Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 58
LADDI OG JÓI FEL
ILLA TEKNIR
TEKINN 2
HEFST Á MORGUN KL. 20:15
skemmtilegri
FRÁBÆRT
ÁSKRIFTAR
TILBOÐ!
30% afsláttur
af fyrsta
mánuðinu
m á Stöð 2
og
skemmtip
akki Fjölv
arpsins
frír í tvo m
ánuði.
Djöfulli er veðrið
ömurlegt. Ömurlegt
segi ég! Ekkert nema
rigning og rok og
svartnættið við það að
gleypa allt og alla. Það
er ekki langt í að dags-
ljósslamparnir, sem
halda deildinni minni
gangandi í vinnunni,
verði eina ljóstýran í myrkinu.
Ég sé fram á vetur baðaðan
geislavirkum, grænum ljóma, þar
sem ótæpileg kakódrykkja og háls-
brjóstsykursát koma talsvert við
sögu.
En bíðið við! Þetta þarf nú ekki að
verða alslæmt. Maður getur nú allt-
af brugðið sér frá, þó ekki sé nema í
fáeinar mínútur, til að sækja sér
ilmandi kaffibolla eða kíkja í
Kringluna. Yfirleitt þarf nefnilega
ekki meira en magafylli eða versl-
unarpoka til að lyfta sálartetrinu
upp þegar ástandið er sem verst.
Við Íslendingar höfum nefnilega
tileinkað okkur alveg sérstaka
taktík til að takast á við skamm-
degið, álagið og önnur ömurlegheit.
Við skreppum frá og það með reglu-
legu millibili yfir daginn. Svona
alveg eins og Spánverjar taka
síestu, nema bara oftar og í mun
skemmri tíma í senn. Enda lítur ein-
hvern veginn svo miklu betur út að
taka nokkrar stuttar pásur heldur
en eina langa letipásu.
Útlendingar hafa meira að segja
orð á þessu þegar þeir koma til
landsins, skilja barasta ekkert í öllu
þessu skreppelsi á okkur. Ekki frek-
ar en af hverju við sjúgum upp í
nefið í staðinn fyrir að snýta okkur
í vasaklút eða tölum á innsoginu
eins og slæmir astmasjúklingar.
Eiginlega finnst mér að fyrirtæki
ættu bara að setja það á stefnu-
skrána að starfsmenn fái svona
fimm góða skreppitíma yfir daginn,
sem þeir geta varið að vild. Í stað-
inn má alveg stytta hádegismatinn.
Íslendingar eru hvort sem er alltaf
að flýta sér svo mikið að þeir nota
hann aldrei allan.
Svo ég tali nú ekki um sparnaðinn
sem hlytist af því að slökkva á öllum
dagsljósunum, að minnsta kosti
hérna í vinnunni. Hver þarf á slíku
að halda þegar hann getur skroppið
aðeins frá.