Fréttablaðið - 09.11.2007, Page 46
9. NÓVEMBER 2007 FÖSTUDAGUR
Hádegisleikfimi eða hádegis-
jóga nýtur sívaxandi vinsælda
og eru margir vinnuveitendur
farnir að hleypa starfsfólki sínu
í smá sprikl um miðbik dags
enda er árangurinn ótvíræður.
Á haustin hlaupa margir til og
kaupa sér líkamsræktarkort full-
ir háleitra markmiða um að koma
líkamanum í form. Þegar líða
tekur á veturinn fer þó að draga
úr afköstum á hlaupabrettinu og
gefast margir á endanum upp.
Oft er tímaskorti um að kenna og
getur verið erfitt að koma líkams-
ræktinni við á morgnana eða eftir
vinnu. Fyrir einhverja gæti þá há-
degið verið valkostur. Í Kramhús-
inu er bæði boðið upp á hádegis-
leikfimi og hádegisjóga og ýmsar
fleiri líkamsræktarstöðvar bjóða
upp á svipaða tíma.
„Það eru eingöngu konur sem
sækja tímana hjá mér og marg-
ar fá leyfi hjá vinnuveitanda til
að taka lengri matartíma nokkr-
um sinnum í viku. Þær sem eru
með klukkutíma í mat og vinna í
nágrenninu sleppa því tíminn er
frá rúmlega tólf til tæplega eitt,“
segir Halla Margrét Jóhannes-
dóttir sem kennir hádegisleikfim-
ina. „Það eru um það bil tuttugu
konur sem koma að jafnaði í tím-
ana og eru þær á öllum aldri. Þær
yngstu eru yfirleitt um þrítugt en
sú elsta er rúmlega sjötug,“ segir
Halla Margrét „en hún er reyndar
í einstaklega góðu formi,“ bætir
hún við.
Halla Margrét segir að marg-
ar af þeim konum sem sækja tím-
ana vinni í nágrenni við Kram-
húsið en töluvert er af skrifstof-
um og ríkisstofnunum í kring.
„Við gerum alls kyns æfingar til
að liðka líkamann og er músíkleik-
fimi líklega besta orðið til að lýsa
þessu. Við tökum einhver samba-
og salsaskotin spor til að ná upp
þoli, gerum styrkjandi æfingar
fyrir kvið og bak, teygjur og slök-
un. Á föstudögum erum við svo
með smá dekur, tökum góða slök-
un og höfum gufuna heita.“
Leikfimin er í léttari kantin-
um og á það ekki að taka langan
tíma að losna við rauðu flekkina.
Þær sem koma reglulega segj-
ast mæta endurnærðar til vinnu
á eftir og hafa fulla orku út dag-
inn.“ Halla Margrét segir líka
hægt að breyta til og fara í hádeg-
isjóga á móti leikfiminni. Þá er
líka boðið upp á jóga á morgnana
og í hádeginu um helgar. Halla
Margrét segir flesta vita hversu
mikilvægt það er að standa upp
frá tölvunum og hreyfa sig og
að nokkrar liðkandi æfingar um
miðbik dags geti hreinlega bjarg-
að deginum.
vera@frettabladid.is
Full starfsorka út daginn
Halla Margrét Jóhannesdóttir, leikkona og leikfimikennari, hefur kennt hádegisleik-
fimina í Kramhúsinu síðastliðin þrjú ár. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM