Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 28

Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 28
greinar@frettabladid.is Löggjöf um áfengi hefur í gegnum tíðina reynst íslensk- um stjórnmálamönnum erfið viður- eignar. Það tók 75 ár frá afnámi áfengisbanns þar til loks var sam- þykkt á Alþingi að heimila sölu áfengs öls. Í hvert sinn sem frum- vörp þess efnis voru lögð fram upphófust miklar svartsýnisspár um afleiðingarnar. Fáir vildu nú þá Lilju kveðið hafa. Og þeir sem það gerðu kjósa helst að það liggi í þagnargildi. Í dag yrði nefnilega hlegið að þeirri hugmynd að banna á ný sölu áfengs öls hér á landi. Meðal þeirra sem sáu vitleysuna í bjórbanninu var leiðarahöfundur Morgunblaðsins sem skrifaði hinn 12. apríl 1986: „En því miður er mannskepnan því markinu brennd að hún er hluti af umhverfinu eins og vín- viðurinn og fíkniefnaplönturnar og ásókn í þessa vímugjafa hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda. Það verður ekki frá því tekið úr því sem komið er, því miður, ekki frekar en menn hætta að full- nægja kynþörf sinni vegna þess að það gæti haft í för með sér sjúk- dóma. Maðurinn er langt frá full- kominn, goðkynjuð vera sem stenzt freistingar sínar og getur lifað í hættulegu umhverfi eins og dauðhreinsað væri. Hann mun ávallt þurfa að glíma við vanda- mál eins og áfengis- og fíkniefna- neyslu – og þá er að leita leiða til að uppfræða fólk um þær hættur sem við blasa og kenna því að bregðast við umhverfinu á réttan hátt. Boð og bönn vekja uppreisnar- hug með mönnum og duga í engu.“ Nú, rúmum tuttugu árum síðar, er enn deilt um boð og bönn í áfengismálum. Margar þær sömu röksemdir og heyrðust þá eru not- aðar gegn frumvarpi Sigurðar Kára Kristjánssonar, og sextán annarra þingmanna, um afnám á því fornfálega kerfi áfengisútsölu sem hér er við lýði. Jafnvel þótt hér verði ekki tekið undir málflutning andstæðinga frumvarpsins er vert að gefa mál- flutningi þeirra gaum, sem og þeim mikilvægu varnaðarorðum sem eðlilegt er að heyrist um þann skaða sem áfengi getur sannar- lega valdið fólki. Forvarnir og opinská umræða er holl og nauð- synleg. Þessi sjónarmið vega hins vegar ekki þyngra heldur en eðli- legur réttur hvers fullveðja manns að taka eigin ákvarðanir um líf sitt – hvort sem öðrum kann að finnast þær viturlegar eða ekki. Þetta grundvallarstef frjálslyndra stjórnmála er einn af hornsteinum þess umburðarlynda og opna sam- félags sem flest okkar vilja standa vörð um. En ekki er allt málefnalegt sem lagt er til þessarar umræðu. Þetta á meðal annars við um rit- stjórnarskrif Morgunblaðsins. Í þeim er nú hvorki að finna þá andagift né frjálslyndi sem ein- kenndu skrifin hér að ofan. Þess í stað hafa flutningsmenn frum- varpsins mátt þola að þeim séu gerðar upp illar hvatir, þeir kall- aðir kjánar og þeim hótað öllu illu, bæði leynt og ljóst. „Það er eins og flutningsmenn frum- varpsins séu tilfinningalausir,“ sagði í leiðara Morgunblaðsins 16. október sl., „Þeir hljóta að standa í þessari baráttu vegna misskilinna hugmynda um frelsið,“ sagði leiðarahöfundur 28. október og í Staksteinum 27. október segir að það verði ekki „eftirsóknarverð stjórnmálaleg reynsla fyrir Sigurð Kára og félaga að standa andspænis þeim öflum í Sjálfstæðisflokknum sem barizt hafa gegn frelsi í áfengis- málum“. Þingmenn