Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 30

Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 30
Ný prjónabók er komin út hjá Ístexi, full af uppskriftum eftir einn vinsælasta handprjóna- hönnuð Íslands, Védísi Jóns- dóttur. „Það er ákveðin nostalgía í línunni, óður til Íslands og rómantískrar fortíðarhyggju. Samt færð í nútímabúning,“ segir Védís Jóns- dóttir þegar hún er spurð hverjar áherslurnar séu í prjónahönnun hennar þetta árið. Hún nefnir sem dæmi peysur sem hún kallar Snæ- fellsjökul, Óróa og Land. „Ég er með kápur og stórar jakkapeysur þetta haustið sem henta vel íslensk- um aðstæðum,“ bætir hún við. „Flíkurnar eru með fallegum snið- um, þó ég segi sjálf frá, en þó ekki þannig að flókið sé að prjóna þær.“ Védís kveðst líka nýlega búin að hanna jakka úr léttlopa fyrir haust- blað Vouge Knitting. Óður til Íslands Einni stærstu tískukaupstefnu í heimi í fjöldaframleiddum kvenfatnaði lauk á sunnudag í París. Sýnd var tíska kom- andi sumars en nú styttist í tískusýning- ar og tískuviku hér í borg í lok mánaðar. Þarna sýndu að vanda hundruð fram- leiðenda auk þess sem sýningin Who´s next?, þar sem nýir og frumlegir hönn- uðir láta ljós sitt skína, fór fram á sama tíma. Um leið streyma innkaupastjórar og tískufræðingar um alla borg í leit að einhverju ómissandi fyrir veturinn, aðrir, sérstaklega Asíubúar, reyna laumulega að taka myndir af flíkum sem þeir síðan stæla þegar heim er komið. Nýjung þessarar tískukaupstefnu var sérstakt svæði þar sem sýnd voru föt fyrir ,,stórar stelpur“, nokkuð sem algjörlega hefur verið til hliðar fram að þessu. Í undirheimum tískunnar er þetta stundum kallað með glotti á vör Bernadette Chirac-stærð, stærð 44 og yfir. Þrátt fyrir anorexíska kvenmynd tískunnar er það staðreynd að 36 og 38 eru alls ekki mest seldu stærðirnar í verslunum. Það er nefnilega þannig að franskar konur sem reyndar hafa fram að þessu verið heldur grennri og smágerðari en þær íslensku hafa farið upp um eina stærð á þrjátíu árum og ummál er fimmtán sentimetrum meira í dag en fyrir fimmtán árum. Samkvæmt opinberum rannsóknum er rúmlega 41% franskra kvenna í stærðum 44-56 og sú mest selda er stærð 40 sem 20% kvenna nota, yfir 16% eru í 42 og meira en 13% í 44. Einkennilegt þó í þessum heimi efnishyggju og gróða að fataframleiðendur hafi alls ekki haft rænu á að nýta þennan markað og uppfylla þörf markaðarins. Konur sem nota stærri stærðirnar segja að sá fatnaður sem þeim sé boðinn minni á kartöflusekki eða þá að ef þær versla í þeim fáu búðum sem sérhæfa sig í stærðum 44 og yfir eigi þær á hættu að mæta í boð í sama dressi og einhver önnur, og það meira að segja í París, svo lítið er framboðið í 44-56. En nú eru þessar stærðir komnar til að vera á tískukaupstefnunni ef marka má forráðamenn hennar. Sama þróun varð bæði þegar umhverfisvænir hönnuðir sýndu þar fyrst sem og etnískir hönnuðir. Nú mæta þessir hönnuðir á hverja kaupstefnu og fjölgar ár frá ári. Stórar stelpur eru líklega komnar inn úr kuldanum og það til að vera. Og fyrir þá sem ekki vita notaði Marilyn Monroe stærð 46. Auðvitað er aukið framboð á fötum í stærri stærðum (ég nota af ásettu ráði ekki orðið yfirstærðir) ekki ástæða eða afsökun fyrir því að hreyfa sig ekki eða borða minna af sykri og fitu. Auglýsingasími – Mest lesið Smáralind, sími 5288800, www.drangey.is Fæst í apótekum um land allt Ofnæmisprófuð og mild lína sem er sérstkalega þróuð fyrir viðkvæma húð ungbarna Ungbarna andlitskrem – Verndar húðina gegn óæskilegum áhrifum umhverfis og útfjólubláum geislum. Sólarvörn SPF 18, vítamín A&E. Bossakrem – Mýkir og verndar bleyjusvæðið gegn ertingu, útbrotum og þurrki. Býr til verndandi lag á húðina. A&B5 vítamín. Mjög gott á bruna. Bossablautklútar – Handhægir klútar í ferðapakkningu. Húðlæknisfræðilega prófaðir. Úr 100% trefjum. Alkóhól- og litefnalausir. Ph gildi 5,5. Ungbarna baðsápa – Sérlega mild og rakagefandi kremsápa “sápulaus”. Innih. A&E vítamín. Ungbarna sjampó – Milt sjampó (tearless). Hefur góðan ilm og gerir hárið silkimjúkt. Ungbarna húðmjólk – Mild og rakagefandi húðmjólk. Inniheldur E&B5 vítamín. Ph gildi 5,5. Ungbarna olía – Mild olía sem mýkir og hefur róandi áhrif á húðina. Inniheldur A&E vítamín. Sensitive ungbarnalína Nýjar vörur Nýjar vöru ýjar v Nýjar vörur Nýjar vöru Ný jar vö ru r örur Nýtt kortatímabil Sendum í póstkröfu

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.