Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 66

Fréttablaðið - 09.11.2007, Síða 66
Kasparov meistari Söngleikurinn Ást var frumsýndur í febrúar í Borgarleikhúsinu og hefur notið mikillar velgengni frá fyrstu stundu. Í kvöld fagna leikarar og aðstand- endur sextugustu sýningunni en ekki nóg með það, heldur einnig tíuþús- undasta gestinum „Við munum fagna með kampavíni og blómum og taka vel á móti þessum tímamótagesti, en að sjálfsögðu er allt á huldu enn hver það verður,“ segir Magnús Ólafsson leikari, sem fer með eitt af aðalhlutverkum sýningunnar. „Ég hef nú mest verið í sprelli og grínleikjum en Gísli Örn Garðarsson leikstjóri var alveg handviss um að hlutverkið myndi henta mér vel. Þetta er því mitt fyrsta dramatíska hlutverk á sviði,“ útskýrir Magnús, sem segir sýninguna þó fulla af húmor og gleði. „Efnistökin eru kannski örlítið óvenjuleg því það er ekki oft fjallað um ástir eldri borgara, en ástin er bara svo sterkt afl og hún getur komið hvar og hvenær sem er,“ segir Magnús, sem fer með hlutverk Grjóna sem kynnist og verður ástfangin af Nínu, sem er leikin af Kristbjörgu Kjeld. Tónlistin í sýningunni er úr öllum áttum, allt frá Bítlunum til nútíma- popplaga, og að sögn Magnúsar ætti hún að höfða til allra aldurshópa. „Sumir halda að þessi sýning sé bara fyrir eldra fólk, en ég hef tekið eftir því að áhorfendur eru að yngjast. Enda margir sem koma með foreldrum, eða ömmum og öfum. Einnig finnst mér gaman að heyra af fólki sem kemur aftur og aftur og ég hitti einmitt konu um daginn sem hafði séð hana fjórum sinnum!“ segir Magnús. Sýningin er leikin á nýja sviði Borgar- leikhússins og að sögn Magnúsar eru leikarar í mikilli nálægð við áhorfend- ur í hvert sinn. „Þetta er mjög persónuleg sýning og við finnum vel fyrir tilfinningaskalan- um sem áhorfendur fara í gegnum með okkur,“ útskýrir Magnús, sem segir Ást vera þá skemmtilegustu sýningu sem hann hefur tekið þátt í. Kvöldið býður upp á mikið húllum- hæ að sögn Magnúsar, sem segir jafn- vel möguleika á sjálfum afmælissöngn- um í uppklappinu. „Við höfum oft sungið afmælissöng- inn í uppklappinu fyrir einhvern í saln- um. Þannig að ef við verðum beðin um það í kvöld getur vel verið að það stefni í fleiri tímamót í kvöld,“ segir Magnús, sem segir sýninguna hefjast klukkan átta og vara í tvo tíma. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gylfi Þorsteinsson Aðalbraut 60, áður Sólvöllum, Raufarhöfn, lést miðvikudaginn 7. nóvember á sjúkrahúsinu á Húsavík. Útför auglýst síðar. Guðný Sigurbjörnsdóttir Þór Einarsson Janet Borques Guðmundur Einarsson Katrín R. Rúnarsdóttir Árni Heiðar Gylfason Erla Guðmundsdóttir Sigurbjörn Smári Gylfason Ólína S. Ólafsdóttir Ófeigur Ingi Gylfason Anna H. Traustadóttir Sandra Ösp Gylfadóttir Halldór Baldvinsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma, langamma og systir, Hjördís Antonsdóttir andaðist á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja 5. nóvember sl. Útför fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn 10. nóvember nk. kl. 14. Minningarathöfn og jarðsetning fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. nóvember nk. kl. 11.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jóhannes Ólafsson og Svanhildur Guðlaugsdóttir Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát okkar ástkæru eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigríðar Kristbjargar Stefánsdóttur Skarðshlíð 23E, Akureyri. Starfsfólki á lyflækningadeild Fjórðungssjúkrahúss Akureyrar og heimahlynningu eru færðar innilegar þakkir fyrir góða umönnun og alúð. Guð blessi ykkur öll. Eggert Ólafsson Sigurlaug Anna Eggertsdóttir Bergvin Jóhannsson Steinunn Pálína Eggertsdóttir Jóhann Jóhannsson Stefán Eggertsson Elín Valgerður Eggertsdóttir Hilmar Stefánsson ömmu- og langömmubörn. Sigurður Grétarsson framkvæmdastjóri, Skipalæk, Fellahreppi, lést sunnudaginn 4. nóvember. Gréta Jóna Sigurjónsdóttir Sigurjón Torfi Sigurðarson Þórunn Gréta Sigurðardóttir Kristín Arna Sigurðardóttir Grétar Þór Brynjólfsson Þórunn A.M. Sigurðardóttir og aðrir aðstandendur. Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur, faðir, tengdafaðir og afi, Eðvald Gunnlaugsson lést þann 5. nóvember. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 15.00. Málfríður Eyjólfsdóttir Edda Eðvaldsdóttir Þór Þorvaldsson Eðvald Brynjar og Þórdís Halldór Eyjólfsson. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Ásta Finnsdóttir frá Ísafirði, til heimilis að Lönguhlíð 15, Reykjavík, lést aðfaranótt fimmtudagsins 1. nóvember á Líknardeild Landakotsspítala. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn 12. nóvember kl. 15.00. Læknum og hjúkrunarfólki á líknardeild og Landspítala, Fossvogi, eru færðar innilegar þakkir fyrir góða umönnun og alúð. Bragi Ragnarsson Jónína Gissurardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar kveðjur og þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför Sigríðar Jóhannesdóttur húsmóður, Gunnarsstöðum Þistilfirði. Lifið heil. Kristín Sigfúsdóttir Ólafur H. Oddsson Jóhannes Sigfússon Fjóla Runólfsdóttir Steingrímur J. Sigfússon Bergný Marvinsdóttir Árni Sigfússon Hanne Matre Ragnar Már Sigfússon Ásta Laufey Þórarinsdóttir Aðalbjörg Þuríður Sigfúsdóttir Jón Hallur Ingólfsson barnabörn og barnabarnabörn. „Ég átti mjög góðan tíma með Bergman áður en hann lést. Markmiðið var að tala um handritagerð, en í stað- inn ræddum við mest um lífið og aðra hluti. Þetta var mjög góður tími,“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.