Fréttablaðið - 13.09.2007, Side 47
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 15ísmót 2007 fréttablaðið
Ágústa Kristjánsdóttir, fóta-
aðgerða- og snyrtifræðingur, var
valin snyrtifræðingur ársins og
stofa hennar, Snyrtistofa Ágústu,
snyrtistofa ársins á Ísmóti 2007.
„Þessi keppni hefur mikla þýð-
ingu. Þetta minnir á okkur og
hvað við erum að gera en stundum
gætir misskilnings á því hvað það
raunverulega er og hvað fer fram
á stofunum.“
Þetta segir Ágústa Kristjáns-
dóttir, fótaaðgerða- og snyrtifræð-
ingur um Ísmót 2007, þar sem hún
varð hlutskörpust í flokkunum
Snyrtifræðingur ársins og Snyrti-
stofa ársins.
„Fagið sem slíkt fær líka
umfjöllun en þú gengur að því sem
vísu að ef þú ert að fara á stofu
sem er í Samtökum iðnaðarins
þá sé þar fólk með réttindi sem
stundar löggilda iðngrein,“ heldur
hún áfram. „Því miður er það
svo að til eru staðir þar sem fólk
starfar án þess að vera komið með
fullgild réttindi.“
Ágústa telur auk þess keppni af
þessu tagi kalla á nýjungar og efla
á margan hátt, ásamt því að auka
fagmennskuna í geiranum.
En hvernig tilfinning
skyldi fylgja því að vera valin
snyrtifræðingur ársins og að eiga
jafnframt snyrtistofu ársins?
„Það var frábært að vinna
keppnina. Það voru margar stofur
sem tóku þátt í henni og því mikils
virði að bera sigur úr býtum.
Þetta var mikil viðurkenning fyrir
fyrirtækið, starfsfólkið og mig
sem stjórnanda, rekstraraðila og
fagmann.“
Ekki þótti Ágústu síður
ánægjulegt að vera kosin
snyrtifræðingur ársins. „Við
kepptum í þremur greinum –
handsnyrtingu, plokkun og litun
og andlitsbaði – og samanlögð stig
úr þessum greinum gáfu titilinn
snyrtifræðingur ársins. Ég sigraði
í andlitsbaðinu sem mér fannst
sérlega ánægjulegt þar sem ég
hef verið að fjalla um í félaginu
að það væri gaman að útbúa
„andlitsbað ársins“ samanber
„kaka ársins“. Þarna gafst mér
því tækifæri til að koma mínu
andlitsbaði á laggirnar.”
Ágústa hefur síðustu ár verið
að þróa „andlitsbað ársins“ en
það er öðruvísi en hefðbundið
andlitsbað. Notaðir eru bæði
heitir og kaldir steinar og hendur
og fætur eru líka meðhöndluð.
„Ég undirbjó mig sérstaklega
í andlitsbaðinu fyrir keppnina.
Ég hugsaði mikið um hvernig
best væri að framkvæma þetta
á þessum eina og hálfa tíma sem
ég hafði til umráða þannig að ég
pældi heilmikið í því. Ég þurfti að
skipuleggja þetta og undirbúa vel
svo ég hefði örugglega allt til alls
og að þetta gengi upp á réttum
tíma.“
Ágústa auglýsir því brátt
með stolti „andlitsbað ársins“ á
snyrtistofu sinni og á það eflaust
eftir að vekja mikla lukku.
hrefna@frettabladid.is
Fagmennska í fyrirrúmi
Ágústa hampaði tvöföldum titli á Ísmóti 2007, sem hún segir hafa verið vel skipulagt
og glæsilegt í alla staði.
Ágústa að störfum á stofu sinni, Snyrti-
stofu Ágústu, sem hún hefur rekið síðan
árið 1990. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Kolbrún Tinna Kvaran, nemi í
klæðskeranámi í Iðnskólanum í
Reykjavík, bar sigur úr býtum í
Hönnunarkeppni nemenda á list-
og verkmenntabraut á Ísmóti
2007. Hún var að vonum ánægð
með sigurinn og fannst keppnin
takast vel.
„Ég var bara mjög montin með
þetta. Flestallir í keppninni tóku
þátt með stuttum fyrirvara þegar
það kom áskorun frá Félagi klæð-
skera. Það var mjög spennandi
að vinna þetta á stuttum tíma
og koma þessu frá sér þannig að
þetta virkaði.
Þemað var tímavélin og þá
reyndi maður að hugsa eitthvað
því tengt og skrifa smá texta. Ég
reyndi nú bara að hafa þetta í nú-
tímanum og vera samkvæm sjálfri
mér.“
Þar sem Kolbrún Tinna er að
stíga sín fyrstu skref sem klæð-
skeri þá segir hún keppnina skipta
sköpum fyrir sig. „Það er frábært
að við skulum geta komið saman
og séð hvað aðrir eru að gera. Gott
að kynnast öðrum nemendum og
skapa sér tengslanet.