Sjálfstæðisflokks- ins eru þó sem betur fer fróðari um málefni flokksins heldur en höfundur Staksteina. Þeir vita að landsfundir flokksins hafa samþykkt með miklum meiri- hluta þá stefnu að gefa skuli verslun með áfengi frjálsa. Þeir vita það líka, sem nauðsynlegt virðist að benda sumum á, að kjörnir fulltrúar Sjálfstæðis- flokksins sækja umboð sitt til flokksmanna sjálfra og kjós- enda, en ekki til ritstjórnar Morgunblaðsins. Þegar þetta langþráða baráttu- mál landsfunda flokksins nær fram að ganga er sennilegt að mikill meirihluti landsmanna muni fagni því – og þakka fyrir að íslenska löggjafarsamkundan sé smám saman að láta af þeim hroka að vantreysta venjulegu fólki fyrir innkaupum sínum. Og þeir þingmenn, bæði í Sjálfstæðis- flokknum og öðrum flokkum, sem barist hafa fyrir þessu máli, munu án nokkurs vafa njóta staðfestu sinnar hjá baklandi sínu og samflokksmönnum þegar þeir þurfa næst á stuðningi að halda í prófkjörum. Þeir sem á sínum tíma börðust gegn bjórnum hafa fæstir gaman af því þegar sú forræðishyggja er rifjuð upp. Að sama skapi er líklegt að fáir andstæðingar þessa máls muni vilja láta herma þá afstöðu upp á sig eftir nokkur ár þegar í ljós verður komið að ofstopinn í forræðishyggju- öflunum var alveg jafn óþarfur nú eins og þá. Höfundur er formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna. Hver veit sitt vit best H vert getum við farið án söngs og lags? Hvert sem leitað er hljómar tónlist af einhverju tagi. Útvarps- stöðvarnar flestar byggja tilveru sína á tónlist, sjón- varp væri lítið án tónlistar þótt það sé fæst íslensk tónlist, kvikmyndin, leikhúsið og danssalirnir væru snautleg fyrirbæri án tónlistar. Á samkomustöðum af flestu tagi er tónlist hljómandi. Jafnvel úti við má heyra tónlist úr nálægum ökutækjum, söng úr næstu húsum. Þögnin er horfin okkur, ein meginástæða þess að hingað leitar manngrúi úr þéttbýlum nálæg- um löndum. Tónlistin er einn meginþáttur tilveru okkar, óaðskilj- anlegur hluti lífsins. Það var ekki svo: fyrr á tímum var hún fátækleg fylgikona alþýðu, hjástöð andlegra yfirvalda og haldin frilla hjá yfirstétt- inni. Nú er hún allra. Nálægð hennar býr samt við ríka fordóma, sumpart félagslega, sumpart af hjátrú. Hin svokallaða sígilda tón- list er enn talin af mörgum vera ókunnugleg. Mikill meirihluti fólks sækir ekki tónleika og þekkir ekki þann mikla og dásamlega kraft sem tónlist býr yfir. Sama fólk getur varla séð kvikmynd án þess að njóta áhrifa tónlistar af í í sígildum stíl og skilur hana þá fyrirvaralaust og nýtur til fulls. Eins er með svokallaða framúrstefnutónlist af ýmsu tagi: sumt af henni er reyndar afturhaldssamt stagl, annað í tón- og hljóð- heimum er þess eðlis að vera unnið úr hljóðveröld sem við þekkj- um úr daglegu umhverfi en umbreytt í skipan hljóðskáldsins. Þá fyrst verður það okkur torkennilegt, óárennilegt og fjarlægt. Tónlistarlíf er í miklum blóma á Íslandi. Hér hefur myndast á nokkrum áratugum stór stétt vel menntaðs fólks sem leikur á hljóðfæri. Margt af því stundar kennslu með hljóðfæraleik. Stór hópur stjórnenda af ýmsu tagi hefur föst verkefni þótt enn skorti Sinfóníuhljómsveit Íslands metnað til að byggja upp íslenska stjórnendur og sætti sig við að hafa stjórnanda sem lítur á vinnu sína þar sem íhlaupaverk. Aragrúi tónleika af öllu tagi er í boði. Allt að