Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 34

Fréttablaðið - 09.11.2007, Side 34
BLS. 2 | sirkus | 9. NÓVEMBER 2007 Heyrst hefur Útgáfufélag 365 prentmiðlar Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@frettabladid.is Bergþóra Magnúsdóttir bergthora@frettabladid.is Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is Sirkusblaðið Skaftahlíð 24 105 Reykjavík, sími 512 5000 Sölustjóri Guðný Gunnlaugsdóttir 512 5462 gunnyg@365.is Konan klippir krullurnar Almenn sátt virðist ríkja um að hluti af sjarma borgarstjórans unga, Dags B. Eggertssonar, sé fólginn í liðuðum hárlokkum hans. Dagur viðurkennir í yfirheyrslu í nýjasta tölublaði Mannlífs að hann láti alltaf klippa sig heima þar sem enginn fái að komast í lokkana hans annar en eiginkonan, Arna Dögg Einarsdóttir læknir. Dagur kemur víða við og svarar mjúkum og hörðum spurningum í bland og er meðal annars spurður út í hinn króníska andstæð- ing sinn Gísla Martein Baldursson. Dagur og Gísli hafa tekist á allt frá framhaldsskóla- árunum þar sem Dagur stundaði nám í MR en Gísli í Versló. Þeir tókust síðan á í stúdentapólitíkinni. Þar var Dagur sigursæll með Röskvu á móti Gísla Marteini í Vöku. Undanfarið hafa þeir svo tekist á í borgarstjórn en Dagur segist síður en svo vera orðinn þreyttur á Gísla sem andstæðingi enda hafi baráttan við hann „gengið býsna vel“ hingað til. Þrátt fyrir stuttan en glæstan feril í stjórn- málum segir Dagur þó að sætasti sigur hans hafi verið fyrsti Íslandsmeistaratitill Fylkis í fjórða flokki árið 1986. „Já við erum að fara gifta okkur og verðum víst bæði að gangast við því, “ segir Ellen Kristjánsdótt- ir söngkona þegar hún er spurð hvort hún og Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður ætli að ganga í það heilaga. Ellen og Eyþór hafa verið saman í 28 ára og eiga saman fjögur börn, þrjár dætur og einn son á aldrinum 10-26 ára. Tilvonandi brúðhjón eru afar samhent og hafa verið viðloðandi tónlistarbrans- ann í áratugi. Ellen var ein af Borgardætrunum ásamt þeim Andreu Gylfadóttur og Berglindi Björk Jónasdóttur. Þær slógu rækilega í gegn í lok síðasta áratugs. Flestir muna sömuleiðis eftir ógleyman- legum flutningi Ellenar á „for“-Eurovision smellin- um „Línudans“ eftir Magga Eiríks svo fátt eitt sé nefnt og hún hefur sungið sig inn í hug og hjörtu Íslendinga. Eyþór er hvað þekkastur fyrir hljóm- borðsleik sinn í hljómsveitinni Mezzoforte auk þess sem hann hefur mikið spilað með djassbönd- um. Í seinni tíð hafa hafa þau sameinað krafta sína og unnið að tónlist sinni. Þau hlutu meðal annars viðkurkenningu biskups fyrir plötuna „Sálmar“ sem kom út árið 2004 og var söluhæsta platan það árið. Fjölskyldan er afar tónelsk og koma allir fjöl- skyldumeðlimir nálægt tónlist, hver með sínum hætti. „Giftingin fer fram í Fríkirkjunni hinn 16. nóvember og brúðkaupsveislan verður haldin í veislusalnum Piknikk úti á Granda,“ segir Ellen og tilhlökkunin leynir sér ekki í röddinni. Piknikk er rekið af ljósmyndaranum og matgæðingnum Áslaugu Snorradóttur, en Áslaug er þekkt fyrir skemmtilegt og óhefðbundið veisluhald. Veislur Áslaugar þykja sveipaðar ævintýraljóma sem ætti að falla vel að tilvonandi brúðhjónum sem þykja með eindæmum rómantísk og eru þekkt fyrir að skapa hugljúfa og allt að himneska stemningu á tónleikum sínum. „Brúðarkjólinn er fundinn, enda hef ég haft mörg ár til stefnu,“ segir brúðurin tilvonandi og hlær við þegar Sirkus spyr hana út í brúðarkjólinn. „Það