Fréttablaðið - 09.11.2007, Page 78
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
12
7
7
12
16
14
12
12
16
12
14
MR. WOODCOCK kl. 6 - 8 - 10
ÆVINTÝRAEYJAN kl. 6
BALLS OF FURY kl. 8 - 10
12
7
12
16
12
14
LIONS FOR LAMBS kl.6 - 8 - 10
THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10
ROUGE ASSASSIN kl. 8 - 10.10
SUPERBAD kl.5.30 - 8 - 10.30
GOOD LUCK CHUCK kl.5.40
LIONS FOR LAMBS kl. 5.45 - 8 - 10.15
LIONS FOR LAMBS LÚXUS kl. 5.45 - 8 - 10.15
BALLS OF FURY kl. 4 - 6 - 8 - 10
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4 - 6
DARK IS RISING kl. 3.45 - 5.50
THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.30
RESIDENT EVIL 3 kl. 10.10
GOOD LUCK CHUCK kl. 8
HÁKARLABEITA 600 KR. kl. 4
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
MR. WOODCOCK kl. 6 - 8 - 10
ELIZABETH: THE GOLDEN AGE kl. 5.30 - 8 - 10.30
EASTERN PROMISES kl. 8 - 10.20
SYNDIR FEÐRANNA kl. 6 - 10.20
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8
ATH: EKKERT
HLÉ
"Virkilega vönduð!"
- Á.J., DV
- bara lúxus
Sími: 553 2075
MR. WOODCOCK kl. 6, 8 og 10 L
ROGUE ASSASSIN kl. 8 og 10.10 16
ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 4 og 6 - 600 kr. L
EASTERN PROMISES kl. 5.50, 8 og 10.10 16
HÁKARLABEITA kl. 4 - 600 kr. L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
HÖRKU HASAR
Bjarkarlaufið verður
afhent í fyrsta sinn á Degi
íslenskrar tónlistar sem
verður haldinn hátíðlegur
í dag. Tryggð landsmanna
við íslenska tónlist virðist
hafa aukist á undanförnum
árum.
„Við ætlum að heiðra valinkunnan
einstakling sem hefur stutt við
tónlistarlífið með einum eða
öðrum hætti,“ segir Jónatan
Garðarsson, framkvæmdastjóri
Félags hljómplötuframleiðenda,
um afhendingu Bjarkarlausfins.
„Þetta er ekki tónlistarmaður en
þetta er einstaklingur sem hefur
lagt sitt af mörkum fyrir íslenska
tónlist.“
Bjarkarlaufið er orða sem var
hönnuð af Katrínu Pétursdóttur.
Jónatan segir að nafnið sé bæði
tilvísun í Björk Guðmundsdóttur
og jurtina björk. „Það er hin
íslenska jurt sem hefur vaxið upp
og þolað harðræði en hún grænkar
alltaf á vorin eftir að hafa lifað af
harðan vetur. Hin íslenska björk
stendur allt af sér.“
Að sögn Jónatans hefur sala á
íslenskri tónlist aukist um fimm
til tíu prósent síðustu fimm ár
þrátt fyrir aukið niðurhal tónlistar
á netinu, á sama tíma hefur dregið
úr sölu erlendra platna. Jónatan
kann ekki nákvæmar skýringar á
þessu en segir að tryggð íslenskra
kaupenda við íslenska listamenn
sé töluverð. „Það hlýtur að skýrast
af því að tónlistin er góð. Fólk vill
greinilega styðja íslenska tónlist
og ég held að það sé kannski megin-
skýringin.“
Undanfarin ár hafa á bilinu 150
til 200 íslenskar plötur komið út á
hverju ári og segir Jónatan, sem
er að undirbúa útgáfu hinna árlegu
Plötutíðinda, að sú tala verði líkast
til svipuð á þessu ári.
Samtökin Samtónn, sem í eru allir
rétthafar tónlistar á Íslandi, ætla
að koma saman í hádeginu í dag
ásamt fleiri aðilum úr tónlistar-
geiranum, ræða málin og afhenda
Bjarkarlaufið. „Við vonum að
þetta verði að föstum lið og marki
upphafið að jólavertíðinni. Þetta
eru góð tímamót til að minna á sig
og gleðjast saman,“ segir Jónatan.
