Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 39

Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 39
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 7ísmót 2007 fréttablaðið Keppandi nr. 202. Landslag. Höfundur: Mats Wibe Lund ljósmyndari. Keppandi nr. 196. Auglýsingamynd fyrir francas.is. Höfundur: Lárus Karl Ingason ljósmyndari. Stofa Ljósmynd. Á ÍSMÓTI 2007 var keppt um tit- ilinn Ljósmynd ársins á vegum Ljósmyndarafélags Íslands í sam- vinnu við SI og aðildarfélög þess í þjónustuiðngreinum. Auk keppn- innar kynnti félagið starfsemi sína í Höllinni og ljósmyndastof- ur innan félagsins tóku vel á móti gestum. Fagljósmyndara og ljós- myndastofur í Ljósmyndarafé- lagi Íslands er að finna á vefnum Meistarinn.is. Alls 52 myndir bárust í keppn- ina í eftirfarandi flokkum: Por- trett, Landslag, Arkitektúr og Auglýsinga- og iðnaðarljósmynd- un. Stigagjöf dómnefndar og nið- urstaða úr símakosningu almenn- ings réði úrslitum á mótinu en eft- irtaldir meistarar og verk þeirra voru tilnefnd til verðlauna: • Portrett-ljósmynd nr. 177 - Er- ling Ó. Aðalsteinsson • Auglýsinga- og iðnaðarljósmynd nr. 194 og 196 - Lárus Karl Inga- son • Landslagsmynd nr. 202 - Matz Wibe Lund Tvær ljósmyndir urðu hnífjafnar að stigum og ákvað dómnefnd að veita þeim báðum titilinn „Ljós- mynd ársins“ á Ísmóti 2007. Ann- ars vegar var það portrettmyndin „Feðgar,“ nr. 177, tekin af Erlingi Ó. Aðalsteinssyni á Ljósmynda- stofu Erlings og hins vegar aug- lýsingamynd fyrir Zo-on, nr. 194, tekin af Lárusi Karli Ingasyni hjá Ljósmynd. Hinn landsþekkti fag- ljósmyndari Magnús Hjörleifsson kynnti úrslitin á hátíðarkvöldi Ís- móts. Ljósmynd ársins Sigurvegari. Keppandi nr. 194. Auglýsingamynd fyrir Zo-on. Höfundur: Lárus Karl Ingason ljósmyndari. Stofa Ljósmynd. Sigurvegari. Keppandi nr. 177. Feðgar. Höfundur Erling Ó. Aðalsteinsson ljósmyndari. Ljósmyndastofa Erlings. Fullt hús fagljósmyndara var á hátíðarkvöldi Ísmóts. Sigurvegararnir, Lárus Karl Ingason, til vinstri, og Erling Ó. Aðalsteinsson, til hægri, ásamt fulltrúa Ljósmyndara- félags Íslands, Magnúsi Hjörleifssyni. Erling Ólafur Aðalsteinsson ljós- myndari, hjá Ljósmyndastofu Er- lings, sendi inn fimm myndir á Ísmót 2007. Þar á meðal var mynd af nýbökuðum föður með nokk- urra daga gamlan son sinn í fang- inu, sem dómnefndin útnefndi mynd ársins í flokki portrett- mynda. „Foreldrarnir komu fyrst í myndatöku til mín þegar móðirin var ófrísk og ætluðu að koma aftur eftir að hún hafði fætt,“ segir Erling. „Ég bað þau um að gera það sem fyrst eftir fæðingu, eða þegar þau treystu sér til. Þau gerðu það og við áttum notalega stund í stúdíóinu. Tókum heilan helling af myndum.“ Erling segist hafa viljað koma til skila nálægðinni á milli föður- ins, Fernando Ruiz, og sonarins, Hannesar, á myndunum. Hann gaf sér góðan tíma til að vinna þær og naut þar dyggrar aðstoðar sam- býliskonu sinnar, Sillu Páls, förð- unarmeistara með meiru, sem hefur starfað við hlið helstu ljós- myndara landsins síðustu ár. Eins og fyrr sagði fór að lokum svo að dómnefndin útnefndi myndina þá bestu í flokki por- trettmynda og því virðist ætlun- arverk Erlings hafa heppnast. „Þetta er mjög mikilvæg viður- kenning fyrir mig,“ segir hann um sigurinn. „Staðfesting á því að fólki finnist maður vera að gera góða hluti. Mér finnst persónu- lega svo gaman að mynda fólk og gleðja það þegar það sækir mynd- irnar, að helst vildi ég ekki þurfa að rukka fyrir þær. Maður hefur þó ekki um annað að velja.“ -rve Feðgar þóttu flottastir Erling býður upp á mánaðarmyndatökur. Þá koma mæður í bumbumyndatöku, síðan með barnið nýfætt og mánaðarlega fyrsta árið. Úr verður albúm mynda frá fyrsta ári barnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Tvær mannverur úti í óblíðri náttúrunni eru viðfangsefni ljós- myndarans Lárusar Karls Inga- sonar en sú mynd færði honum verðlaun í flokknum Auglýsinga- mynd ársins 2007. „Þetta er auglýsingamynd sem ég vann fyrir bækling á vegum Zo-on og sýnir tvær mannverur á gangi úti í vondu veðri, sem á aftur að endurspegla styrk fatnaðar- ins,“ útskýrir Lárus, sem hefur að baki áralanga reynslu af aug- lýsinga- og portrettljósmyndun og hefur hlotið alþjóðlega athygli fyrir störf sín. Auk verðlaunanna hlaut Lárus tilnefningu fyrir aðra auglýsinga- mynd sem hann myndaði fyrir veiðivefinn francas.is og er því hæstánægður með árangurinn. „Það var fínt og ánægjulegt að fá alla þessa viðurkenningu. Þetta er klapp á bakið,“ segir hann. „Þar sem ég veit að maður er alltaf dæmdur út frá síð- asta verki keyrir sigurinn mann áfram. Svo styrkir þetta vonandi fyrirtækin sem ég vann fyrir í trúnni um að þau séu að gera rétt.“ Spurður um hvort hann hafi fundið afrakstri erfiðisins, verð- launagripnum, mátulegan stað, segir Lárus annað ekki hafa komið til greina. „Hann er nú að því er heita má á arinhillunni heima, þar sem hann sómir sér vel. Þetta er sannarlega góð áminning um að það er til einhvers að vinna á móti sem þessu.“ - rve Sómir sér vel í stofunni Lárus hefur starfað sem ljósmyndari í fjölmörg ár og man tímana tvenna, til dæmis hvaða áhrif stafræna byltingin hafði eins og hann kallar hana. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.