væri brot á óskráðum brúðkaupslögum að gefa upp slíkar upplýsingar að svo stöddu,“ segir Ellen að lokum. bergthora@frettabladid.is ELLEN KRISTJÁNSDÓTTIR OG EYÞÓR GUNNARSSON GANGA Í ÞAÐ HEILAGA Alheimsfegurðardrottningin og líkamsræktarstöðvareigandinn, Linda Pé, hefur sjaldan litið betur út. Í fyrra fór hún í mikið líkams- ræktarátak með hjálp einkaþjálf- ara sem hefur heldur betur skilað sér í bættu útliti. Þegar hún er spurð að því hvað hún hafi losnað við mörg kíló segist hún ekki hafa talið þau. „Ég mæli þetta frekar í hvernig mér líður, hvort fötin passa og þess háttar. Það er besta vigtin fyrir mig,“ segir Linda. „Ég breytti algerlega um lífsstíl og fór að borða öðruvísi. Ég henti í rauninni engum fæðutegundum út, heldur hugsa betur um hvað ég set ofan í mig. Ég minnkaði reyndar súkklulaðiát töluvert en ég er mikill súkkulaðigrís. Ætli mitt vandamál hafi ekki helst verið það að ég borðaði of lítið og vitlaust. Í dag hugsa ég betur um það sem ég borða og skipulegg oftast hvað ég ætla að hafa í kvöld- mat eitthvað fram í tímann. Mér finnst það hjálpa mikið. Þetta er ekkert flókið, borða heilsusam- legan mat reglulega yfir daginn og hreyfa sig meira,“ segir hún og brosir. Linda æfir þrisvar sinnum í viku. „Svo er að byrja fjögra vikna jólaátak hér í Baðhúsinu um miðjan nóvember sem ég ætla að fara í.“ Hún segist líka fara viku- lega í nudd. „Mér finnst það gera mikið fyrir mig jafnt líkamlega sem andlega. Ég fer aðallega í sogæðanudd en einu sinni í mánuði fer ég í gott slökunarnudd og gef mér tíma til að fara í pottinn og gufuna á eftir.“ Hún bætir því við að heimatökin séu hæg þar sem Baðhúsið bjóði upp á nudd. Þegar hún er spurð út í skemmti- legustu æfingarnar nefnir hún hlaupabrettið. „Það hentar mér best, hröð ganga og hlaup. Svo er ég dugleg að ganga úti með barn og hund um helgar.“ Hvað finnst þér leiðinlegast? „Það er alltaf erfitt að koma sér af stað og bíða eftir að árangurinn skili sér. Um leið og hann fer að sjást leyfir maður sér ekki að finn- ast þetta leiðinlegt því það er svo gaman og spennandi að sjá líkam- ann styrkjast.“ Klæðir þú þig öðruvísi eftir að þú grenntist? „Ég hef nú frekar klassískan fatasmekk þannig að hann hefur ekki breyst neitt ýkja mikið. Er bara í nokkrum númerum minni fötum en áður,“ segir hún alsæl með árangurinn. martamaria@365.is LINDA PÉTURSDÓTTIR HEFUR SJALDAN VERIÐ FLOTTARI Hemur súkkulaðigrísinn í sjálfri sér Þóra Sigurðardóttir rithöfundur FREEPORT Á BAHAMAS RÓMÓ ÚT AÐ BORÐA: Tony Macaroni, yndislegur staður á ströndinni sem er rekinn af fyrrnefnd- um Tony en einungis er hægt að fá einn rétt á staðnum sem heitir conch og er þjóðarréttur Bahamabúa. Á fimmtudögum er hann með karókí og á sunnudögum býður hann upp á djass. Þetta er magnaður staður. MORGUNMATURINN: Egg Benedict úti á verönd heima. Þetta borðum við alltaf á sunnudögum því þetta er svolítið fitandi og við myndum verða hnöttótt fljótlega ef þetta væri alltaf í boði. LÍKAMSRÆKTIN: Göngutúr á ströndinni. UPPÁHALDSVERSLUNIN: Ég verð að segja verslunin Seventeen sem er tískuvöruverslun þeirra Bahamabúa, hún er reyndar ekki alveg jafn smart og Sautján- verslunin á Íslandi. Minnir meira á Kiss í Kringlunni. Tískan þarna er svona: Því skrautlegri því betri. BEST VIÐ BORGINA: Hún er lítil, ekki mikil umferð og alltaf gott veður. Borðar Egg Benedict á sunnudögum HEFUR HAFT NÆGAN TÍMA TIL AÐ VELJA BRÚÐARKJÓLINN

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.