Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 18

Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 18
fréttir og fróðleikur Lýðveldið Ísland er „öflugt smærra ríki“ í alþjóða- samfélaginu. Þessu lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra yfir er hún tók saman aðalatriði skýrslu sinnar um utanríkis- mál sem hún flutti Alþingi í gær. „Það er dýrmætt að ógna engum, geta gengið fram óbundin af annar- legum hagsmunum, vera þekkt fyrir að standa með alþjóðalögum í hvívetna og eiga viðskipti á heiðar- legum grunni,“ sagði Ingibjörg í lok skýrslu sinnar, sem var sú fyrsta um framkvæmd utanríkis- stefnu Íslands sem hún flutti á Alþingi frá því hún tók við embætti í vor. Í ræðunni boðaði Ingibjörg ýmsar áherzlubreytingar. Hún tók fram að hún myndi í janúar flytja Alþingi sérstaka ræðu um Evrópu- mál og fjallaði hún því ekkert um þau nú. Hún sagði að þessa fyrstu mán- uði sína í embætti hafi öryggis- og varnarmál borið hæst „enda ærið verkefni að leiða til lykta yfirtöku Íslands á eigin öryggi og vörnum“. Þar hafi „því miður verið ýmsir lausir endar sem hnýta þurfti“. Meðal nýjunga sem Ingibjörg vakti athygli á í ræðunni var að hún hefði gengizt fyrir því að alþingismönn- um sem sæti eiga í utanríkismála- nefnd yrði, í krafti starfs síns í nefndinni, veitt öryggisvottun NATO. „Vegna þessa hefur utanrík- ismálanefnd nú fengið aðgang að fundargerð NATO-ráðsins frá 4. október 2001 og geta nefndarmenn því gengið úr skugga um það, eins og ég hef þegar gert sjálf, að NATO veitti ekki heimildir til fangaflugs, leynifangelsa eða pyntinga eins og látið hefur verið í veðri vaka í umræðunni,“ sagði ráðherrann. Þá sagði ráðherra norðurslóðir vera nýtt kjarnamál í íslenzkri utanríkisstefnu. „Á norðurslóðum eru miklir hagsmunir í húfi eins og við vitum öll og öryggi á Norður- Atlantshafinu er tvímælalaust eitt mest áríðandi öryggismál Íslands.“ Ísland muni beita sér fyrir mótun nauðsynlegra leikreglna á norður- slóðum. Þar verði alþjóðalög að vega þyngra en hnefaréttur. Í þessu sambandi vakti Ingibjörg enn fremur athygli á að Bandaríkin séu nú nær því að gerast aðilar að hafréttarsamningi Sameinuðu þjóð- anna en nokkru sinni áður frá sam- þykkt hans árið 1982. Mannréttindi eiga að vera óaðskiljanlegur þáttur í utanríkis- stefnu Íslands og „samofin öllu okkar atferli á alþjóðavettvangi,“ sagði Ingibjörg. Til að staðfesta þetta í starfi utanríkisþjónustunn- ar hafi hún skipað starfshóp sem muni í næsta mánuði skila til sín til- lögu að heildstæðri aðgerðaáætlun á sviði mannúðar-, friðar- og þróun- arsamvinnumála. Markmiðið sé að mannréttindasjónarmið verki svikalaust á þróunarsamvinnu, öryggismál, friðargæzlu og við- skiptasamninga. Ingibjörg boðaði stofnun lands- nefndar um mannúðarlög, sem hafa skyldi það hlutverk að veita stjórn- völdum ráðgjöf varðandi túlkun og framkvæmd alþjóðlegra mannúð- arlaga og breiða út þekkingu á þeim. Hún áréttaði þá afstöðu ríkis- stjórnarinnar að baráttuna gegn hryðjuverkum megi aldrei heyja á kostnað mannréttinda og að virða skyldi alþjóðlegar mannúðar- og mannréttindareglur skilyrðislaust í þeirri baráttu. Um þróunarmál sagði Ingibjörg að í sumar hefði farið fram mikil vinna á vegum ráðuneytisins við að móta nýja rammalöggjöf um alþjóðlegt starf Íslands gagnvart þróunarríkj- um. Til grundvallar þeirri vinnu liggi svonefnd Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna, en það eru átta skilgreind markmið sem sam- tökin vilja ná fyrir árið 2015. Þau miða að því að bæta hag íbúa þró- unarríkja með því að útrýma fátækt og hungri, bæta heilsufar, vinna að jafnrétti kynjanna, betri menntun og