Fréttablaðið - 13.09.2007, Side 44
13. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR12 fréttablaðið ísmót 2007
Snyrtimiðstöðin – Lancome, Kringlunni 7, Reykjavík.
Laugar Spa snyrti- og nuddstofa, Sund-
laugarvegi 30, Reykjavík
Í fyrsta sinn á Íslandi var efnt
til samkeppni meðal fyrirtækja
innan Samtaka iðnaðarins þar sem
keppt var um titilinn „Stofa árs-
ins” í tiltekinni iðngrein.
Keppnin var að þekktri erlendri
fyrirmynd og var fyrirtækjum
boðið að skila inn ákveðnum upp-
lýsingum á skýrsluformi um
reksturinn, ímynd þess, markaðs-
setningu, samskipti, nýsköpun og
framtíðarsýn.
Að þessu sinni bárust alls 24 um-
sóknir frá fyrirtækjum úr snyrti-
iðn, hársnyrtiiðn og gullsmíði.
Sérstakri dómnefnd var falið að
meta innsend gögn en hún gat
einnig óskað eftir frekari gögnum
og/eða heimsótt fyrirtækin.
Í hverri grein tilnefndi dómnefnd
þrjú fyrirtæki til úrslita en þau
voru sem hér segir:
Tilnefning: Hársnyrtistofa ársins
• Hárný, Nýbýlavegi 28, Kópavogi
• Hársaga, Hótel Sögu og Austur-
stræti, Reykjavík
• Unique hár og spa, Borgartúni
29, Reykjavík
Tilnefning: Snyrtistofa ársins
• Laugar Spa snyrti- og nuddstofa,
Sundlaugarvegi 30, Reykjavík
• Snyrtimiðstöðin – Lancome,
Kringlunni 7, Reykjavík
• Snyrtistofan Ágústa, Hafnar-
stræti 5, Reykjavík
Tilnefning: Skartgripaverslun árs-
ins
• CARAT – Haukur gullsmiður,
Smáralind, Kópavogi
• Gull & Silfur, Laugavegi 52,
Reykjavík
• Gullkúnst Helgu, Laugavegi 13,
Reykjavík
Að lokinni vandlegri yfirferð
komst dómnefnd að niðurstöðu
um hvaða stofur sköruðu fram úr
og skyldu hljóta þessa eftirsóttu
viðurkenningu á Ísmóti 2007. Eru
þær kynntar hér á næstu síðum
með umsögn dómnefndar.
Mikil eftirvænting ríkti meðal
gesta á hátíðarkvöldinu þegar
Sveinn Hannesson, framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins, kynnti
úrslitin.
Gull & Silfur, Laugavegi 52, Reykjavík.
CARAT – Haukur gullsmiður, Smáralind, Kópavogi.
Stofur ársins – í
þremur iðngreinum
Hársaga, Hótel Sögu og Austurstræti, Reykjavík.
Hárný, Nýbýlavegi 28, Kópavogi.
Dómnefnd valdi Unique hár og
spa, Borgartúni 29 í Reykjavík,
stofu ársins í flokki hársnyrti-
stofa.
Dómnefndin horfði þar einkum til
spennandi og nútímalegar hönn-
unar og stefnumótunar þar sem
unnið er með vörur sem í dag eru
háþróaðar og falla vel að óskum
viðskiptavina sem eru meðvitaðir
um umhverfi sitt og vellíðan.
Stjórnendur stofunnar hafa skýra
framtíðarsýn og markmið þar sem
alþjóðlegt samstarf, straumar og
stefnur, vega þungt.
Gott skipulag er á mannauðs og
gæðamálum, góð samskipti eru
bæði innan fyrirtækisins sem og
við viðskiptavini og notkun upp-
lýsingatækni til fyrirmyndar.
Markviss umhverfisstefna er til
staðar, fagleg áhersla er lögð í
stjórnun og rekstri.
Unique hár og spa –
hársnyrtistofa ársins
Unique hár og spa er að Borgartúni 29
í Reykjavík.
Unique hár og spa var valin hársnyrtistofa ársins.
Meistarafélagið í hárgreiðslu
tilnefnir Hársnyrtistofu árs-
ins á Ísmóti 2007 til viðurkenn-
ingar og verðlauna á alþjóð-
legu verðlaunahátíðinni Global
Salon Awards sem fram fer í
Hollywood í júní á næsta ári.
Hársnyrti-
stofa ársins til
Hollywood
Dómnefnd telur stjórnendur stofunnar hafa
skýra framtíðarsýn.
Snyrtistofan Ágústa, Hafnarstræti 5, Reykjavík.
Unique hár og
spa, Borgartúni
29, Reykjavík.