Fréttablaðið - 19.11.2007, Page 54
34 19. nóvember 2007 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT 2. sæti 6. frá 8. hversu 9.
prjónavarningur 11. ógrynni 12. heiti
14. misbjóða 16. í röð 17. dýrahljóð
18. ennþá 20. bardagi 21. betl.
LÓÐRÉTT 1. drykkur 3. skammstöfun
4. svelgja 5. gras 7. óframfærinn 10.
arinn 13. svelg 15. arða 16. húðpoki
19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sess, 6. af, 8. hve, 9. les,
11. of, 12. titil, 14. móðga, 16. hi, 17.
urr, 18. enn, 20. at, 21. snap.
LÓÐRÉTT: 1. malt, 3. eh, 4. svolgra,
5. sef, 7. feiminn, 10. stó, 13. iðu, 15.
arta, 16. hes, 19. na.
Bæði Glitnir og Ólafsfell ehf.,
fyrirtæki Björgólfs Guðmunds-
sonar formanns bankaráðs Lands-
bankans, fjármagna gerð spennu-
þáttaraðarinnar Mannaveiðar sem
verður á dagskrá RÚV. Þetta varð
ljóst eftir að RÚV skrifaði undir
samning við Björgólf um fjár-
magn til sjálfstæðra framleiðenda
vegna leikins íslensks efnis.
RÚV ohf., ásamt Þórhalli
Gunnarsson dagskrárstjóra, ætlar
greinilega að láta sverfa til stáls
eftir magurt framlag á undanförn-
um árum á sviði leikins íslensks
efnis. Auk Mannaveiða Björns
Brynjólfs Björnssonar er Saga
Film nú að undirbúa spennuþátta-
röð eftir bókum Ævars Arnar
Jósepssonar og reiknar Þórhallur
með því að tökur hefjist snemma á
næsta ári og mun Óskar Jónasson
leikstýra henni. Nokkrar þáttarað-
ir eru í vinnslu en ekki hefur verið
tekin ákvörðun um hver þeirra
fari næst í tökur. „Og svo eru fleiri
verkefni sem bíða úrlausnar á
borðinu,“ segir Þórhallur.
Þegar umsókn fyrir styrk frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands vegna
Mannaveiða var send inn í lok
þessa sumars hafði Þórhallur
gefið leikstjóranum Birni Brynj-
ólfi skuldbindandi vilyrði fyrir
því að Sjónvarpið gæti tryggt
helming upphæðarinnar af
kostnaðaráætluninni. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er
kostnaður við gerð Mannaveiða
talinn vera sextíu og tvær millj-
ónir. Þórhallur segir að RÚV hafi
ætlað sér að leggja til fjórðung af
kostnaðinum en svo myndi hinn
helmingurinn koma annars staðar
frá. „Í þessu tilviki þurfti að hafa
hraðar hendur svo að verkefnið
myndi ekki stöðvast. Og því skuld-
batt ég mig til að geta séð um fjár-
mögnun þess hluta. Ef samning-
urinn við Björgólf hefði ekki
komið til þá hefði ég einfaldlega
leitað á önnur mið,“ segir Þórhall-
ur og þvertekur fyrir að samning-
urinn hafi orðið til þess að ein-
hver fjármunir hafi sparast.
„RÚV var búið að eyrnamerkja
ákveðna upphæð í þetta verkefni
og sú upphæð hefur ekkert
breyst.“
Þórhallur segir að engar ákvarð-
anir hafi verið teknar um auglýs-
ingasölu fyrir íslensku þáttarað-
irnar en þær njóta yfirleitt mikilla
vinsælda og auglýsingaplássin
eru oftast nær mjög eftirsótt.
Engin áform séu um að slíta þætt-
ina í sundur með auglýsingahlé-
um. „Ég hef bara ekki hugsað út í
það,“ segir Þórhallur og bætir því
við að ekki hafa verið teknar
ákvarðanir um einn sérstakan
útsendingardag.
freyrgigja@frettabladid.is
ÞÓRHALLUR GUNNARSSON: MEÐ ALLA KLÆR ÚTI
RÚV lætur sverfa til stáls
Þráinn Bertelsson gerir sér lítið fyrir og stjaksetur
súlustaðaeigandann Ella í Octopussy við Þingvallavatn
í sinni nýjustu skáldsögu, Englum dauðans. Þráinn
hefur verið þekktur fyrir að dansa á mörkum raun-
veruleika og skáldsögunnar líkt og í Dauðans óvissa
tíma og áðurnefndum Ella svipar óneitanlega til
súlukóngsins Ásgeirs Davíðssonar, sem betur er
þekktur sem Geiri á Goldfinger.
Þráinn gefur lítið fyrir slíkar samlíkingar, segir
að þeir séu hvort eð er allir eins þessir menn en
bætir síðan við að hann skrifi úr þeim
veruleika sem hann eigi heima í. „Og
ég dreg dám af mínu umhverfi,“
segir hann en áréttar að öll líkindi séu á ábyrgð
þess sem les.
Þráinn segir jafnframt að hann hafi þurft litla
sem enga hjálp úr Kópavoginum þegar hann
skapaði þessa persónu en bætir því jafnframt
við að lesendur megi alveg velta því fyrir sér
hvort svona menn séu í raun og veru til hér á
Íslandi. „Hér á þessu landi þrífst eiturlyfjasala
og þrælasala og hugmyndin að bókinni
var að fá lesendurna til að hugsa.
