Fréttablaðið - 09.11.2007, Qupperneq 4
Veist þú hver lífeyrisréttindi þín eru?
• Er skylt að greiða í lífeyrissjóð?
• Hvað felst í lífeyrissréttindum?
• Hvers vegna þarf að greiða skatt af lífeyrisgreiðslum?
• Hvaða ávinningur er fólgin í því að greiða í lífeyrissjóð?
Svörin við þessum spurningum og fjölda annarra væri
sannarlega gott að vita og þú finnur þau á www.gottadvita.is
www.gottadvita.is
Hæstiréttur hefur
staðfest farbann yfir pólskum
manni sem grunaður er um að
hafa nauðgað konu á Selfossi í lok
síðasta mánaðar. Manninum hefur
verið bannað að yfirgefa landið til
17. desember, eða þar til máli
hans er lokið.
Lögreglustjórinn á Selfossi
krafðist farbanns yfir manninum
í Héraðsdómi Suðurlands.
Maðurinn væri erlendur ríkis-
borgari og því væri hætta á því
að hann reyndi að komast úr landi
til að koma sér undan málsókn
eða fullnustu refsingar. Héraðs-
dómur féllst á þessi rök og
Hæstiréttur einnig.
Sætir farbanni
til 17. desember
Fyrirhugaðar
breytingar á heilbrigðiskerfinu
sem sagt var frá í Fréttablaðinu í
gær eru byggðar á vinnu svokall-
aðrar Jónínunefndar, segir Val-
gerður Sverrisdóttir, vara-
formaður Framsóknarflokksins.
Hún segir að þar sem eftir sé að
útfæra hugmyndina nánar sé
erfitt að taka afstöðu til hennar.
Ætlunin er að koma á laggirnar
innkaupastofnun sem mun kaupa
þjónustu í heilbrigðiskerfinu af
heilbrigðisstofnunum, og skilja á
milli kaupenda og seljenda.
„Það eru vissulega dálítil tíðindi
ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að
fjölga ríkisstofnunum og fara
skandinavísku leiðina, sem hefur
ekki alltaf verið hátt skrifuð á
þeim bænum,“ segir Valgerður.
Hún telur þó fjárhagsvanda stofn-
ana stóra vandann sem ráðherr-
ann þurfi að beita sér í.
„Við erum mjög á varðbergi
gagnvart þessum hugmyndum ef
þær eru yfirskin eða undirbúning-
ur undir það að einkavæða meira í
heilbrigðiskerfinu og velta kostn-
aði yfir á neytendur,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon, formaður
Vinstri grænna.
Hann segir að með þeim breyt-
ingum sem nú séu boðaðar sé stutt
í hugmyndafræði einkavæðingar-
innar. Vinstri græn geri fyrirvara
við allar breytingar í þá átt, og
standi vörð um eitt opinbert heil-
brigðis- og tryggingakerfi. Slík
kerfi hafi sýnt yfirburði sína
samanborið við blandaðri kerfi.
„Það er stefna Samfylkingar-
innar að aðskilja kaupendur og
seljendur þjónustunnar, og hefur
verið það undanfarin misseri,“
segir Ágúst Ólafur Ágústsson,
varaformaður Samfylkingarinnar.
„Að sjálfsögðu stöndum við vörð
um það grundvallaratriði að
aðgengi að heilbrigðisþjónustunni
verði óháð efnahag, og eftir því
grundvallarmarkmiði mun ríkis-
stjórnin starfa,“ segir Ágúst.
Pólitísk samstaða er í ríkis-
stjórn um fyrirhugaðar breytingar
á heilbrigðiskerfinu, enda í sam-
ræmi við stjórnarsáttmála, segir
Ágúst Ólafur. „Þetta er löngu tíma-
bær breyting, við sjáum að hinar
Norðurlandaþjóðirnar hafa tekið
þetta skref. Markmiðið er auðvit-
að að þjónustan batni og pening-
arnir verði nýttir betur.“
Vilja útfærslu á breytingum
Fulltrúar Framsóknar og VG taka fyrirhuguðum breytingum heilbrigðisráðherra á heilbrigðiskerfinu með
fyrirvara. Varaformaður Samfylkingarinnar segir samstöðu um breytingarnar innan ríkisstjórnarinnar.
Tveggja ára ind-
verska stúlkan sem gekkst undir
27 tíma aðgerð á þriðjudag og
miðvikudag þar sem aukaútlimir
og aukalíffæri voru fjarlægð
sýndi góð batamerki í gær að
sögn lækna.
„Lakshimi hefur hreyft tær og
hendur í fyrsta skipti og opnaði
augun í stutta stund,“ sagði
yfirlæknirinn Sharan Patil við
blaðamenn í gær.
Lakshimi fæddist með útlimi og
sum líffæri tvíbura sem hætti að
þroskast í móðurkviði. Yfir
þrjátíu skurðlæknar tóku þátt í
aðgerðinni, sem tókst það vel að
vonast er til að stúlkan sleppi
alveg við að fara aftur í meiri
háttar aðgerð.
Hreyfði bæði
tær og hendur
Mannlaust einbýlishús við Grettisgötu
61 skemmdist mikið í eldi aðfaranótt fimmtudags.
Tilkynnt var um eldinn laust eftir klukkan tvö og
voru allar stöðvar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
sendar á staðinn þar sem ekki var vitað hvort fólk
væri í húsinu. Ekki var talið að hætta steðjaði að
nærliggjandi húsum en í öryggisskyni var sambyggt
hús rýmt á meðan slökkvistarf stóð yfir. Slökkvistarf
gekk vel og lauk á fimmta tímanum um nóttina.
Eldsupptök eru ókunn en rannsóknardeild lögregl-
unnar útilokar ekki íkveikju.
Húsið sem brann er bárujárnsklætt timburhús sem
eigandi þess hyggst gera upp en það skemmdist
aðallega að innan. Þurfti meðal annars að rjúfa
milligólf og þak til að slökkva eldinn að fullu.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur
lögregla ítrekað haft afskipti af fólki sem þar hefur
hafst við vegna linnulausrar óreglu og ónæðis. Hafa
meðal annars ítrekað komið upp mál vegna fíkniefna-
brota og þýfi og vopn verið gerð upptæk. Íbúar á
Grettisgötu hafa kvartað undan ónæðinu marga
undanfarna mánuði og lögregla haft samband við
eiganda hússins vegna þessa.
Lögregla útilokar ekki íkveikju