Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 8
„Þetta er takmörkuð auðlind sem á í
vök að verjast,“ segir Sigmar B. Hauksson
formaður Skotveiðifélagsins. Hann er sáttur við
ákvörðun umhverfisráðherra um rjúpnaveiðar.
Tilkynnt var í gær að veiða mætti í átján daga í
nóvember, allar helgar mánaðarins, frá fimmtu-
degi til sunnudags. Mælt er með því að ekki fleiri
en 38.000 fuglar verði felldir.
Á Suðvesturlandi verður áfram bannað að veiða
á 2.600 ferkílómetra svæði og bannað verður að
selja rjúpur og afurðir þeirra.
„Það er ekki rétt að hafa takmarkaða auðlind
fyrir markaðsvöru,“ segir Sigmar um sölubannið.
„Villt dýr eru víða erlendis utan markaðar og í
þessu tilviki höfum við miklar upplýsingar um
rjúpuna og það er ýmislegt sem herjar á hana,“
segir hann og telur til fjölgun refa og minka, vegi,
síma- og rafmagnslínur.
Sigmar segir rjúpnastofninn í lægð og að svo
verði næstu þrjú árin. þangað til leggur hann
áherslu á að skotveiðimenn vilji hafa fastan
veiðitíma.
„Undanfarin ár hefur veiðitíminn aldrei verið
sá sami. Við höfum lagt það til við ráðherra að
þetta fyrirkomulag verði næstu þrjú árin og
leggjum á það ríka áherslu.“
Shinzo Abe, forsætis-
ráðherra Japans, boðaði í gær
afsögn sína. Með því lýkur ferli
ársgamallar ríkisstjórnar hans,
sem vörðuð hefur verið hneykslis-
málum og niðurlægjandi kosn-
ingaósigri.
Abe, sem er 52 ára að aldri og
yngsti ríkisstjórnarleiðtoginn í
sögu Japans eftir stríð, lýsti því
yfir að hann hefði ákveðið að
hætta til að greiða fyrir sam-
vinnu bæði stjórnar- og stjórnar-
andstöðuflokkanna á þingi um að
ákveða framlengingu á aðgerð-
um japanska flotans á Indlands-
hafi til stuðnings hernaðarað-
gerðum fjölþjóðlega herliðsins í
Afganistan, sem Bandaríkja-
menn fara fyrir.
„Undir núverandi kringum-
stæðum er erfitt að koma í fram-
kvæmd skilvirkri stefnu sem
nýtur stuðnings almennings,“
sagði Abe á blaðamannafundi
sem sendur var út beint um allt
land.
Traust kjósenda á Abe mælist
um þessar mundir innan við 30
prósent, en var yfir 70 prósent
þegar hann tók við embætti af
hinum vinsæla Junichiro Koiz-
umi í fyrrahaust.
Abe sagðist hafa sett í gang
ferli til að finna eftirmann sinn
innan stjórnarflokksins LDP.
Taro Aso, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, sem þykir sennilegur
arftaki, vildi ekkert tjá sig um
málið að svo stöddu.
Abe víkur í kjölfar hrakfara
Rjúpan er takmörkuð auðlind
Vladimír Pútín Rúss-
landsforseti gerði sér lítið fyrir í
gær og leysti forsætisráðherra
sinn, Mikhaíl Fradkov, frá störf-
um og skipaði síðan nýjan mann,
Victor Zúbkov, strax í starfið.
Pútín segir
þessar manna-
breytingar
nauðsynlegar
til að „búa þjóð-
ina“ undir
væntanlegar
kosningar.
Þingkosningar
verða haldnar í
Rússlandi 2.
desember
næstkomandi og forsetakosningar
þremur mánuðum síðar.
Val Pútíns á Zúbkov í embætti
forsætisráðherra virðist hafa
komið öllum á óvart. Margir höfðu
reiknað með að hann myndi velja í
starfið þann mann, sem hann
myndi vilja sjá taka við forseta-
embættinu á næsta ári. Þar höfðu
einkum tveir menn verið tilnefndir,
Igor Ivanov, fyrrverandi varnar-
málaráðherra, og Dmitrí Medved-
ev, stjórnarformaður stórfyrir-
tækisins Gazprom.
Zúbkov er lítt þekktur, en hefur
verið yfirmaður fjármálaeftirlits-
ins í Rússlandi, stofnunar sem
heyrir undir fjármálaráðuneytið
og hefur haft það verkefni að
rannsaka peningaþvætti.
Þeir Pútín og Zúbkov hafa
þekkst lengi. Pútín var yfirmaður
Zúbkovs þegar þeir störfuðu báðir
í borgarstjórn Pétursborgar
snemma á síðasta áratug. Pútín
hefur áður kallað fyrrverandi
samstarfsmenn sína frá Péturs-
borg til háttsettra embætta í
stjórn Rússlands.
Sumir stjórnmálaskýrendur
telja að Pútín hafi valið Zúbkov til
að geta stjórnað áfram á bak við
tjöldin.
„Þessi útnefning er leið til þess
að framlengja í reynd stjórn Vla-
dimírs Pútín eftir að valdatíð
hans er formlega lokið,“ segir
Grigorí Javlinskí, leiðtogi
Jabloko, flokks frjálslyndra.
Sergei Ivankov, sem er einn
forystumanna í Jabloko, segir
skipun Zúbkovs í forsætisráð-
herraembættið minna óþægilega
á það þegar Boris Jeltsín, þáver-
andi forseti, skipaði Pútín forsæt-
isráðherra sinn árið 1999. Fáein-
um mánuðum síðar tók Pútín við
forsetaembættinu af Jeltsín.
„Það er eins og maður hafi séð
þetta áður,“ segir Ivankov.
Boris Gryzlov, forseti Dúm-
unnar, neðri deildar rússneska
þingsins, lýsti strax yfir stuðn-
ingi sínum við Zúbkov. Hann
segir að Dúman geti greitt
atkvæði um skipan hans í forsæt-
isráðherraembættið strax á föstu-
daginn.
Pútín skiptir um
forsætisráðherra
Rússlandsforseti hefur fengið lítt þekktan embættismann, Victor Zúbkov, til að
vera forsætisráðherra fram að þingkosningum í byrjun desember. Hugsanlegt
þykir að Pútín ætli Zúbkov að taka við forsetaembættinu á næsta ári.
U
ni
qu
eR
V
08
07
02
Unique örtrefjamoppusettið
1 stk.
2 stk.
Dagleg þrif eru leikur einn
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Uniqu
e
2.980
Kr.
Uniqu
e
glerk
lútur
557Kr.
PÍTUBAKKI 2.390 kr.
ÁVAXTABAKKI
2.480 kr.
Vínber, melónur, ananas, appelsínur,
perur og fleiri gó›ir ávextir.
N†TT
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
*Frí heimsending gildir a›eins ef panta›ir eru 3 e›a fleiri bakkar.
Tikka masala kjúklingur,
jöklasalatog pítubrau›.
Reykt skinka, eggjasalat,
jöklasalat og pítubrau›.
Nánari uppl‡singar á somi.is
N†TT