Fréttablaðið - 13.09.2007, Page 75
Landsbankinn býður 16 ára og yngri á völlinn.
Sækja þarf boðsmiðann í næsta útibú Landsbankans.
LANDSBANKADEILD KVENNA
17. UMFERÐ
fim. 13. sept. kl. 17:00 KR - Valur
fim. 13. sept. kl. 17:30 Þór/KA - ÍR
fim. 13. sept. kl. 17:30 Fylkir - Keflavík
fim. 13. sept. kl. 17:30 Fjölnir - Breiðablik
Englendingar unnu
góðan sigur á Rússum, 3-0, á
Wembley í gær. Englendingar
tóku þar með sex stig í lands-
leikjahrinunni og eru komnir í
annað sæti í sínum riðli og stefna
hraðbyri á EM eftir erfiða byrjun
í riðlinum.
Michael Owen var stjarna
kvöldsins á Wembley en hann
skoraði tvö mörk í leiknum og var
einnig á blaði gegn Ísrael um
síðustu helgi.
„Þetta eru búnir að vera
frábærir dagar. Við töpuðum
fyrir Þjóðverjum fyrir skömmu
en við létum það ekki slá okkur út
af laginu enda vissum við að
þessir tveir leikir skiptu öllu máli
fyrir okkur. Það var gaman að
skora þessi tvö mörk og ekki
síður gaman að vera hluti af
þessu frábæra enska liði á nýjan
leik,“ sagði Owen kampakátur
eftir leikinn. „Það verður ekki
tekið af liðinu að það hefur spilað
frábæran fótbolta í þessum
leikjum.“
Owen raðar inn
mörkum
Undankeppni EM:
Vináttulandsleikir:
Eiður Smári Guðjohnsen
sagði að sigur Íslendinga á Norð-
ur-Írum í gær hafi verið tileinkað-
ur Ásgeiri Elíassyni sem lést á
sunnudaginn síðastliðinn. Lands-
liðsmennirnir báru sorgarband af
því tilefni í leiknum í gær.
„Við erum allir sammála um að
tileinka Ásgeiri sigurinn og vilj-
um við votta fjölskyldu hans
samúð okkar. Við erum nokkrir í
hópnum sem höfum spilað undir
hans stjórn en missirinn er ekki
einungis mikill fyrir knattspyrnu-
heiminn heldur var hann líka frá-
bær persóna sem er mikið sakn-
að.“
Eiður hefur átt við meiðsli að
stríða undanfarna mánuði. „Það er
meiriháttar fínt að vera kominn
aftur í fótbolta og er ég ánægður
með að hafa spilað þessar 35 mín-
útur í leiknum. Leikurinn var þó
ekkert æðislegur. Við buðum hætt-
unni heim í síðari hálfleik en
misstum aldrei trúna og upp-
skárum sigur. Miðað við spila-
mennsku okkar áttum við hann
kannski ekki skilinn en miðað við
þá vinnu sem við höfum lagt í
þessa tvo leiki áttum við þrjú stig
fyllilega skilin.“
Grétar Rafn Steinsson átti þátt í
báðum mörkum íslenska liðsins.
„Það er búin að vera mikil
jákvæðni í kringum liðið frá Kan-
adaleiknum og það hefur verið
stígandi í þessu hjá okkur. Það er
mun skemmtilegra að fara inn á
völlinn og vera á Íslandi þegar
jákvæðni er en ekki neikvæðni.
Það getur verið niðurdrepandi að
koma heim og fá skít og skömm
þrátt fyrir að vera að leggja sig
fram og berjast,“ sagði Grétar.
„Nú er allt annað að koma heim
og það kemur fyrir vikið auka
neisti í menn og þeir eru virkilega
tilbúnir að sýna það og sanna fyrir
þjóðinni að þeir séu að leggja sig
fram. Það gekk allt upp í þessum
tveimur leikjum og leiðinlegt að
við höfum ekki unnið Spánverjana
því við áttum það skilið. Í heildina
litið eru þetta mjög góð úrslit fyrir
okkur sérstaklega þegar við lítum
til baka og sjáum hversu lélegt
þetta hefur verið,” sagði Grétar
Rafn sem var ekki hrifinn af norð-
ur-írska liðinu.
„Svona lið á ekki að fara á stór-
mót. Við erum búnir að taka sex
stig af þeim og það lið sem við
tökum sex stig af á ekki að fara á
stórmót,“ segir Grétar Rafn sem
lítur bjartsýnn fram á veginn.
„Við verðum að halda okkur áfram
á jörðinni en það er frábært að
áhorfendur og fjölmiðlar skuli
þjappa sér að baki okkur og hjálpa
okkur,“ sagði Grétar.
Tileinkum Ásgeiri sigurinn