Fréttablaðið - 13.09.2007, Síða 72
KR og Valur mætast í
kvöld á KR-vellinum í opinberum
úrslitaleik um Íslandsmeistaratit-
ilinn í Landsbankadeild kvenna.
Liðin eru jöfn að stigum þegar
tvær umferðir eru eftir og sigur-
vegari kvöldsins verður því með
pálmann í höndunum.
„Það er frábært að fá svona
hreinan úrslitaleik og bara
skemmtilegt að mótið skuli þróast
svona. Auðvitað hefðum við í
Breiðabliki vilja eitthvað kroppa í
þessi lið en það er gott fyrir
kvennafótboltann að fá svona leik
í lok mótsins,“ segir Jörundur Áki
Sveinsson, þjálfari Breiðabliks,
sem spáir spennandi leik.
„Þetta eru mjög jöfn og áþekk
lið. Það verður því mjög spenn-
andi að sjá hvernig þessi leikur
fer og synd að við hin í deildinni
skulum ekki fá að fylgjast með,“
segir Jörundur Áki sem mun
stjórna Breiðabliki á móti Fjölni á
sama tíma. Jörundur Áki á erfitt
með að spá um úrslit en segir Vals-
liðið vera sigurstranglegra. „Fyrir
fram myndi maður ætla að Valur
væri sigurstranglega liðið ekki
síst þar sem Margrét Lára virðist
vera alveg óstöðvandi. Margrét
Lára hefur kannski skorað lung-
ann úr mörkum Valsliðsins þá
dreifist skorunin meira hjá KR-
liðinu og það er helst það sem er
einn helst ólíkt með þessum liðum.
Margrét Lára hefur oft verið sá
leikmaður sem klárar leikina fyrir
Valsliðið og KR-ingar þurfa að ein-
beita sér að því að stoppa hana,“
segir Jörundur en það er annað
sem háir KR-liðinu.
„KR-ingar eru á heimavelli en
hafa á móti misst Katrínu Ómars-
dóttur sem ég tel vera mikinn missi
fyrir þær. Það gæti sett svolítið
strik í reikninginn að hafa hana
ekki þar sem hún var klárlega einn
af betri ef ekki besti leikmaðurinn
í fyrri viðureign þessara liða í
sumar. Það getur samt vel verið að
KR-ingar þjappi sér saman og þá
er aldrei að vita hvað gerist. Valur
er búinn að missa Dóru Maríu út til
Bandaríkjanna og það skiptir miklu
máli fyrir Valsliðið þar sem hún er
lykilmaður í liðinu. Það eru því
sterkir leikmenn fjarverandi í
báðum liðum,“ segir Jörundur Áki
sem býst ekki við að Elísabet Gunn-
arsdóttir, þjálfari Vals, spili upp á
jafnteflið.
„Val nægir svo sem jafntefli en
ég á ekki von á að Valsliðið spili
upp á jafnteflið. Ég trúi ekki öðru
en að Elísabet vilji vinna leikinn.
Valsliðið er í hörku formi, var í
Evrópukeppni og er að fara í Evr-
ópukeppni. Þær eru hundfúlar með
að vera ekki lengur inni í bikar-
keppninni og KR er komið með
aðra höndina á bikarinn,“ segir
Jörundur en KR á möguleika á að
vinna tvöfalt en eini titillinn í
sumar er undir hjá Valsliðinu í
þessum leik.
Leikurinn er á KR-vellinum og
hefst klukkan 17.00. Fyrri leik lið-
anna lauk með 1-1 jafntefli.
Fréttablaðið fékk fulltrúa frá
hinum sjö liðum Landsbankadeild-
ar kvenna til að spá fyrir um úrslit
leiksins og þar hafði KR betur 4-3.
Spá þeirra fylgir hér með.
KR og Valur spila óopinberan úrslitaleik um Íslandsmeistaratitilinn í kvennafótboltanum í kvöld. Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari
Breiðabliks, segir Valsliðið vera sigurstranglegra fyrir fram en fleiri fulltrúar félaga í Landsbankadeild kvenna hafa trú á KR-sigri.
Græt mig nánast í svefn á kvöldin