Auk þess búum við í litlu landi
þar sem allir þekkjast og því er
gott fyrir mig innan geirans að
geta sagt að ég hafi unnið á Ís-
móti,“ segir Kolbrún Tinna enn í
skýjunum yfir góðum árangri.
- hs
Sætur sigur
Kolbrún Tinna Kvaran sigurvegari í
hönnunarkeppni nemenda á list- og
verkmenntabraut. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Skartgripaverslunin Carat í Smáralind
var valin skartgripaverslun ársins.
Haukur Valdimarsson, gull- og silfur-
smíðameistari í Carat, var að vonum
ánægður með sigurinn. „Við erum stolt af
því að hafa verið valin skartgripaverslun
ársins. Með þessu er verið að verðlauna
útlit og umgjörð búðarinnar, vöru og
framsetningu og eins það sem snýr
að markaðsmálum, markaðsstefnu og
kynningarstarfsemi fyrirtækisins. Þetta
hvetur okkur áfram að vanda okkur
og halda áfram að þjónusta vel okkar
viðskiptavini.”
Haukur segir enn fremur að það hafi
komið skemmtilega á óvart að sigra.
„Við fórum í þetta með opnum huga og
fyrst og fremst til að vera með. Þetta er
náttúrulega viðurkenning fyrir okkur og
líka jákvætt fyrir viðskiptavini okkar.”
Haukur telur að öll kynning sé af hinu
góða og að ef rétt er að staðið sé keppni
á borð við Ísmót mikils virði. „Fólk fær
aðra sýn á hlutina og sér breiddina í
þessu og hvað það er mikið til af hæfu
fólki við störf. Ef ég nefni gullsmiðina
og okkar sýningu á Ísmót þá voru hátt
í fjörutíu hlutir til sýnis og fólk sá þá
fjölbreytnina. Mismunandi efni eru
notuð og margar útgáfur þannig að þetta
var virkilega spennandi og ég held að
fólk hafi upplifað það þannig.“
Hauki fannst keppnin vera skemmti-
leg tilbreyting. Í aðdraganda keppninn-
ar fór hann að prófa sig áfram með nýja
hluti og fór til dæmis að nota stál sem
hann hefur ekki gert mikið af áður og
ætlar að innleiða það í búðina.
hrefna@frettabladid.is
Fagfólk og fjölbreytni
Haukur Valdimarsson gullsmiður að störfum. FRETTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÁRNASON
Á ÍSMÓTI 2007 efndi Klæðskera-
og kjólameistarafélagið, í
samvinnu við SI og aðildarfélög
þess í þjónustuiðngreinum, til
hönnunarkeppni fyrir nemendur
á list- og verkmenntabrautum
framhaldsskólanna. Yfirskrift og
þema keppninnar var „Tímavélin“
en leitað var að bestu útfærslu
nemenda á fatnaði þar sem
efnistök voru sótt úr fortíð eða
ímyndaðri framtíð.
Tíu nemendur tóku þátt, þar af
níu frá Iðnskólanum í Reykjavík
og einn frá Iðnskólanum í Hafnar-
firði. Nemendur í hársnyrtiiðn og
snyrtifræði slógust í hópinn með
keppendum og módelum þeirra
og efnt var til glæsilegra sviðs-
sýninga fyrir dómnefnd og gesti í
Höllinni.
Í lok mótsins voru eftirtaldir
nemendur tilnefndir til
verðlauna:
RÓM - EGYPTAR
Hönnuður: Hrafnhildur Ýr Rafns-
dóttir, nemi við Iðnskólann í Reykja-
vík
Módel: Tinna Rún Kristófersdóttir
NÚTÍMINN
Hönnuður Kolbrún Tinna Kvaran,
nemi við Iðnskólann í Reykjavík
Módel: Hún sjálf
FRAMTÍÐ OG BEAT
Hönnuðir: Svava Magdalena Ómars-
dóttir, nemi við Iðnskólann í Reykja-
vík, og Erla Dís Arnardóttir, nemi við
Iðnskólann í Hafnarfirði
Módel: Edda Katrín Ragnarsdóttir
Viðurkenningu og verðlaun dóm-
nefndar hlaut Kolbrún Tinna Kvar-
an, nemi við Iðnskólann í Reykja-
vík, fyrir framlag sitt „Nútíminn“.
Það var Selma Ragnarsdóttir, for-
maður Klæðskera- og kjólameist-
arafélagsins, sem kynnti úrslitin á
hátíðarkvöldinu.
Hönnunarkeppni
nemenda
Kolbrún Tinna Kvaran ásamt Selmu Ragnarsdóttur, formanni Klæðskera- og kjóla-
meistarafélagsins.
Útfærsla Kolbrúnar Tinnu Kvaran, nema
við Iðnskólann í Reykjavík, á fatnaði
nútímans í Tímavélinni - hönnunar-
keppni nemenda á Ísmóti 2007. Hún er
sjálf fyrirsæta.