Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 29
Ein ítarlegasta rannsókn sem
gerð hefur verið á áhrifum reyk-
ingabanns í Skotlandi gefur til
kynna að markverður árangur
hafi náðst í að bæta heilsufar
almennings.
Nú þegar Íslendingar eru að venj-
ast reykingabanni á veitinga- og
skemmtistöðum eru Skotar að upp-
skera laun þess að koma á slíku
banni. Ný rannsókn á heilsufari
Skota bendir til þess að reykinga-
bann auki lífsgæði og fækki inn-
lögnum á spítala.
Samanburður á níu spítölum
leiddi í ljós að innlögnum vegna
hjartaáfalla hafði fækkað um
sautján prósent milli ára frá því
bannið var innleitt í mars 2006.
Gæði andrúmslofts á krám í Skot-
landi eru nú sambærileg við and-
rúmsloftið utandyra og rannsókn-
in sýndi einnig að óbeinar
reykingar höfðu minnkað um
fjörutíu prósent meðal barna og
fullorðinna norðan landa-
mæranna.
Ítarlegri niðurstöður rannsókn-
arinnar verða kynntar á alþjóð-
legri ráðstefnu í Edinborg sem
skosk yfirvöld hafa skipulagt.
Árangursríkt bann
Vísindamenn hafa svipt hulunni
af ráðgátunni um hvernig augu
lesa setningu.
Áður héldu rannsakendur að bæði
augun einbeittu sér að sama bók-
staf orðs í einu, en breskir vísinda-
menn hafa komist að raun um að
svo sé alls ekki alltaf. Raunar horfa
augu okkar á ólíka stafi samtímis í
helmingi tilvika, en einnig kom í
ljós að mannsheilinn blandar
saman tveimur aðskildum mynd-
um til að öðlast skýra mynd af því
sem augað sér.
Háþróað tæki gerði rannsakend-
um kleift að staðsetja nákvæmlega
þann bókstaf sem augað hafði í
brennidepli meðan það las fjórtán
punkta letur í eins metra fjarlægð.
Í stað þess að færast greiðlega yfir
textann voru hreyfingar augnanna
skrykkjóttar og beindust að
ákveðnum stöfum eitt augnablik
áður en lestri setningar var haldið
áfram. Rannsakendur komust
einnig að því að þegar augu festust
meðan lesið var voru þau að horfa
hvort á sinn bókstafinn.
Augun lesa til skiptis
Heilsu barna fer hrakandi
vegna minni möguleika á
leikjum utanhúss. Óþarflega
áhyggjufullum foreldrum,
tölvuleikjum, sjónvarpsglápi og
prófdrifnu menntakerfi er um
að kenna.
Þetta eru niðurstöður 300 virtra
prófessora, geðlækna og sálfræð-
inga í Bretlandi í nýrri úttekt um
heilsufar breskra barna, en hún
þykir undirstrika nýja samantekt
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna um að bresk börn séu þau
óhamingjusömustu á meðal 21 iðn-
vædds ríkis. Hópurinn staðhæfir
að hnignun frjálslegra útileikja
hafi afar slæm áhrif á andlega
heilsu barna og ógni sömuleiðis
langtímaþroska ungs fólks. Þessi
mikla hnignun í útileikjum síðustu
fimmtán ár sé lykilþáttur í þeirri
óhugnanlegu staðreynd að and-
legri heilsu barna sé að hraka.
Aukinn umferðarþungi,
hræðsla foreldra við mannrán og
menntakerfi sem byggist um of á
prófum vegur þungt á þeim vogar-
skálum. Einnig spilar stórt hlut-
verk öll sú vanabindandi skjá-
afþreying og áleitna
markaðssetning sem á börnunum
dynur. Kallar hópurinn á yfir-
gripsmikla og upplýsta umræðu
um eðlislæga eiginleika barna og
gildi leikja í heilbrigðu þroska-
ferli, því rétt eins og offita barna
sé orðin faraldur í vestrænum
heimi geti „ruslleikir“, eins og
ruslfæði, dregið skelfilegan dilk
á eftir sér fyrir komandi kynslóðir.
Foreldrar þurfi að takast á við
kvíða sinn þar sem hann skerði
frelsi barna til að þroskast og
dafna á heilbrigðan máta.
Útileikir mikilvægir
Eydís Hentze er þriggja
barna móðir og útskrifaður
fæðingarþjálfi frá Mia Jyia
Gilling Borgman í Kaup-
mannahöfn. Samfylgd verð-
andi mæðra við fæðingar-
þjálfa verður æ sjálfsagðari
þáttur í meðgöngu og fæðingu
kvenna um allan heim.