umhverfisvernd og stuðla að hnattrænni samvinnu um þróun. „Leiðarljós allrar þróunarsam- vinnu Íslendinga er og á að vera að styðja þróunarlöndin til sjálfs- bjargar í efnahags- og velferðar- málum og þar er ekkert verkefni mikilvægara en menntun og miðlun þekkingar,“ sagði Ingibjörg. Þá sagðist hún leggja sérstaka áherzlu á að málefni kvenna og barna yrðu sett í forgrunn í allri þróunarsam- vinnu Íslendinga. Aukin framlög Íslands til þróun- armála haldist í hendur við þessi markmið. „Sem auðugu ríki ber okkur skylda til að stefna mark- visst að því að verða í hópi þeirra ríkja sem mest leggja fram til þró- unarmála miðað við verga lands- framleiðslu,“ sagði Ingibjörg. Þetta hlutfall verði komið upp í 0,35 pró- sent á árinu 2009 og eftir það verði áfram unnið að því að nálgast mark- miðið um 0,7 prósent af landsfram- leiðslu, sem SÞ hafa síðan árið 1970 hvatt ríku löndin til að gera. Um þátttöku Íslands í friðargæzlu lagði Ingibjörg áherzlu á að Íslenzka friðargæzlan væri borgara- leg starfsemi. „Segja má að í upp- hafi hafi friðargæzluverkefnin ekki verið nægilega vel skilgreind og réttarstaðan hafi verið óljós,“ sagði Ingibjörg. Úr þessu hafi verið bætt að hluta með nýjum lögum sem samþykkt voru fyrr á þessu ári, þar sem skýrt er kveðið á um borgaralega skilgreiningu á starfs- sviði Íslenzku friðargæzlunnar. „Þá áherzlu mun ég leitast við að skerpa áfram,“ sagði Ingibjörg. Framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna lýsti Ingi- björg sem „skrefi til fullnustu sjálf- stæðis þjóðarinnar,“ að Ísland væri rétt eins og aðrar þjóðir fullfært um að sitja við það háa borð. Vert væri að hafa í huga í þessu sam- bandi að fjörutíu af fimmtíu þróun- arríkjum Afríku hefðu þegar setið í ráðinu. Ísland keppir við Tyrkland og Austurríki um tvö sæti í ráðinu tímabilið 2009-2010. Úrslitin ráðast á allsherjarþingi SÞ næsta haust. Framboð Íslands beri einnig að skoða í ljósi breyttra ógna í hnatt- væddum heimi. „Friður og öryggi í heiminum er verkefni ráðsins og áherzlumál Íslands í framboðinu eru einnig augljós áherzlumál í nýrri íslenzkri öryggisstefnu, það er loftslagbreytingar og orkuör- yggi, afvopnunarmál, vernd kvenna og barna á ófriðartímum og frið- samleg lausn deilumála,“ sagði Ingibjörg. Nú sést liðurinn varnarmál í fyrsta sinn á íslenzkum fjárlögum. „Við skulum líta á varnir sem eðlilegan þátt í sjálfstæði þjóðarinnar og frumskyldu stjórnvalda,“ sagði Ingibjörg, en bætti við að útgjöld- um bæri að halda í lágmarki. Þetta síðasta atriði gerði Stein- grímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, að umtalsefni í andsvari við ræðunni. Reiknaðist honum til að allt í allt mætti telja útgjöld Íslendinga til varnarmála á næsta ári nema um einum og hálfum millj- arði króna. Stærstu einstöku liðirn- ir í þessum útgjöldum eru rekstur Ratsjárstofnunar upp á um 800 milljónir og sá fastakostnaður annar sem nú hefur verið færður í fjárlög upp á 538 milljónir. Hann sagðist líka „velta því fyrir sér hvort það sé gleðiefni að fá NATO- ríki með stríðstól sín að leika sér í íslenzkri lofthelgi,“ og átti þar við boðaða þátttöku NATO-ríkja í loft- rýmiseftirliti hérlendis. Eitthvað muni hýsing hinna erlendu flugs- veita kosta íslenzka skattgreiðend- ur og það væntanlega í ofanálag við þennan eina og hálfa milljarð. Steingrímur sagði líka óviðun- andi að enn væri ekki búið að setja á stofn þann þverpólitíska samráðs- vettvang um öryggis- og varnarmál sem boðaður hefði verið allt frá síð- asta hausti. Breyttar áherzlur í utanríkismálum Fjöldamörg mistök kostuðu de Menezes lífið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.