Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.11.2007, Qupperneq 54

Fréttablaðið - 09.11.2007, Qupperneq 54
BLS. 14 | sirkus | 9. NÓVEMBER 2007 SPURNINGAKEPPNI sirkuss Svör: 1. Fanney Lára Guðmundsdóttir. 2.Pétur Pétursson. 3. Blackout. 4. Atli Bollason. 5. Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður. 6. Dísella. 7.Ragnhildur Hjaltadóttir. 8. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal 9.Skrudda ehf. 10. Guðmundur Steingrímsson Davíð Þór 1. Ég hef ekki hugmynd. 2. Pétur Pétursson. 3. Ekki hugmynd. 4. Aldrei heyrt talað um þessa hljómsveit. 5. Ólafur Elíasson. Hannes Heimir barði trumburnar eins og endranær til sigurs. Hannes fékk fimm stig af tíu mögulegum á móti þremur stigum Davíðs Þórs. Davíð Þór skorar á dagskrárgerðarmanninn Ásgrím Sverrisson til að slá Hannes Heimi út af laginu í næstu viku. 1. Hver var kosin fegurðardrottning Norðurlanda nú á dögunum? 2. Hver er aðstoðarmaður nýráðins landsliðsþjálfara karla í knattspyrnu? 3. Hvað heitir nýjasta plata söngkonunnar Britney Spears? 4. Hver er hljómborðsleikari hljómsveitar- innar Sprengjuhöllin? 5. Hvaða íslenski hönnuður hlaut norrænu hönnunarverðlaunin „Ginen“ í haust? 6. Hvaða íslenska söngkona sendi nýverið frá sér plötuna „Solo Noi“? 7. Hver gegnir stöðu ráðuneytisstjóra samgöngumálaráðuneytisins? 8. Hverjir ritstýra myndlistartímaritinu Sjónauka? 9. Hvaða útgáfufyrirtæki gefur út endur- bætta útgáfu af 10 litlum negrastákum? 10. Hver er aðstoðarmaður borgarstjóra? SPURNINGAKEPPNI SIRKUSS HELDUR ÁFRAM GÖNGU SINNI. SLÁTTUR HANNESAR HEIMIS VIRÐIST ÞÉTTUR OG ÖRUGGUR, ALLS HEFUR HANN UNNIÐ 7 MÓTHERJA OG ER AÐ NÁLGAST FJÖLDA SIGRA HELGA SELJANS SEM VORU ÁTTA TALSINS. HÉR MÆTIR HANNES HEIMIR GETTU BETUR-KÓNGINUM DAVÍÐ ÞÓR JÓNSSYNI. 5 RÉTT SVÖR 3 RÉTT SVÖRHannes Heimir 1. Veit það ekki. 2. Pétur Pétursson. 3. Give me more. 4. Veit það ekki. 5. Steinunn Sigurðardóttir. 6. Dísella Lárusdóttir. 7. Anna Júlía Friðbjörnsdóttir og Karlotta Blöndal. 8. Ekki hugmynd. 9. Ég giska á JPV. 10. Guðmundur Steingrímsson. 6. Dísella. 7. Veit ekki. 8. Ég hef aldrei heyrt talað um þetta blað. 9. Edda. 10. Guðmundur Steingrímsson. I nga Lind er ástargyðja,“ segir Sig-ríður Klingenberg spákona um sjónvarpskonuna. „Hún þarf ekki annað en labba niður Laugaveginn og það svífur á alla karlmenn bara við það eitt að sjá augnatillit hennar. Hún hefur verið drottning í fyrra lífi, jafn- vel Kleópatra. Inga Lind er dugleg, heldur vel heimili, er smekkleg og hefði getað verið innanhússarkitekt eða skapað sér starf með eitthvað þesslegt í huga. Inga á alltaf eftir að verða áberandi. Henni þykir gaman að fólki og er hlý og framkvæmdasöm. Hennar markmið í lífinu er að hafa gaman í dag svo allir dagar í kringum Ingu Lind eru skemmtilegir. Inga Lind er dálítill strákur í sér og þar af leið- andi er betra fyrir hana að vinna með strákunum. Konur geta orðið dálítið afbrýðisamar út í Ingu Lind en hún mun ekki skilja af hverju. Hún hefur þann góða sið að tala aldrei illa um náungann og er mikill verndari þeirra sem hún tekur að hjarta sínu. Hún er einlæg, og hefur töluna 3 sem er lista- tala enda er hún eins og listaverk í útliti. Fólk sækir í að vinna með Ingu Lind því hún skapar jafnvægi á vinnu- stað. Hún er búin að vera á ári þar sem hún hefur hugsað mikið um sjálfa sig, ræktað líkamann og hug- ann og kemur einbeitt fram í lífs- orkuna árið 2008. Carry on Inga Lind..“ Inga Lind er ástargyðja INGA LIND KARLSDÓTTIR „Hún þarf ekki annað en labba niður Laugaveginn og það svífur á alla karlmenn bara við það eitt að sjá augnatillit hennar,“ segir frú Klingenberg um sjónvarpskonuna. Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus www.klingenberg.is Í dag kemur út bókin, Ball á Bessastöðum, sem er barnabók eftir Gerði Kristnýju. Bókin fjallar um forsetann og hans daglega líf. ,,Ég hafði verið að lesa norskar barnabækur þar sem kóngurinn kemur gjarnan við sögu. Hann birt- ist til dæmis á svölum hallarinnar og veifar til mannfjöldans og ég fór að velta því fyrir mér hvort ekki gæti verið gaman að semja barnasögu um upp- diktaðan íslenska forseta. Krakkar hljóta að velta því fyrir sér hvernig það sé að vera forseti, hvort það sé eintómt fjör og hvað hann eiginlega geri alla daga,“ segir Gerður. Hún vill þó ekki meina að bókin sé um Ólaf Ragnar. ,,Nei, nei, alls ekki. Hins vegar birtist Ólafur Ragnar sem leynigest- ur í bókinni. Í bókarlok eru myndir af öllum forsetum íslensku þjóðar- innar, sem Halldór Baldursson teiknar eins og allar aðrar myndir í bókinni, og þar er látið líta út fyrir að forsetinn í bókinni taki við af Ólafi Ragnari.