Einn þekktasti plötusnúður heims,
Hollendingurinn DJ Tiesto, þeytir
skífum á árshátíð Techno.is á
Broadway í kvöld. Hann var fyrsti
plötusnúður veraldar til að selja
fleiri en 25.000 miða á einu og
sömu tónleikunum og gerði það
tvö kvöld í röð. Síðan þá hefur
hann spilað margoft á troðfullum
leikvöngum og á öllum stærstu
tónlistarhátíðum heims, nú síðast
á Hróarskeldu.
„Hann spilaði fyrir 200 þúsund
manns í Brasilíu í janúar og spil-
aði líka í Parken í Danmörku fyrir
fullum leikvangi,“ segir skipu-
leggjandinn Addi Exos. „Hann
hefur verið númer eitt undanfarin
ár og þetta er tvímælalaust stærsti
viðburður danstónlistarsögunnar
á Íslandi enn sem komið er. Það er
heimsviðburður að þessi maður
skuli spila á svona litlum stað eins
og Íslandi.“
DJ Tiesto mun spila í þrjár
klukkustundir á Broadway. Auk
þess koma margir af fremstu
plötusnúðum landsins fram, þar á
meðal Exos og Eyvi og Pluggd. Á
árshátíðinni verður notast við
stærsta hljóð- og ljósakerfi sem
hefur sést á íslensku klúbbakvöldi.
Miðaverð er 4.990 krónur og fást
miðar í versluninni All Saints.
Tiesto þeytir skífum
Þátturinn Poppland á Rás 2 sendir
beint út frá tónleikum Bubba,
Mugisons og Hjálma á Organ í
dag í tilefni af Degi íslenskrar
tónlistar. Stendur útsendingin
yfir frá klukkan 13 til 16.
Mugison spilar efni af nýjustu
plötu sinni, Mugiboogie, sem
hefur fengið mjög góðar viðtökur
og Hjálmar spila einnig efni af
væntanlegri plötu sinni. Bubbi
gefur aftur á móti ekki út nýja
plötu í ár en á vafalítið fullt af
góðu efni í handraðanum. Á eftir
þeim troða upp á Organ Retro
Stefson og Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og
verða þær í
beinni útsend-
ingu í
þáttunum
Hlaupa-
nótunni og
Víðsjá á
Rás 1.
Í beinni í
Popplandi
Leikarinn Jack Nicholson er ósátt-
ur við að hafa ekki fengið að endur-
taka hlutverk sitt sem Jókerinn í
nýjustu Batman-myndinni, The
Dark Knight. Nicholson, sem lék
Jókerinn á eftirminnilegan hátt í
Batman-myndinni árið 1989, seg-
ist hafa orðið undrandi þegar hann
var ekki beðinn um að leika hann á
nýjan leik.
„Ég er bálreiður. Þeir báðu mig
aldrei um að leika Jókerinn aftur.
Kannski var það rétt hjá þeim en
ef ég á að vera hreinskilinn þá er
ég mjög reiður,“ sagði Nicholson í
samtali við MTV. „Jókerinn var til
í æsku minni og þess vegna ákvað
ég að leika hann. Mér fannst þetta
alltaf vera hlutverk sem ég gæti
leikið.“
Heath Ledger tekur við hlut-
verki Jókersins í nýju Batman-
myndinni, sem er væntanleg í bíó
á næsta ári.
Vildi leika Jókerinn
Leikarinn og
framleiðandinn Tom
Cruise gefur lítið
fyrir auðæfi sín og
finnst öllu máli skipta
hvernig fjölskyldu
hans reiðir af. Eignir
Cruise eru taldar
nema um fimmtán milljörðum
króna en samt sem áður segist
hann lifa einföldu lífi og kaupi sér
aldrei nýjustu tæki og tól. „Ég á
engan iPhone, ekkert netfang,
ekkert úr, enga skartgripi og
ekkert veski. Ég vil bara vera með
börnunum mínum og búa til
kvikmyndir,“ sagði hann. „Ég er
með þúsund manns á launaskrá en
ég lít samt ekki á mig sem
eitthvert átrúnaðargoð.“
Börnin betri
en auðæfin