daglega má sækja tónleika af einhverju tagi. Þeir eru tald- ir í þúsundum, og skipta þar með sér fjöldanum, tónleikar sem sinna hinni menntuðu tónlist og hinir sem sinna tónlist sem stend- ur nær hefð dægurtónlistar. Tónleikahaldið dreifist um landið en sætir víðast hvar sömu móttökum: Íslendingar fara of lítið á tón- leika. Þeir gefa sér ekki tíma til þess, líta ekki á það sem hluta af hversdaglegri önn. Tónlistarskólarnir hafa vaxið og dafnað í skjóli metnaðarfullrar stefnu um rekstur þeirra en á sama tíma er tónlistarmenntun í skólum hornreka. Mikið vantar á að tónlistarmenntun sé djúp- sækinn hluti af almennri menntun, eins og reyndar listiðkun yfir- leitt. Það er stefnuvilla hjá stjórnvöldum að reka ekki kraftmikið tónlistarstarf í grunnskólum. Það skilar sér; árangur íslenskra manna á erlendum vettvangi, mörkuðum og í tónleikahaldi er til kominn fyrir þvermóðskufullan vilja til að halda tónlistarmenntun til streitu í upphafi. Björk varð til vegna tónlistarmenntunar á unga aldri og rétt eins verður að huga að öllum þeim ungu björkum sem nú vaxa úr grasi. Því á dagur tónlistarinnar erindi til okkar. Dagur tónlistarinnar Vil ég afnema einokunarsölu ríkisins á áfengi? Já, því ég er talsmaður frjálsrar verslunar. Vil ég þá að áfengi verði selt í matvöruverslunum? Nei, því ég óttast afleiðingarnar. Í þessari grein ætla ég að benda á þriðju leiðina. En fyrst að ástæðum þess að ég er á móti því að áfengi sé selt í matvöru- verslunum. Aðgengi eykur neyslu og neyslu áfengis fylgja vandamál. Er ég þá forræð- ishyggjumaður? Nei, en áfengi er það mikið eitur að ég leyfi mér að láta skynsemina njóta vafans þegar það er annars vegar. Ég hef enga ástæðu til að treysta matvörukaupmönnum fyrir þessu eitri. Hvar ætla þeir að stilla því fram? Þar sem nammibarinn er núna? Varla! Tölum aðeins um nammi og aðgengi. Aðgengi að nammi hefur stóraukist frá því ég var polli. Reyndar svo mikið að það jaðrar við geðveiki. Skyldi offita hafa aukist? Tannskemmdir? Og hver kallaði eftir þessu aukna aðgengi að nammi? Voru það foreldrar sem fannst freistingum fyrir börn í matvörubúðum ábótavant? Eða voru það hags- munasamtök nammisjúkra barna sem beittu þrýstingi? Meira úrval, aukið magn, lægra verð? Nei, einhverra hluta vegna grunar mig að kaupmenn hafi áttað sig á þeim veikleika barna (á öllum aldri!) að ráða ekki við sig frammi fyrir stórum nammibar. Alveg eins og háskólinn áttaði sig á að spilafíkn er auðlind. Nei, ég held að áfengis-nammibar viti ekki á gott. Það má ekki láta glepjast af orð- skrúði um frelsi, aðgengi og rétt almennings þegar talað er um ávana- efni sem leggur líf hundruða eða þúsunda í rúst árlega. Forræðishyggja er eitt, afneitun annað. Nú kynni ég þriðju leiðina: Einkareknar áfengisverslanir. Leyfi til að selja áfengi í sérverslunum yrðu skilyrðum háð og seld dýrum dómum. Aðeins yrðu gefin út ákveðið mörg leyfi og aðeins yrði ein slík verslun í hverju hverfi, í hverjum bæ. Reglur yrðu settar um opnunartíma og miklar kröfur gerðar til þess sem sæi um reksturinn. Reyndar mætti vera meira um kröfur þegar almenn vínveitingaleyfi eru gefin út. Kröfur um útlit staða, þjónustu, snyrtilegheit og svo fram- vegis. Sérstaklega í miðbænum. En það önnur saga. Höfundur er rithöfundur. Þriðja leiðin

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.