Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 5ísmót 2007 fréttablaðið
ársins
„Ég býst ekki við að sjá margar
konur svona um höfuðið, enda
hentar klippingin ekki í daglegu
lífi,“ segir Sigrún Kristín Ægisdóttir
hárgreiðslumeistari um framlag
sitt í flokknum Listsköpun í hári,
greiðslu sem líkist vöfflu með hita-
járni og skilaði henni verðlaunum á
Ísmóti.
Mikil vinna fór í greiðsluna og
hárúði eingöngu notaður til að halda
henni uppi, sem styður þá fullyrð-
ingu að greiðslan verði sjaldséð.
Gagnstætt klippingunni sem Sig-
rúnu vann einnig fyrir, í flokknum
Hársnyrtir ársins.
„Markmiðið var að skila inn
mynd af hversdagslegri klippingu
sem gæti orðið vinsæl. Ég valdi
stutta klippingu, form og lit sem
klæða fyrirsætuna, og er viss um að
hún verði áberandi.“
Sigrún er ánægð með sigurinn og
vill hvetja sem flest hárgreiðslufólk
til að taka þátt í keppnum. Þátttaka
hafi heilmikið að segja. - rve
Vöffluklippingin vann
Sigrún Kristín Ægisdóttir á sigurstundu.
Sigurvegarinn. Keppandi
nr. 104. Höfundur: Sigrún K.
Ægisdóttir hársnyrtimeistari.
Hársaga. Módel Edda.
MYND/ERLING Ó. AÐALSTEINSSON
náði samanlagt hæsta skori á mót-
inu. Það voru þær Hildur Ingadóttir,
formaður Félags íslenskra snyrti-
fræðinga, og Ronelle Iten, aðalritari
CIDESCO, sem kynntu niðurstöðu
dómnefndar á hátíðarkvöldi Ísmóts.
Sjá viðtal við Ágústu Kristjáns-
dóttur, snyrtifræðing ársins, á bls.
15.
Ágústa Kristjánsdóttir, á Snyrti-
stofuÁgústu, hlaut hæsta skor á
Ísmóti eftir að hafa keppt í öllum
þremur greinum snyrtifræðinga.
Hér má sjá módelið í höndum
Ágústu á keppnissvæðinu.