„Ég hafði hugsað mér að fara
í ljósmóðurnám þegar ég kynnt-
ist fræðum fæðingarþjálfunar-
innar og fannst ég knúin til að
læra þau,” segir Eydís sem lauk
námi í fæðingarundirbúningi,
fæðingarfræðum eðlilegrar og
áhættuflokkaðrar meðgöngu og
fæðingu, umönnun á sængur-
legutímabili, fóstur- og nýbura-
sálfræði, líkama- og sálarmeð-
ferðarformi, líföndun, brjósta-
gjafaráðgjöf, þjálfun, næringa-
þerapíu og Rebozo-tækni.
„Ég veiti andlegan, líkamleg-
an og verklegan stuðning í starfi
mínu í fæðingarhjálp og hefur
verið tekið opnum örmum af
verðandi foreldrum og ljós-
mæðrastéttinni. Ég held ítarleg
námskeið þar sem þunguðum
konum gefst kostur á að kasta
gömlum hugmyndum um fæðing-
una á glæ og skoða nýja hug-
myndafræði,” segir Eydís sem
leggur mikið upp úr hlýlegu
umhverfi, notalegu andrúmslofti
og kappkostar hámarks dekur
fyrir verðandi mæður.
„Nálgun mín er persónuleg svo
ég geti stutt við andlegt ferli kon-
unnar á meðgöngu, en mikið
hefur vantað upp á að þær hafi
getað sótt persónulegan stuðn-
ing. Við gerum tengslaæfingar
fyrir barnið og fræðumst um hið
virka tilfinningalíf sem barnið
upplifir á meðgöngu, í fæðingu
og sem nýburi. Hlutverk feðra er
líka skoðað, þeir mæta með
konum sínum og reynast afar
fúsir og opnir í sinni umræðu,”
segir Eydís sem einnig fer ítar-
lega í gegnum fæðingarferlið;
hvað gerist í líkamanum, hvaða
vöðvar vinna verkið og hvað unnt
sé að gera til að leyfa líkamanum
að vinna ákjósanlegast í fæðing-
unni.
„Fæðingarþjálfi tekur á móti
konum á hvaða tíma með-
göngunnar sem er, en flestum
hentar best að koma eftir fyrstu
tólf vikurnar. Ég hugsa alltaf um
móður, föður og barn sem eina
heild, en ferlið mætti kalla heild-
rænt þar sem öllum þáttum kon-
unnar er sinnt; andlegu hliðinni,
þeirri líkamlegu og barninu
líka,” segir Eydís sem einnig er
til staðar þegar stærstu stundir
lífsins renna upp.
„Þá kem ég inn sem aðstand-
andi og tek ekki stað ljósmæðra,
en veiti leiðsögn í náttúrulegum
og virkum fæðingum, heimaf-
æðingum, sjúkrahússfæðingum
og vatnsfæðingum og eins fylgi
ég fjölskyldum í keisara. Í fæð-
ingunni þekki ég orðið fjölskyld-
una náið; styrk hennar og hvaða
hliðum þarf að sýna meiri
aðhlynningu og hlýju. Konan fær
þann stuðning sem hún þarf en
saman notum við ýmsa tækni
sem við höfum unnið með á með-
göngunni. Í flestum fæðingum
kemur sá tímapunktur að konum
finnst þær vera óyfirstíganlegar
og eru tilbúnar að gera hvað sem
er en á sama tíma þrá margar
þeirra að upplifa verkjalyfja-
lausa fæðingu. Með ákveðnum
aðferðum næ ég að halda þeim
ásetningi og draumi með stuðn-
ingi og ráðadáð,” segir Eydís
sem stofnaði fyrirtækið Draum-
afæðingu eftir starf sitt sem
fæðingarþjálfi í Danmörku.
„Í lok september hefst hjá mér
hópnámskeið og enn er eitthvað
laust, en ég býð einnig upp á
einkatíma. Nokkru fyrir áætlað-
an fæðingardag hitti ég svo for-
eldrana nokkrum sinnum, er
með í fæðingunni frá upphafi til
enda og veiti áframhaldandi
stuðning og nærveru komi upp
erfiðleikar eftir fæðingu.”
Nánari upplýsingar og fróð-
leik um Draumafæðingu Eydís-
ar Hentze er á www.draumafa-
eding.net.
Algjör draumafæðing