Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 1

Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 1
 „Það er svo lítill hluti farþega sem greiðir fargjaldið núorðið að ég held að það væri vel þess virði að skoða tillögu Kópa- vogsbæjar um að hafa fargjöldin ókeypis til prufu,“ segir Ármann Kr. Ólafsson, stjórnarformaður Strætós bs. Ármann segir að eftir að nem- endum var gefið frítt í strætó séu tekjur af farmiðasölu orðnar sára- litlar. „Þetta er orðin algjör vit- leysa, það eru kannski tíu prósent sem koma inn með greiddum far- miðum. Það eru um 400 milljónir. Ef við hættum að hugsa um að rukka fargjöld getum við sparað um 50 milljónir. Eftir standa 300 til 350 milljónir. Þetta gæti orðið til þess að búa til strætómenningu á Íslandi,“ segir hann. Reynslan af skólaverkefninu sé góð og vagnar troðfullir á háannatíma. „Ef takmarkið er að létta á gatnakerfinu held ég að það sé þess virði,“ segir Ármann. Vill frían strætó Kjúklingur er sívinsæll á borðum Íslendinga og kunna flestir að hrista hina ýmsu kjúklingarétti fram úr erminni. Oft vill þó brenna við að rétturinn ve ði í Ingvar segir ekki þurfa neina sósu með kjúkl því hann verði f Yfirfór kjúklingarétti og féll alveg fyrir þeim 9. OKTÓBER 2007 Friðrika Hjördís Geirsdóttir fjölmiðlakona og matargúrú á von á öðru barniPLOTTAR YFIRPOTTUNUM Íhugun, heilsa og bardagi Magnús Ólafsson stígur á svið í sextugasta sinn heilsa & hreyfing FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2007 + Nánari upplýsingar og bókanir á www.icelandair.is Sölutímabil: 8. til og með 11. nóvember. Ferðatímabil: 1. til og með 17. desember. Takmarkað sætaframboð. kr. að ra le iði na til U SA Til bo ðs ve rð fr á Ólafur Egill Egilsson hefur afþakkað laun fyrir leik sinn í Stundinni okkar. Ástæðuna segir Ólafur einfalda, launin séu ekki samboðin þeirri vinnu sem þyrfti að leggja í verkið. „Þetta eru fimmtán þúsund krónur fyrir fimm tíma í upptökuveri eftir skatt,“ segir Ólafur. Páll Magnússon sagði þetta einsdæmi. Hann sagðist ekki vita til þess að leikarar hefðu verið vanhaldnir fyrir leik sinn hjá RÚV, sem borgaði leikurum hæstu taxtana í bransanum. Afþakkaði laun fyrir Stundina Orrustuþotur franska flughersins verða gerðar út frá Keflavíkurflugvelli til loftrýmiseftir- lits í íslensku lofthelginni um fimm til sex vikna skeið á komandi vori. Frá þessu greindi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra er hún flutti Alþingi skýrslu sína um utanríkismál í gær. „Í morgun gafst aðildarríkjum NATO möguleiki á að bjóða fram flugsveitir til loftrýmiseftirlits á Íslandi á næstu tveimur árum. Viðbrögð bandalags- ríkja voru mjög jákvæð,“ sagði ráðherra. Auk Frakka hefðu Bandaríkjamenn boðist til að koma með flugsveitir hingað næsta sumar í tvær til þrjár vikur í senn, og aftur sumarið 2009. Þá hafi Norð- menn lýst áhuga á að taka þátt á næsta ári og bæði Danir og Spánverjar væru að skoða þátttöku árið 2009. Þá kváðust Hollendingar og Kanadamenn og jafnvel fleiri bandalagsþjóðir íhuga að taka þátt. Ingibjörg staðfesti að sem gistiríki bæru íslensk stjórnvöld kostnað af viðveru erlendu flugsveitanna í samræmi við það hlutverk, en það felst aðallega í að sjá gestunum fyrir aðstöðu á Keflavíkurflugvelli og ýmissi stoðþjónustu. Þá er ratsjárkerfið forsenda fyrir því að hægt sé að halda úti slíku lofthelgiseftir- liti með NATO-herþotum. „Ef við ætlum yfir- leitt að lifa á landinu þurfum við eitthvað til að vinna við,“ segir Ólafur Áki Ragnarsson, bæjar- stjóri sveitarfélagsins Ölfuss, spurður um neikvæða afstöðu Hvergerðinga til Bitruvirkjunar. Skipulags- og byggingarnefnd Hveragerðisbæjar hefur alfarið lagst gegn framkvæmdinni og telur hana hafa afar skaðleg áhrif á möguleika bæjarins sem íbúðar- og ferðamannasvæðis. Svæðið sé enda á náttúruminjaskrá. „Það er margt annað sem fellur með þessari virkjun. Það er búið að gefa vilyrði fyrir þessu raf- magni til uppbyggingar og álvers í Helguvík,“ segir Ólafur. „Það væri þá eitthvað nýtt sem þjóðin þyrfti að taka á í heild sinni ef það ætti að hætta að nýta auðlindirnar okkar. Við lifum ekki á loftinu einu saman, það er alveg á hreinu.“ Afstaða Hvergerðinga til Bitru- virkjunar komi á óvart en hafi ekki bein áhrif á áformin. Sveitar- félagið haldi ótrautt áfram með framkvæmdina og Skipulags- stofnun ákveði þá hvort hún hafni umhverfismatinu eða ekki. „Svo hefur sveitarfélagið úrslitavald að lokum og getur tekið aðra ákvörðun en Skipulagsstofn- un, eins og við gerðum með nám- una í Ingólfsfjalli,“ segir Ólafur. Spurður um áhrif þess að Orku- veitan sjálf hætti við virkjunina, eins og Dofri Hermannsson, tals- maður borgarstjórnarflokks Sam- fylkingar í umhverfismálum, úti- lokar ekki, segir Ólafur að vilyrði Orkuveitunnar um rafmagnsfram- leiðslu til álversins hafi verið gefið í tíð Reykjavíkurlistans. „Þannig að það væri mjög sér- stakt ef það ætti að bakka með það núna. Það myndi margt fara á annan veg í landinu ef það yrði hætt við þessa virkjun. Hún er unnin í sátt við náttúruna og ef ekki er hægt að reisa slíkar virkj- anir er fokið í flest skjól hjá okkur Íslendingum.“ Fokið í flest skjól ef við virkjum ekki Sveitarstjóri Ölfuss segir að neikvæð afstaða Hver- gerðinga til Bitruvirkjunar hafi ekki úrslitaáhrif. Rafmagnið hafi verið eyrnamerkt álveri í Helguvík.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.