Fréttablaðið - 19.11.2007, Qupperneq 46
26 19. nóvember 2007 MÁNUDAGUR
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
10
12
7
7
12
10
12
12
16
12
14
WEDDING DAZE kl. 6 - 8 - 10
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 6
BALLS OF FURY kl. 6
ROGUE ASSASSIN kl. 8 - 10
10
7
16
12
16
14
12
14
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40
LIONS FOR LAMBS kl.6 - 8 - 10
THIS IS ENGLAND kl.6 - 8 - 10
SUPERBAD kl.5.30 - 8
GOOD LUCK CHUCK kl. 10.30
WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
WEDDING DAZE LÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
LIONS FOR LAMBS kl. 8 - 10.15
BALLS OF FURY kl. 4 - 6 - 8 - 10
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 3.45 - 6
DARK IS RISING kl. 3.45
THE HEARTBREAK KID kl. 5.30 - 8 - 10.30
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
WEDDING DAZE kl. 6 - 8 -10
MR. WOODCOCK kl. 6 - 10.30
ELIZABETH: THE GOLDEN AGE kl. 8
EASTERN PROMISES kl. 8 - 10.20
SYNDIR FEÐRANNA kl. 6 - 10.20
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8
NÝTT Í BÍÓ!
Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd með
Jason Biggs úr American Pie og Isla Fisher
úr Wedding Crashers!
ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR
ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST
BRÚÐKAUPSBILUN LÍF RÓSARINNAR
BORÐTENNISBULL
ELÍSABET
ÁSTARSORG MYRKRIÐ RÍS
LOFORÐ ÚR AUSTRI
ROGUE LEIGUMORÐINGI
ÞETTA ER ENGLAND
HR. WOODCOCK
LJÓN FYRIR LÖMB
- bara lúxus
Sími: 553 2075
AMERICAN GANGSTER kl. 7 og 10 16
MR. WOODCOCK kl. 6, 8 og 10 L
ROGUE ASSASSIN kl. 8 og 10.10 16
ÆVINTÝRAEYJA IBBA kl. 6 - 600 kr. L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
Hljómsveitin The End hefur gefið út sína
fyrstu plötu, Atingere. Söngvarinn Magn-
ús Haraldsson segir að allt sé að fara til
fjandans.
„The End er liður í andlegri byltingu sem við teljum
að sé í uppsiglingu. Það er allt að fara til fjandans.
Senn líður að leikslokum og hinu mikla uppgjöri sem
hefur verið spáð í fornum ritum og af spámönnum
margra þjóða og ótengdra hópa,“ segir Magnús
Haraldsson, söngvari The End. Bætir hann við að
ártalið 2012 sé mjög undarlegt og komi fram aftur
og aftur í ótengdum samfélögum og hugsanlega
tengist það einhvers konar heimsendi. Þess vegna
mun platan kosta nákvæmlega 2012 krónur úti í búð.
Lausn á tölu dýrsins
Annar meðlimur The End, Halldór Björnsson, er að
leggja lokahönd á Rauðu bókina sem meðlimir
sveitarinnar hafa átt þátt í að skapa undanfarin ár.
„Bókin fjallar um hina stóru lygi sem bókin Falið
vald hefur komið inn á. Hún gengur út á að það er
ævafornt kerfi í gangi sem mótar okkar líf og við
erum öll eins og sauðir í,“ segir Magnús og tekur
fram að ekki sé um grín að ræða. „Þetta er allt
fléttað inn í textana okkar, til dæmis í laginu Fatima.
Þar er að finna lausn á tölu dýrsins sem er talað um
í Opinberunarbókinni. Þessi heimur sem við höfum
dregið upp með þessari plötu og bók er okkar
speglun á því hvernig við sjáum að tilveran sé sett
upp á bak við tjöldin.“
Bölvun á bandinu
Að sögn Magnúsar er Atingere í raun önnur plata
sveitarinnar. Sú fyrsta kláraðist fyrir fimm árum en
kom aldrei út. „Við vorum með samning við útgef-
anda hér á landi og hann var ekki hrifinn af „cover-
inu“. Við urðum að byrja upp á nýtt og það tafði
okkur mikið.“
Á þeim tíma hét hljómsveitin Atingere og á meðal
þeirra sem spiluðu með henni voru Krummi í Mínus
og Bogi úr Stjörnukisa. „Það var skrifað um okkur í
Rolling Stone og New York Times. Þegar við
spiluðum í Hafnarhúsinu á Airwaves fór rafmagnið
af eftir að við höfðum verið í fimmtán sekúndur á
sviðinu. Þetta var stóra breikið okkar og það var
næstum því eins og það væri bölvun á bandinu.
Þannig að við lögðum árar í bát og stofnuðum nýtt
band. Þrátt fyrir nafnið The End þá hefur verið
mikil blessun yfir því.“ freyr@frettabladid.is
Senn líður að leikslokum
THE END Hljómsveitin The End hefur gefið út plötuna
Atingere.
Páll Óskar er lifandi goðsögn í
íslensku tónlistarlífi. Átta ára bið
eftir plötu frá poppdívunni ógur-
legu telst þess vegna alltof löng.
Páll hefur hins vegar alltaf verið
iðinn við kolann og aldrei horfið
algerlega úr íslensku tónlistar-
lífi.
Platan hefst á ágjörnu en hægu
daðurdiskói sem kemur manni
vel í gírinn. Á eftir fylgja slagar-
arnir Allt fyrir ástina og Inter-
national sem þarf vart að kynna.
