Fréttablaðið - 13.09.2007, Qupperneq 64
Kaldastríðshetjan John
Rambo dustar rykið af hár-
bandinu fræga og tvískipta
hnífnum því Lionsgate-
fyrirtækið hefur tilkynnt að
fjórða myndin um Víetnam-
hermanninn verði frum-
sýnd 23. janúar.
Hafi einhver haldið að bandaríska
þjóðin væri búin að fá nóg af
blóðsúthellingum og vondum körl-
um í heimi hryðjuverka þá skjátlast
þeim hinum sama hrapallega.
Rambo á sér einhvern furðulegan
stað í hjörtum íbúa stórveldisins og
víðar en yfir hálf milljón manna
hefur skoðað myndbrot úr nýjustu
myndinni á You Tube.
Þetta undarlega dálæti á morðóða
Víetnam-hermanninum er ef til
engin tilviljun. Rambo er einfari
sem svífst einskis til að bjarga
bandarískum sakleysingjum úr
klóm illvirkja, hvort sem það eru
spilltir landar hans eða uppivöðslu-
samir kommúnistar frá Sovétríkj-
unum sem eru ógn við öryggið. Ron-
ald Reagan, fyrrverandi forseti
Bandaríkjanna, lýsti yfir miklu
dálæti á hæfileikum Rambos og
taldi að það ættu að vera fleiri slíkir
hjá bandaríska hernum. Menn eins
og Rambo voru óskabörn banda-
ríska herveldisins á tímum kalda
stríðsins og best til þess fallnir að
lúskra allrækilega á rauðu hætt-
unni í austri.
Þegar Rambo: First Blood kom út
árið 1982 vissu menn varla hvaðan
á þá stóð veðrið. Hún náði að hala
inn ágætis upphæðum í kassann
þótt gagnrýnendur, oftar sem áður
þegar Stallone var ekki í hlutverki
Rocky, ættu varla nógu sterk orð til
að rakka myndina niður. Hollywood
fann þó peningalyktina og önnur
myndin, Rambo: First Blood II fór í
framleiðslu. Þar fer Rambo á forn-
ar slóðir í Víetnam og er gert að
hafa uppi á stríðsföngum sem eiga
að vera í haldi hjá Víetkong-liðum.
Þegar Rambo finnur félaga sína
ákveða heryfirvöld að málinu skuli
sópað undir teppið og Rambo
„hverfa“ af yfirborði jarðar. En eins
og segir svo skemmtilega í einni af
kynningarlínum myndarinnar;
„þeir sendu hann af stað í verkefni
og vildu að honum mistækist. En
þeir gerðu ein mistök. Þeir gleymdu
að þetta var Rambo.“ Í þriðju mynd-
inni var Rambo síðan mættur til
Afganistans og barðist þar við hlið
Mujahideen-andspyrnuhreyfingar-
innar gegn uppivöðslusömum Rúss-
um. Og reyndi þar að auki að bjarga
vini sínum úr haldi Sovétmanna.
Hið skemmtilega er að í Mujahid-
een-hreyfingunni á sínum tíma
hlaut maður að nafni Osama bin
Laden sína þjálfun í herkænsku
undir dyggri stjórn Bandaríkja-
manna.
Rambo er ekki bara hetja af hvíta
tjaldinu heldur fyrirbæri í popp-
kúltúr sem varð vinsælt á tímum
kalda stríðsins og táknmynd banda-
rísks stríðsreksturs. Og þótt hetjan
hafi horfið af yfirborði jarðar þegar
þiðnaði í samskiptum stórveldanna
þá var hún augljóslega ekki gleymd
því á netinu má sjá núverandi for-
seta heimsveldisins, George W.
Bush, í hlutverki Rambos, hins
morðóða hermanns sem svífst
einskis til að klára áætlunarverk
sitt og skiptir varla skapi þótt sak-
laus fórnarlömb falli fyrir byssu-
kúlum í þágu bandarískra þegna og
frelsis þeirra. Samkvæmt Heims-
metabók Guinness hafa til að mynda
aldrei verið framin fleiri ofbeldis-
verk í einni og sömu myndinni og
Rambo þrjú, en þar voru yfir 108
manneskjur drepnar og meira en
200 ofbeldisverk sjást í myndinni.
Og margir höfðu spáð því að Stall-
one myndi halda til Afganistans á
nýjan leik til að hafa uppi á hryðju-
verkamönnum sem flugu á Tvíbura-
turnana, svona í ljósi heimsmynd-
arinnar og til þess að koma
„rambó-ískum“ hugsunarhætti
aftur inn í bandarískt þjóðfélag. En
svo verður ekki. Í fjórðu myndinni
snýr hetjan aftur til starfa eftir að
hafa verið í sjálfskipaðri útlegð og
er falið að hafa uppi á hópi kristinna
trúboða sem týnast í skógum Burma
og fer þangað ásamt þungvopnuð-
um málaliðum. Þar bíður þeirra
hins vegar ekkert annað en fljúg-
andi byssukúlur, sprengju- og eld-
vörpur að ógleymdum boganum
fræga sem kemur víst töluvert við
sögu.
Grét yfir snjóflóðinu í Kaldaljósi
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
0
7
-1
2
3
2
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
á
lfe
lg
ur
4 Gb iPod Nano
fylgir öllum nýju
m
Volkswagen Fo
x.
Fox
iPod
Bluetooth
Kostar bara
18.965 kr. á mánuði
miðað við 50.000 kr. útborgun og bílasamning SP Fjármögnunar
í 84 mánuði. Verð 1.390.000 kr.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Volkswagen Fox er grænn bíll