Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 66

Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 66
Þær Kristín Ásgeirsdóttir og Guð- björg Halldórsdóttir í Yndisauka baka á stundum girnilegt brauð með enn girnilegri fyllingum. Uppskriftina er að finna á heima- síðu þeirra, yndisauki.is, undir heitinu Matarbrauð – súkkulaði- brauð. Það hentar jafn vel undir skinku og ost og súkkulaði og núggatfyllingar, að sögn Kristín- ar. „Á síðunni erum við með parma- skinkufyllingu, en það er líka rosa- lega gott að setja í það skinku, brie- ost og smá mangó-chutney. Svo má nota alls konar grænmeti, og í rauninni hvað sem er,“ sagði hún. „Við kryddum það oft með dukkah- kryddinu sem við framleiðum. Í því er kúmín og alls konar fræ sem gefa því nýja vídd.“ Ferskar krydd- jurtir fara líka afar vel í brauðið. „Alveg í bunkum helst,“ sagði hún og hló við. „Það er tilvalið að nota góða basilíku, til dæmis. Ef maður er með rósmarín eða timjan þarf bara að passa að taka allt af stilk- unum,“ benti hún á. Þá er einnig lítið vandamál að skipta hveitinu, eða einhverjum hluta þess, út fyrir spelt. „Það má breyta hlutföllunum eftir henti- semi, ef maður vill til dæmis hafa smá rúg í brauðinu,“ sagði Kristín. Fyrir sælkerana er svo um að gera að leita á náðir súkkulaðisins. „Ef maður vill virkilega sukka er hægt að setja súkkulaði, mjúkt núggat og hnetur, það er mjög gott,“ sagði Kristín. Brauð fyrir alla Hrísgrjón og kartöflur slást um titilinn sem vinsælasta meðlætið. Soðin hrísgrjón, sama hvort um ræðir hvít eða brún, geta þó orðið leiðigjörn til lengdar. Þá er um að gera að fá innblástur úr indversku eldhúsi, til dæmis, þar sem grjón- in eru blönduð kryddi til að gera úr þeim ljúffenga rétti. Í indversk- um hrísgrjónum er oft gripið til kardimommu og kúmíns til að gera krydduð grjón. Kóríander virkar einnig vel. Réttirnir þurfa þó ekki að tak- markast við innblástur úr austri. Það má til dæmis blanda þurrkuð- um ávöxtum eða ristuðum hnetum í tilbúin grjón, eða rifnum par- mesanosti og basilíku. Einnig má hreinlega sjóða grjónin í blöndu af kjúklingasoði og hvítvíni, eða hefja leikinn á að léttsteikja hvít- lauk á pönnu, bæta grjónum út í og sjóða í kjúklingasoði. Gómsæt hrísgrjón Elín Edda Árnadóttir eldar eftir árstíðum. Hún gefur uppskrift að steinbít krydd- uðum með nornaseiði. Elín Edda er leikmynda- og bún- ingahöfundur. Hún hefur afskap- lega gaman af að elda, og tekur mikið tillit til dagatalsins í sinni matargerð. „Á haustin á maður að borða vel af þessum íslenska mat sem er að koma á matarborðið. Maður á að nota rófurnar og íslenska kálið sem mest á þessum tíma, það er best núna,“ sagði Elín. Hún er einnig mjög hrifin af græn- metisfæði. „Ég er mjög flinkur grænmetiskokkur af því að mað- urinn minn er grænmetisæta. Ég er vön því til margra ára að elda eitt fyrir strákana og annað fyrir manninn minn,“ sagði hún. „Nú erum við orðin tvö eftir, þannig að við förum aðeins meira á ein- hverja af þessum léttu grænmet- isstöðum sem eru víðs vegar um borgina,“ sagði Elín. Hún er nýsnúin heim eftir ferð sumarsins, sem bar hana að þessu sinni til Berlínar og Prag. „Þetta var algjörlega frábær tími, þessar sex vikur,“ sagði hún. „Í Berlín er rosalega mikil dýnamík í gangi og mikil von. Það var mikið af ungu fólki og augljóslega mikill upp- gangur á öllum sviðum,“ sagði Elín. Þaðan lá leiðin til Prag, þar sem hún dvaldist í listhúsinu Leifsbúð. „Það er framtak Þóris Gunnars- sonar, ræðismanns Íslands í Tékk- landi, og eiginkonu hans, Ingi- bjargar Jóhannsdóttur,“ útskýrði Elín. „Þau hafa útbúið gamalt brugghús þarna í nágrenni Prag sem listhús fyrir íslenska lista- menn, sem maður sækir um að fá að dveljast í,“ bætti Elín við, en hún var himinlifandi yfir tæki- færinu. „Þetta var afskaplega gef- andi sumar og mikið örlæti af þeim hjónum,“ sagði hún. Elín Edda gerir kartöflumús úr möndlukartöflum, smjörklípu og dálitlu salti með steinbítnum, og mælir einnig með sósu úr sýrðum rjóma. Hún hrærir þá sýrða rjóm- ann upp og kryddar með salti og pipar. Berið fram með góðu hvít- víni. Bjóddu … í kaffi og köku, upp á gamla mátann, ein- hverja helgina í haust. Ef þú treystir þér ekki í hnallþórugerð er alltaf hægt að svindla og skjótast út í bakarí að morgni dags. Veitingastaður Agnars Sverrissonar og Xavier Rousset, Texture, var opnaður fyrir almenningi í London fyrir viku síðan. Agnar sagði viðtökur hafa verið góðar, þegar Frétta- blaðið ræddi við hann. „Það var fullt fyrstu þrjá dagana. Við verðum alltaf með lokað á sunnudögum og mánudög- um, en á laugardaginn þurftum við að vísa fjörutíu, fimmtíu manns frá. Þetta byrjar mjög vel,“ sagði Agnar. Opnun staðarins var frestað nokkrum sinnum, en upphaflega var stefnt á að staðurinn lyki upp dyrum sínum í júní. „Þannig er þetta bara,“ sagði Agnar. „En nú virðist ætla að verða brjálað að gera, sem er frábært,“ bætti hann við. Texture vel tekið í London Stropað svartfuglsegg skrítnasta máltíðin

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.