Og auðvitað líka til að skemmta
fólki,“ segir Þráinn. - fgg
Þráinn stjaksetur súlustaðaeiganda
EKKI GEIRI Þráinn þvertekur
fyrir að Elli í Octopussy eigi
sér fyrirmynd í Geira á
Goldfinger og segir að öll
líkindi séu á ábyrgð þess
sem les.
Á MÖRKUM SKÁLDSKAPAR OG
RAUNVERULEIKA Þráinn hefur verið
þekktur fyrir að dansa á mörkum
raunveruleika og skáldskapar og
hann er á þeirri bylgjulengd í sinni
nýjustu bók.
Íslenska þýðingin á síðustu bókinni um Harry
Potter, Harry Potter og dauðadjásnin, kom í
verslanir á fimmtudaginn. Áður hafði töluvert af
bókinni selst í forsölu í vefverslun Hagkaupa sem
hófst í júlí. Ekki fékkst gefið upp hversu margar
bækur hefðu selst á netinu, en Sigríður Gröndal,
verslunarstjóri sérvöru hjá Hagkaupum, spáði því
að bókin yrði mest selda Potterbókin. „Þetta fer
mjög vel af stað,“ segir hún.
Elsa María Ólafsdóttir, verslunarstjóri í bókabúð
Máls og menningar, segir stemninguna í versluninni
hafa verið töluvert afslappaðri á fimmtudag en
þegar enska bókin kom út í sumar. „Það voru mjög
góðar viðtökur á bókinni, en ekki í sprengjuformi.
Salan var jöfn og þétt yfir allan daginn,“ segir Elsa
María, sem telur að hjá bókabúðum Eymundsson og
Máls og menningar hafi fleiri hundruð eintök af bók-
inni selst á fimmtudag.
Hún segir aldur lesenda ekki endilega haldast í
hendur við val á lestrartungumáli. „Sumir vilja bara
ekkert lesa á ensku,“ segir Elsa, sem segist hafa trú
á því að Harry Potter og dauðadjásnin verði ein
söluhæsta barnabókin. „Ja, eða unglingabókin.
Harry er orðinn stálpaður og aðdáendurnir stálpast
líka,“ bætir hún við. - sun
Harry selst vel á íslensku
JAFNT OG ÞÉTT Verslunarstjóri bókabúðar Máls og menningar
segir söluna á Harry Potter og dauðadjásnunum ekki hafa
verið í „sprengjuformi“ á fimmtudeginum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég hef ofboðslega gaman af
Hjálmum, Baggalúti og Anthony
and the Johnsons. Svo hlustaði
ég um daginn á tónlistina úr
Once Upon a Time in Mexico.
Salma Hayek syngur þar mjög
fallegt lag og gítarleikurinn á
þessum diski er ógeðslega góður.
Ólöf Erla Bjarnadóttir leirkerasmiður
NÆSTI LEIKSTJÓRI
Óskar Jónasson
mun leikstýra
spennuþáttaröð
eftir bókum Ævars
Arnar Jósepssonar.
ALLAR KLÆR ÚTI
Þórhallur fer mikinn
á markaðnum þessa
dagana, er að undir-
búa nýja spennuþátta-
röð og aðra sem á
að fara í tökur næsta
sumar.
Brúðkaup Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og Ingibjargar
Pálmadóttur var á allra vörum
um helgina. Talsverð umferð var
við Fríkirkjuna í Reykjavík þegar
brúðkaupið fór fram klukkan
17.30 á laugardag. Ekki minni
örtröð var svo við Hafnarhúsið þar
sem veislan var haldin um kvöld-
ið. Reyndar stöðvaðist umferð
við götuna þegar gestir mættu
til veislunnar. Þeir voru ferjaðir
með rútum frá Fríkirkjunni en röð
myndaðist við inngang-
inn þar sem
öryggisverðir
fóru vand-
lega yfir
gestalistann
og gengu
úr skugga
um að
engir
óæskilegir kæmust inn.
Miklar kjaftasögur
gengu um það að
erlendar stórstjörnur
yrðu leynigestir
í brúðkaupinu.
Fyrst um sinn var
talið að George
Michael kæmi
og syngi í
veislunni. Síðar
hafði Robbie Williams
bæst í hópinn og áttu
þeir félagar að syngja
dúett. Um miðjan dag
á laugardag hafði svo
Robbie verið skipt út
fyrir Bono. Af þessum
sökum vakti athygli
að á Reykjavíkurflug-
velli biðu fjórir
Range Rover-bílar fram
á kvöld. Bílaflotinn
var þó ekki til að
taka á móti popp-
urum heldur Tom
Hunter, viðskiptafé-
laga Baugsmanna
í Bretlandi.
Tom Hunter virðist
annars ekki hafa
hlustað á þau
fyrirmæli brúð-
hjónanna að
þau afþökkuðu
gjafir við þetta
tilefni en vildu í
staðinn að fólk
gæfi fé í styrktarsjóð fyrir langveik
börn. Hunter arkaði alltént inn í
veislusalinn með voldugan pakka
undir höndum.
Þó að brúðkaup Jóns Ásgeirs og
Ingibjargar sé afstaðið þýðir það
ekki að þotuliðið sé komið í frí frá
veisluhöldum. Um næstu helgi
fagnar Hannes Smárason, for-
stjóri FL Group, fertugsafmæli sínu
og er búist við því að mikið verði
um dýrðir. Veisla Hannesar verður
haldin á sveitasetri
í Bretlandi eftir
því sem fregnir
herma en ekkert
hefur enn spurst
út um skemmti-
atriði eða
leynigesti.
- hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Auglýsingasími
– Mest lesið
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Stærra-Árskógi.
2 Mikhaíl Saakashvili.
3 Valencia á Spáni.