Næsta lag, Er þetta ást?, spyr
síðan líklegast mikilvægustu
spurningar plötunnar: „Er þetta
ást? / Að kveljast og þjást?“ Páll
nær að kanna allar hliðar ástar-
innar á plötunni og er ekki ein-
göngu að hamast á klisjunum um
að ástin muni á endanum bjarga
öllu. Þvert á móti getur ástin
dregið mann niður í svaðið – ástin
er hverful og á henni þarf að taka
eins og hverju öðru verkefni lífs-
ins. Við þörfnumst hins vegar öll
ástar eins og kemur fram í lögun-
um Þú komst við hjartað á mér,
einu besta lagi plötunnar, og
Kraftaverk. Og í lokalögum plöt-
unnar fær maður að vita allt um
það hversu yndislegt er þegar
ástin hefur loksins samræmst lífi
manns. Betra líf er sérstaklega
innihaldsríkur slagari.
Páll Óskar er svo einlægur og
hreinskilinn í öllum flutningi og
sköpun á þessari plötu að einfald-
lega er ekki hægt annað en að
dáleiðast með, hvort sem er á
dansgólfinu í takt við aðra eða
heima í stofu með ryksuguna í
hönd. Auðvitað er samt tónlistin
sem slík að mörgu leyti hrein-
ræktuð eurotrash-tónlist af ein-
hverju tagi (Þið getið til dæmis
prófað að taka út söng Páls og
setja í staðinn til dæmis: „Blow
my whistle, bitch!“ eða „... fünf,
sex, sieben... HARDCORE!“).
Staðreyndin er hins vegar að
Páll Óskar er einn af sárafáum
tónlistarmönnum úr sínum geira
sem skapa eitthvað sem hefur
fagurfræðilegt gildi og er ekki
hreinræktað rusl.
Hreinskilnin og tilfinningarnar
á plötunni finnur maður að sé eitt-
hvað satt og rétt. Að skapa þannig
tónlist er hæfileiki sem ekki
margir aðrir en Páll Óskar búa
yfir. Steinþór Helgi Arnsteinsson
Allt um ást Páls Óskars
TÓNLIST
Allt fyrir ástina
Páll Óskar
★★★★
Æðisleg poppplata um allar hliðar
ástarinnar. Páll Óskar sannar sig sem
einn hreinskilnasti, einlægasti og
sannasti tónlistarmaður þjóðarinnar.
Football Manager 2008, eða FM
eins og hann kallast í daglegu tali,
er leikjasería sem nær aftur til
1992 á Amiga-vélunum og hét
reyndar þá Championship
Manager. Nafnið hefur kannski
breyst en kjarni upplifunarinnar
sem Manager-leikirnir bjóða upp
á helst enn sterkur. Hver leikur
hefur snúist um að betrumbæta
það sem kom á undan og síðan
koma með nýjungar sem hafa
ekki sést áður.
Helstu nýjungarnar þetta árið
snúa að fjármálum liðanna sem
stjórnað er, flæði leiksins, raun-
tíma breytingar á skipun liðsins,
tölvuteiknuð andlit á leikmenn
sem koma í stað eldri leikmanna
ásamt ótal fleiri hluta. Eins og
með fyrri leiki, virðast breytingar
litlar í fyrstu. Eftir að hafa spilað
nokkur tímabil verður manni ljóst
hve djúpur leikurinn er.
Það eru um 50 deildir sem er
hægt að stjórna liðum í. Allt frá
stærstu deildum Evrópu niður í
smærri deildir eins og í Færeyj-
um og Íslandi. Svo getur þú farið
beint í að spila með lið eins og KS/
Leiftur og reynt að koma þeim í
Úrvals deildina eða skellt þér beint
í að reyna að gera Manchester
United að Evrópumeisturum enn á
ný, frelsið er þitt.
Útlitið hefur aldrei verið neitt
sérstakt í Manager-seríunni, gagn-
rýnendur kalla hana „Fótbolta
Excel-skjal“ en það sem FM skort-
ir í útlitinu bætir hann upp í spil-
un. Það hafa lengi gengið sögur
um hve slæmur þessi leikur getur
reynst sambandinu, skólanum eða
vinnunni og eru það engar ýkjur.
Þetta hugtak „einn leikur enn“
verður fljótlega alls ráðandi. Að
ætla að taka 2-3 leiki með Stock-
port, skyndilega endar í tauga-
strekktu augnabliki tíu tím um
síðar þegar þú ásamt þínu heitt -
elskaða liði standið einum leik frá
að vinna ykkur sæti í næstu deild.
Það sem er hægt að gagnrýna
Football Manager 2008 fyrir er að
serían hefur ekki tekið rótæk
skref fram á við nýlega. Nú er að
vona að 2009 útgáfan taki stærra
skref. Þetta er það eina sem er
hægt að kvarta undan, þrátt fyrir
engar stórfenglegar breytingar á
milli ára stendur eftir besti fót-
boltahermirinn á markaðnum og
er draumur hvers fótboltaáhuga-
manns sem hefur dreymt um að
leiða liðið sitt til dýrðar.
Sveinn A. Gunnarsson
Besti fótboltahermirinn
TÖLVULEIKIR
Football Manager 2008
PC (kemur af PSP í desember)
★★★★
Kveddu konuna, skólann og vinnuna
bless og segðu hæ við nýja Manager.