Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 40
13. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR8 fréttablaðið ísmót 2007
Á ÍSMÓTI 2007 var keppt um titilinn „Klæð-
skeri og/eða kjólameistari ársins“ á vegum
Klæðskera- og kjólameistarafélagsins (KK) í
samvinnu við SI og aðildarfélög þess í þjón-
ustuiðngreinum. Auk keppninnar kynnti
félagið starfsemi sína í Höllinni en félags-
menn er að finna á vefnum Meistarinn.is.
Keppni KK var hluti af keppni Tískuteyma-SI á
mótinu og réði stigagjöf dómnefndar og niður-
staða úr símakosningu almennings úrslitum en
eftirtaldir meistarar voru tilnefndir til verð-
launa:
• Berglind Magnúsdóttir, klæðskeri og kjóla-
meistari, Klæðskerahöllinni
• Berglind Ómarsdóttir klæðskeri, Kjólum og
klæði
• Selma Ragnarsdóttir, klæðskeri og kjólameist-
ari, Listauka
Titilinn „Klæðskeri ársins“ hlaut Berglind
Ómarsdóttir klæðskeri, Kjólum og klæði, en það
var Hólmfríður Ólafsdóttir úr stjórn Klæðskera-
og kjólameistarafélagsins sem kynnti úrslitin á
hátíðarkvöldinu.
Klæðskeri ársins
Innan Samtaka iðnaðarins og aðildarfélaga
í þjónustuiðngreinum starfa hundruð fag-
manna við hársnyrtingu, snyrtingu, gullsmíði,
klæðskurð, kjólasaum og ljósmyndun. Auk
þeirra eru innan SI nokkur þekkt fyrirtæki í
hönnun og framleiðslu á fatnaði og fylgihlutum
ýmiss konar.
Þótt margt virðist í fljótu bragði ólíkt með þessum
þjónustuiðngreinum er eitt mikilvægt atriði sem
sameinar krafta, hugvit og menntun þessa fagfólks í
eina heild: Óskin um gott útlit og aukna vellíðan ein-
staklingsins sem til þess leitar. Tískuteymi-SI endur-
spegla þessa ósk þegar þau koma saman til að veita
viðskiptavinum heildræna ráðgjöf og þjónustu.
Á Ísmóti 2007 kepptu sjö tískuteymi um titilinn
Tískuteymi ársins. Stigagjöf dómnefndar og niður-
staða úr símakosningu almennings réði úrslitum
á mótinu en eftirtalin þrjú teymi voru tilnefnd til
verðlauna:
• Tískuteymi-1 á vegum Berglindar Ómarsdóttur,
Kjólum og klæði
• Tískuteymi-2 á vegum Eddu Hrannar Atladóttur,
Leðuriðjunni Atson
• Tískuteymi-7 á vegum Selmu Ragnarsdóttur, List-
auka
Titilinn „Tískuteymi ársins“ hlaut teymi nr. 1 fyrir
framlag sitt „Runaway Bride 07.07.07.“ en í því eru:
• Klæðskeri: Berglind Ómarsdóttir, Kjólum og
klæði
• Hársnyrtir: Magnús Þór Reynisson, Hjá Jóa og
félögum
• Snyrtifræðingur: Berglind Alfreðsdóttir, Com-
fort snyrtistofu
• Gullsmiður: Helga Jónsdóttir, Gullkúnst Helgu
• Ljósmyndari: Ágústa Kr. Bjarnadóttir, Barna- og
fjölskylduljósmyndum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra kynnti úrslitin á hátíðarkvöldi Ísmóts. Nánar
er fjallað um hvert teymi á si.is/ismot.
Tískuteymi ársins
TÍSKUTEYMI-2: Kvenleg og sterk. TÍSKUTEYMI-7: Ævintýralegur draumur.
Berglind og teymi hennar hugðu að hverju smáatriði.
Hér má sjá þær stöllur Berglindi Ómarsdóttur og Hólm-
fríði Ólafsdóttur baksviðs eftir verðlaunaafhendinguna.
TÍSKUTEYMI ÁRSINS - TÍSKUTEYMI-1.
THE RUNAWAY BRIDE 07.07.07
Klæðskeri Berglind Ómarsdóttir, Kjólum
og klæði. Hársnyrtir Magnús Þór Reyn-
isson, Hjá Jóa og félögum. Snyrtifræð-
ingur Berglind Alfreðsdóttir, Comfort
snyrtistofu. Gullsmiður Helga Jónsdóttir,
Gullkúnst Helgu. Ljósmyndari Ágústa Kr.
Bjarnadóttir, Barna- og fjölskylduljós-
myndum