“ Ball á Bessastöðum fjallar um forseta sem er nafnlaus og því bara kallaður forsetinn. „Honum er farið að leiðast starfið sitt. Hann fær nefnilega svo mikið af bréfum og þau þarf bæði að lesa og svara að hann hefur engan tíma lengur til að gera neitt skemmtilegt, s.s. að klippa á borða, afhenda verðlaun eða heimsækja leikskóla. Svo er hann eini forseti landsins og veit því ekkert með hverjum hann á að borða í hádeginu. Ritararnir hans bjóða honum aldrei með sér út á Bæjar- ins bestu. Eiginlega langar þennan forseta mun meira til að verða gröfustjóri og einn daginn lætur hann það eftir sér. Við sögu koma líka til dæmis selir, hjóla- brettastelpa, ráðskonan á Bessastöðum, strákur sem missir gleraugun sín út í Tjörnina og veð- urglögg stúlka úr Mývatnssveit. Síðast en ekki síst er sagt frá heilmiklu balli.“ Þegar Gerður Kristný er spurð að því hvort hún þekki Ólaf Ragnar segir hún svo ekki vera. ,,Nei, við erum ekki málkunnug en ég efast ekki um að hann sé dyggur lesandi Sirkuss og eigi því eftir að frétta af bókinni von bráðar.“ Sirkus hafði samband við forsetaskrifstof- un en skrifstofustjórinn, Örnólfur Thorsson, vildi ekkert um málið segja, martamaria@365.is GERÐUR KRISTNÝ SKRIFAÐI BÓK UM FORSETANN: ÓLAFUR RAGNAR ER LEYNIGESTUR Gerður Kristný segir að krakkar hljóti að velta því fyrir sér hvernig líf forsetans sé. BALL Á BESSASTÖÐUM Halldór Gylfason myndskreytti bókina. Aftan á bókinni er ekki hefðbundin höfundarmynd heldur skopteikning af honum sjálfum og Gerði Kristnýju. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ég bjó erlendis í rúm tíu ár og verð að viðurkenna að ég hef ekki séð allar þær íslensku myndir sem hafa verið í boði. Sú mynd sem kemur þó fyrst upp í huga minn er kvikmyndin 1,0 í leikstjórn Marteins Þórssonar. Börn náttúrunnar í leikstjórn Friðriks Þórs er sömuleiðis ein af mínum uppáhalds myndum og ég á mjög erfitt með að gera upp á milli þessara tveggja bíómynda.“ Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður. „Sódóma Reykjavík er lang besta íslenska myndin sem gerð hefur verið hingað til og ein af fáum íslenskum myndum sem hægt er að segja að sé skemmtileg ef frá eru taldar „Lífs“-myndir Þráins Bertelssonar. Í þá daga virtust íslenskir kvikmyndagerðarmenn lengst af leggja upp með það að vera leiðinlegir og láta landlægt skammdegisþunglyndi eitra kvikmyndir sínar. Gegn þessari brenglun sigldi Óskar Jónasson, í kjölfar Þráins, með sinni einföldu og léttleikandi gamanmynd sem sýndi og sannaði að það var hægt að gera íslenskt bíó án þess að notast við haglabyssur og tilgangslausa nekt (Þráinn flaskaði á því). Í Sódómu fór saman góður leikur (meira að segja Björn Jörundur var góður), skemmtileg saga, fín tónlist og almenn lífsgleði. Allt mjög óíslenskt í mynd sem gæti ekki verið íslenskari.“ Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri Mannlífs. „Sú íslenska bíómynd sem stendur næst hjarta mínu er kvikmyndin Dís í leikstjórn Silju Hauksdóttur en við stöllur, ég, Silja og Birna Anna Björnsdóttir unnum handritið út frá bókinni Dís sem við skrifuðum árið 2000. Það er mikil þörf á kvikmyndum sem sýna samfélagslega stöðu ungra kvenna á Íslandi í samtímanum og í því ljósi er kvikmyndin Dís mikilvægt innlegg í umræðuna. Bíómyndin Börn náttúrunnar er einnig í miklu uppáhaldi hjá mér og fegurð sögunnar lætur engan ósnortinn.“ Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi og rithöfundur, „Mynd Dags Kára, Nói albínói, er ein af mínum uppáhalds íslensku bíómyndum. Hún er mér mjög minnis- stæð og kom mér virkilega á óvart. Leikurinn er ótrúlega sterkur og karakterarnir í myndinnni ógleymanlegir. Stuðmyndin „Með allt á hreinu“ í leikstjórn Ágústs Guðmundssonar skipar einnig heiðursess hjá mér og er sú bíómynd sem ég get horft á aftur og aftur og alltaf hlegið jafn mikið.“ Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona. íslenska bíómyndin? uppá- halds...
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.