Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 76
56 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
16
10
7
12
12
16
16
14
HITMAN kl. 6 - 8 - 10
DAN IN REAL LIFE kl. 6 - 8
RENDITION kl. 10
16
16
16
12
16
HITMAN kl.5.50 - 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl.5.45- 8 - 10.15
LA VIE EN ROSE/LÍF RÓSARINNAR kl.5.20 - 8 - 10.40
LIONS FOR LAMBS kl. 10
HITMAN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
HITMANLÚXUS kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.10
DAN IN REAL LIFE kl. 5.45 - 8 - 10.15
WEDDING DAZE kl. 3.40 - 5.50 - 8 -10.10
BALLS OF FURY SÍÐUSTU SÝN. kl. 4 - 6
ÆVINTÝRAEYJA IBBA 600 KR. kl. 4
THE HEARTBREAK KID kl. 8 - 10.30
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
ACROSS THE UNIVERSE kl. 5.20 - 8 - 10.40
EASTERN PROMISES SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.30 - 8 - 10.20
VEÐRAMÓT SÍÐUSTU SÝN. kl. 5.40 - 8 - 10.20
RENDITION kl. 5.30 - 8 - 10.30
NÝTT Í BÍÓ!
BRÚÐKAUPSBILUN
DAN Í RAUN OG VERU
LÍF RÓSARINNAR
ÁSTARSORG
LOFORÐ ÚR AUSTRI
LJÓN FYRIR LÖMB
Stórskemmtileg
rómantísk
gamanmynd
MÖGNUÐ MYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF
STÚTFULL AF ÆÐISLEGRI BÍTLATÓNLIST!
áb
Magnaður spennutryllir sem gerður er eftir hinum
fr æru tölvuleikjum með Timothy Olyphant úr Die
Hard 4.0 í fantaformi.
ALHEIMSFERÐ
LEIGUMORÐINGINN
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HITMAN kl. 6, 8 og 10 16
RENDITION kl. 5.30, 8 og 10.30 16
MR. WOODCOCK kl. 6 L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
LIB - TOPP5.IS
HJ - MBL
TSK - 24Stundir
VJV - TOPP5.IS
Akron/Family er sérstaklega
áhugaverð hljómsveit frá Banda-
ríkjunum sem hefur gert einkar
áhugaverða hluti innan hinnar
svokölluðu freak folk-senu. Senu
þeirri hefur vaxið fiskur um hrygg
undanfarin ár en meðal helstu for-
svarsmanna hennar má til dæmis
nefna Devendra Banhart og
Joanna Newsom. Reyndar er erf-
itt að einskorða tónlistarstefnu
Akron/Family við einhverja eina
ákveðna senu. Á Love Is Simple
ægir öllu saman og oft áttar maður
sig ekki alveg á því hvort hér sé á
ferð sýrutónlist frá lok sjöunda
áratugarins í stórfurðulegum
útsetningum eða einfaldlega til-
raunakennt gítarrokk.
Textar plötunnar svara heldur
ekki mörgum spurningum enda
fer mikið fyrir merkingarleysu á
plötunni. Eitt er þó víst að á Love
Is Simple er, eins og kannski er
augljóst á nafngift plötunnar, ein-
hver tilraun til þess að skilgreina
ástina. Ástarboðskapurinn er
reyndar margræður á plötunni.
„Don’t be afraid / It’s only love [...]
Don’t be afraid / you’re already
dead / Love is simple“ og síðan
seinna „Go out and love, love /
Love everyone.“ Er ekkert mál að
elska, er málið að fara út á víða-
vang og byrja bara? Við erum
hvort sem er dauð.
Besta við þetta kæruleysi allt
saman er hinn glaðværi og auðvit-
að kæruleysislegi undirtónn tón-
listar Akron/Family. Ed Is a Portal
er þannig partíóður af bestu gerð
og flokkast hæglega með bestu
lögum ársins. Líkt og brjálað
hippapartí úti á risastóru og yfir-
gefnu túni. Yndislegt. Lögin I’ve
Got Some Friends og Phenomena
bera einnig með sér þennan hríf-
andi blæ Akron/Family. Upplifa
má allt ofantalið á tónleikum sem
fara fram á Organ á föstudags-
kvöldið en að sjálfsögðu ber að
geta þess að Akron/Family þykir
kynngimögnuð tónleikasveit.
Steinþór Helgi Arnsteinsson
Glaðir nútímahippar
TÓNLIST
Love Is Simple
Akron/Family
★★★★
Kæruleysisleg glaðværð skín af
plötunni þar sem meðlimir Akron/
Family leika lausum hala á leikvelli
ástarinnar.
Ævisaga Guðna Ágústssonar hefur selst í
fimm þúsund eintökum. Ævisagnaritarinn
er ánægður með viðtökurnar.
„Já, það er sem sagt farið að skella í aðra prentun.
