Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 13

Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 13
Ti lb oð ið g ild ir til 2. 11 .2 00 7 og a ðe in s v ið S m ár at or g. F yr irv ar i v ar ða nd i p re nt vi llu r o g vö ru fra m bo ð. 1.999,- AÐEINS 100 EINTÖK Í BOÐI. TILBOÐ: ÞÚ SPARA R 2.000 ,- 1.849,- AÐEINS 100 EINTÖK Í BOÐI. TILBOÐ: ÞÚ SPARA R 1.850 ,- 1.749,- AÐEINS 100 EINTÖK Í BOÐI. TILBOÐ: ÞÚ SPARA R 1.750,- 749,- AÐEINS 120 EINTÖK Í BOÐI. TILBOÐ: ÞÚ SPAR AR 750 ,- 8.999,- AÐEINS 30 EINTÖK Í BOÐI. TILBOÐ: ÞÚ SPARA R 9.000 ,- SMÁRATORG 3, 200 KÓPAVOGUR. sími 5500 800 124658 BARBIE HÚS Á 3 HÆÐUM Með raunsæislegum hljóðum, mörgum herbergjum og stiga. Meira en 60 hlutir. Húsið er 90 sm hátt. Notar 3 C-rafhlöður og 2 E-rafhlöður. Venjulegt lágvöruverð er 17.999,- OPIÐ LENGIALLA DAGAVirka daga 10-19 Nema fi mmtudaga 10-21 Laugardaga 10-18 Sunnudaga 12-18 222593 CUSTOM GARAGE Notar 2 E-rafhlöður. Margar gerðir í boði. Venjulegt lágvöruverð er 1.499,- 431279 DISNEY PRINSESS-KJÓLAR 4 stk. í tösku. Með Öskubusku-, Mjallhvítar-, Þyrnirósar- og fegurðardísarkjólum. Hárband við hvern kjól. Venjulegt lágvöruverð er 3.699,- 520824 TOY STORY RAFMAGNS BUZZ Með fl ugskeytum og handfall- byssu. Notar 3 C-rafhlöður. Venjulegt lágvöruverð er 3.499,- 531304 PONY HÁRSKERASETT Pony-fjölskylda sem samanstendur af 2 stórum smáhestum (30 sm), 2 folöldum (15 sm) og litlum smáhesti (10 sm). Með síðu tagli og faxi. Innifalið er hárskraut, límmiðar, greiða, bursti og hárþurrka. Notar 1 C-rafhlöðu. Venjulegt lágvöruverð er 3.999,- Gera á tilraun með sér- stök ríkisnetföng sem auðvelda eiga samskipti borgaranna við hið opinbera hjá Þjóðskrá á næsta ári. Lagt er til í fjárlögum ársins 2008 að fimm milljónir króna verði lagðar til verkefnisins. „Þetta er bara hugmynd, og til- raunin verður gerð til að kanna hvort það sé eitthvað vit í þessu,“ segir Skúli Guðmundsson, skrif- stofustjóri Þjóðskrár. Hugmyndin er sú að hver ein- staklingur geti fengið úthlutað einu föstu netfangi sem hann geti notað til að eiga örugg samskipti við opinbera aðila, segir Skúli. Einnig myndu opinberir aðilar og fyrirtæki fá slík netföng. Ríkis- netföngin myndu þannig virka eins og nokkurs konar heimilis- fang viðkomandi í netheimum, og vera bundin við persónu viðkom- andi með svipuðum hætti og kenni- talan. Netföngin yrðu sýnileg og aðgengileg til að auðvelda sam- skipti. „Þetta er bara tilraun sem menn voru að biðja um peninga fyrir,“ segir Skúli. Hann segir lítið hægt að ræða framtíð verkefnisins fyrr en ljóst verði hvort Þjóðskráin fái þær fimm milljónir króna sem lagt er til að renni til verkefnisins á fjár- lögum. Gera tilraun með ríkisnetföng Á heimasíðu forseta Íslands segir að forsetinn hafi fundað með áhugaaðilum um sjónvarpsrekstur þar sem rætt var um nýlega ferð forseta til Kína. Örnólfur Thorsson, forseta- ritari, segist ekki geta gefið upp hverjir áhuga- aðilarnir eru. Þá segir hann forseta eiga fundi með ýmsum aðilum um viðskiptatækifæri erlendis. „Á heimasíðunni gerum við grein fyrir fjölmörgum fundum forseta og öðrum atburðum sem hann tekur þátt í. Rétt er þó að taka fram að forseti á einnig fjölmarga fundi með einstakling- um, sem ekki er gerð grein fyrir á heimasíðunni.“ Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fór nýlega til Kína þar sem hann kynnti sér viðskipti milli ríkjanna og ræddi við forseta landsins. Ræddu Kína við forsetann Fjórir þingmenn Vinstri grænna, fjórir þingmenn Samfylk- ingar og Siv Friðleifsdóttir úr Framsóknarflokki hafa lagt fram frumvarp á Alþingi um að kaup á vændi verði gerði refsiverð. Refsing fyrir athæfið verði sektir eða fangelsi allt að einu ári. Frumvarpið byggir á „sænsku leiðinni“, en með því er ætlunin að sporna gegn eftirspurn eftir vændi með því að gera kaup á vændi refsiverð. Þingmennirnir níu benda á að könnun Capacent Gallup í mars hafi leitt í ljós að sjötíu prósent landsmanna væru hlynnt eða mjög hlynnt sænsku leiðinni. Vilja banna kaup á vændi Hafrannsóknaskip- ið Árni Friðriksson er lagt af stað í loðnu- og sjórannsóknaleiðang- ur. Aðalmarkmið leiðangursins eru að leita ungloðnu og einnig kynþroska loðnu sem verður uppistaða veiða árið 2008. Rannsóknasvæðið spannar allt frá Vesturlandi að Norðaustur- landi auk djúpmiða á Grænlands- sundi og Íslandshafi. Jafnframt verður ársfjórðungslegum sjórannsóknum vestur og norður af landinu sinnt. Gert er ráð fyrir að leiðangurinn standi yfir í allt að einn mánuð. Loðnuleit við Ísland hafin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.