nýja
menn til að fara fyrir ráðuneytum
landbúnaðar- og samgöngumála.
Eva Kjer Hansen úr Vestre, sem
var félagsmálaráðherra, tekur við
landbúnaðarráðuneytinu, og Jakob
Axel Nielsen úr Íhaldsflokknum er
nýr samgönguráðherra. Hans
Christian Schmidt, sem var land-
búnaðarráðherra, og Flemming
Hansen, sem var samgönguráð-
herra, víkja úr stjórninni.
Fogh vísaði því á bug, að ástæða
uppstokkunarinnar væri óánægja
með störf þeirra ráðherra sem
víkja úr stjórninni eða skipta um
ráðuneyti. „Þetta er markviss upp-
stokkun, sem beinist að viðræðun-
um um umbætur [á velferðarkerf-
inu] og í orkumálunum,“ hefur
fréttavefur Politiken eftir Fogh.
Uppstokkunin nú kom nokkuð á
óvart í ljósi þess að þess hefur
verið vænst að Fogh Rasmussen
ákveddi fljótlega að flýta næstu
þingkosningum. Úr þessu verður
væntanlega ekki fyrr en í fyrsta
lagi á fyrri hluta nýs árs.
Flokkaflakkari í félagsmálin
Höskuldur Ásgeirsson,
forstjóri Flugstöðvar Leifs Eiríks-
sonar, hefur
sagt upp
störfum.
Höskuldi var
boðið starf sem
forstjóri Nýsis
ehf. Jón
Gunnarsson,
formaður
stjórnar
Flugstöðvarinn-
ar, segir engan
starfslokasamning hafa verið
gerðan en kveður Höskuld, sem
var með eins árs uppsagnarfrest,
fá sig lausan í lok nóvember. Elín
Árnadóttir, fjármálastjóri
fyrirtækisins, sem verið hefur
staðgengill forstjóra síðasta hálfa
annað árið verður nýr forstjóri.
„Þetta er eðlileg þróun af því að
ég hef verið í þessu starfi,“ segir
Elín. Flugstöðin velti 6,8 milljörð-
um króna í fyrra.
Höskuldur í stól
forstjóra Nýsis
Karlmaður var ákærður
í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
líkamsárás og rán í febrúar og
mars síðastliðnum. Ákæran er í
þremur liðum og er ákærða gefið
að sök að hafa, aðfaranótt 15.
febrúar, veist að karlmanni og
slegið hann hnefahöggum um
allan líkamann svo hann viðbeins-
brotnaði og hlaut mar. Sama
morgun fór hann með fórnar-
lambið í tvo banka þar sem hann
neyddi það til að taka út samtals
110 þúsund krónur. Í mars neyddi
hann annan karlmann með ofbeldi
og hótunum að millifæra 307.617
krónur yfir á sinn reikning.
Neyddi fórnar-
lambið til að
millifæra fé
Heildarafli
nýliðins fiskveiðiárs er sá
næstminnsti á tólf mánaða
fiskveiðiári frá upphafi. Hann var
aðeins minni fiskveiðiárið á
undan. Fiskveiðiár ná frá 1.
september til 31. ágúst.
Heildarafli síðasta fiskveiðiárs
var 1.419.427 tonn og jókst um 130
þúsund tonn frá árinu áður.
Botnfisksafli dróst saman um 27
þúsund tonn á milli ára en aukning
á heildarafla milli ára skýrist af
meiri loðnu-, síldar- og makrílafla.
Enn eru rúm 46 þúsund
þorskígildistonn óveidd frá síðasta
fiskveiðiári en heimilt er að flytja
aflaheimildir milli ára.
Heildarafli eykst
milli fiskveiðiára
Sautján ára gömul
stúlka var ákærð í gær í
héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
líkamsárás. Ákærðu er gefið að
sök að hafa ráðist á stúlku
fædda árið 1992 og slegið hana
hnefahöggum í andlitið með
þeim afleiðingum að hún
marðist og hlaut snúning um
hálsliði.
Árásin átti sér stað 1. maí
2006 við Bónusvídeó í Hólagarði
í Reykjavík.
Foreldrar fórnarlambsins
krefja foreldra ákærðu um að
greiða 250.000 krónur í bætur
auk vaxta vegna árásarinnar.
Unglingsstúlka
réðist á aðra