Við erum gömlu heitu góðu lummurnar við Guðni,“
segir Sigmundur Ernir Rúnarsson fréttamaður og
rithöfundur. Að vonum kátur því fyrsta prentun
bókarinnar um Guðna Ágústsson – Af lífi og sál – er
að verða uppseld hjá útgefanda. Jólabókasalan er
vart hafin og aðeins um vika frá því bókin kom út.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins eru fimm
þúsund eintök bókarinnar seld. Þannig að óhætt er að
spá bókinni metsölu en hún er þegar farin að gera sig
gildandi á sölulistum og farin að narta í hælana á
sjálfum Harry Potter.
Þó að kjósendur fúlsi margir við Framsóknar-
flokknum fer því fjarri að íslenskir lesendur hafni
Guðna, formanni flokksins. Sigmundur segir
vinsældir Guðna ná langt inn í raðir annarra stjórn-
málaflokka. „Óþægilega langt að margra mati. Svo er
Guðni náttúrulega táknmynd hins orgínal Íslend-
ings.“ Sigmundur telur þá félaga njóta þess að ekki er
mikil pólitísk lesning í boði þetta árið en oft hafa
kanónur á sviði hinnar íslensku pólitíkur gefið út
endurminningar sínar og hugleiðingar. En skýring-
anna er ekki aðeins að leita þar. „Mér heyrist
lesendur bókarinnar ekki síst vera hrifnir af þjóðlífs-
hluta bókarinnar. Þarna er mikil lýsing á horfinni
samfélagsgerð sem þó flestir þekkja. Bókin höfðar til
margvíslegra lesendahópa; Sunnlendinga, sveita-
manna almennt og áhugamanna um sögu og pólitík.“
Guðni og Sigmundur voru að í sex mánuði,
akkorðsvinna, að sögn Sigmundar sem vildi ekki
byrja á bókinni fyrr en eftir kosningar enda hann þá
að stjórna kosningasjónvarpi Stöðvar 2. „En svo
þegar ég sá að Guðni var með brotið skip og pólitísk
umskipti í lífi hans fór ég á fullt og vann þetta
myrkranna á milli.“
Sigmundur Ernir hefur hingað til gefið út verk sín
hjá JPV en það er bókaforlagið Veröld sem gefur
bókina út. Pétur Már Ólafsson útgefandi var lengi
búinn að vera á eftir Guðna með að gefa út sögu hans.
Og Sigmundur „lenti“ því í framhjáhaldi eins og sagt
er.
„Já, ég varð fyrir því óláni. En fékk litlu um þetta
ráðið. Ég get haft á orði hér að það var ekkert ráðið
við framhjáhaldið. Guðni bað mig um þetta og var þá
þegar kominn með útgefanda að verkinu.“
Fréttablaðið hefur haft af því spurnir að þegar sé
farið að leggja drög að bindi númer tvö en því hafnar
Sigmundur Ernir og segir ekkert afráðið né sjálfgefið
í þeim efnum. jakob@frettabladid.is
Sigmundur Ernir í framhjá-
haldi með Guðna Ágústs
FARSÆLT TEYMI Bókin um Guðna eftir Sigmund Erni fer í
brúsapallsförmum, fimm þúsund eintök seld og stefnir í
metsölu.
Orðrómurinn um að Robbie Willi-
ams kunni að koma fram með fyrr-
verandi félögum sínum í hljóm-
sveitinni Take That hefur hlotið
byr undir báða vængi eftir að
móðir tónlistarmannsins, Jan
Williams, sagði son sinn vera í
skýjunum með velgengni hljóm-
sveitarinnar eftir að hún sneri
aftur á sjónarsviðið árið 2005.
„Ég hef á tilfinningunni að
Robbie muni gera eitthvað með
þeim fyrr en síðar. Það er eitthvað
sem ég held að hann vilji gera,“
sagði móðirin í samtali við dag-
blaðið Sentinel í Stoke, bænum
þar sem Robbie fæddist og ólst
upp.
Eftir að meðlimir Take That, að
undanskildum Robbie, komu aftur
saman hefur sveitin komið tveim-
ur lögum í efsta sæti breska vin-
sældalistans, auk þess sem nýj-
asta plata þeirra stökk beint í efsta
sæti á lista yfir mest seldu plöt-
urnar. Á sama tíma hefur sólófer-
ill Robbie verið á niðurleið og nýj-
asta plata hans, Rudebox, fékk
slæma dóma gagnrýnenda. Þá
hefur Robbie þurft að fresta tón-
leikum vegna streitu og ofþreytu.
„Hann er á batavegi og líður vel
þessa stundina. Hann eyðir mikl-
um tíma í upptökuverinu við að
semja lög og texta og hefur gaman
af lífinu. Það er ánægjulegt að sjá
umbreytinguna á honum,“ segir
Jan.
Móðir Robbie talaði af sér
Á BATAVEGI Robbie Williams hefur þurft
að glíma við persónuleg vandamál
síðustu mánuði en er nú á hröðum
batavegi, að sögn móður hans.