Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 2
2 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Aldís, voruð þið að klóra í
bakkann?
„Nei, en við klórum okkur í höfðinu
yfir hvernig þetta gat gerst.“
Talsvert af klór lak út í Varmá í Hveragerði
á þriðjudag. Aldís Hafsteinsdóttir er
bæjarstjóri í Hveragerði.
NÝ LJÓÐABÓK EFTIR
GALDRAMEISTARANN
Sjón var tilnefndur til Óskarsverð-
launa fyrir einn söngtexta sinna í
kvikmyndinni Dancer in the Dark, og
fyrir skáldsöguna Skugga-Baldur
hlaut hann bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs árið 2005. Í ár er
Sjón tilnefndur til Íslensku Bók-
menntaverðlaunanna fyrir bókina
Söngur steinasafnarans.
DY
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
ÍK
Tilnefning 2007
SLYS „Það var engin hálka búin að
vera alla leiðina, en ég keyrði nú
samt á fjörutíu því mér sýndist ég
sjá hálkubletti,“ segir Ólöf Huld
Magnúsdóttir, tvítugur Selfyss-
ingur, sem varð fyrir þeirri
óskemmtilegu lífsreynslu að bif-
reið sem hún ók valt þrjár veltur
niður gil eftir að hún missti stjórn
á henni.
Ólöf Huld var á leiðinni frá Sel-
fossi í Adrenalíngarðinn á Nesja-
völlum til að kanna aðstæður þar
vegna fyrirhugaðrar ferðar. Ólöf
er skátaforingi og var ásamt fjór-
um þrettán ára krökkum úr skáta-
flokknum sínum í bílnum þegar
hann valt.
„Ég var stödd í beygju sem ég
taldi að væri búin þegar ég missti
stjórn á bílnum í hálku og bíllinn
rann rólega út af veginum. Bíllinn
stoppaði í miklum halla og þá héld-
um við að þetta væri búið en svo
valt hann á hliðina fimm sekúnd-
um síðar og stoppaði ekki fyrr en
eftir tvær og hálfa veltu,“ segir
Ólöf. „Við héldum okkur í loftið og
töldum velturnar en þetta gerðist
allt svo rosalega hægt. Það var
eins og þetta væri allt sýnt hægt í
einhverri bíómynd.“
Ólöf segir farþega bílsins hafa
fundið bensínlykt eftir að bíllinn
staðnæmdist og þá hafi þau flýtt
sér út úr bílnum. Ekkert þeirra
slasaðist alvarlega en Ólöf hlaut
áverka á hendi.
„Mér leið strax mjög illa og
hafði miklar áhyggjur af því
hvernig ég ætti að koma orðum að
þessu við foreldra krakkanna en
ég ákvað að vera róleg,“ segir
Ólöf. „Okkur var auðvitað mikið
brugðið en við töluðum saman um
þetta á leiðinni á heilsugæsluna og
náðum að róa taugarnar.“
Bíllinn, sem var í eigu Ólafar, er
gjörónýtur eftir veltuna og var
fjarlægður með kranabíl í gær.
aegir@frettabladid.is
Bílveltan var eins og
hæg endursýning
Fjögur ungmenni sluppu án teljandi meiðsla eftir að bifreið sem þau voru far-
þegar í valt 20 til 30 metra niður gil. Ég hafði mestar áhyggjur af því hvernig ég
ætti að útskýra þetta fyrir foreldrum krakkanna, segir ökumaður.
ÓLÖF HULD MAGNÚSDÓTTIR
Ólöf ók bílnum og var sú eina sem
meiddist í óhappinu, en hún hlaut
áverka á hendi.
MYND/EGILL
Á VETTVANGI Í GÆR Í birtingu í gær var hafist handa við að koma bílnum af vett-
vangi. Fyrst var fest í hann dráttartaug og svo var hann dreginn upp á veg og ofan á
pallbíl. MYND/GUÐMUNDUR KARL
VIÐSKIPTI Gengi FL Group lækkaði um fimmtán
prósent í Kauphöll Íslands í gær. Það var fyrsti
viðskiptadagur með bréf í félaginu eftir tilkynningu
um umfangsmikla hlutafjáraukningu í fyrradag.
Úrvalsvísitalan féll um 1,95 prósent og sveiflaðist
mikið yfir daginn.
„Markaðurinn er mjög viðkvæmur núna en þróunin
[í gær] sýnir hvað menn eru óvissir,“ segir Edda Rós
Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar
Landsbankans. Hún bendir á að tveir þriðju hlutar af
lækkun Úrvalsvísitölunnar hafi gengið til baka frá
mestu lækkun en það sýni að fjárfestar séu bæði að
endurmeta markaðinn og reyna að rýna í það sem
aðrir eru að gera. „Einhverjir voru kannski að veðja á
meiri lækkun en raunin varð,“ segir hún.
„Langtímaáhrifin af úrlausn FL Group í gær er
afskaplega góð því við fáum heilbrigðara umhverfi og
mikla styrkingu á eigin fé fyrirtækisins,“ segir hún og
bendir á að 180 milljarða eigin fé FL Group nemi 15
prósentum af vergri landsframleiðslu Íslands. „Þetta
er engin skiptimynt.“
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL
Group, sagði á kynningarfundi í gær að dregið yrði úr
rekstrarkostnaði félagsins. Búið er að loka skrifstofu
FL í Kaupmannahöfn og verður starfsemi félagsins
stýrt frá London. Stjórnarformaðurinn sagði að nú
yrði unnið að því að ávaxta eignir FL Group í stað
þess að leita að nýjum fjárfestingum. - bg/jab
Verð á hlutabréfum stærstu kauphallarfyrirtækja sveiflaðist mikið í gær:
Markaðurinn mjög viðkvæmur
NIÐURSTÖÐUR KYNNTAR Jón Ásgeir Jóhannesson segir mestu
tækifæri FL Group núna liggja í því að ávaxta núverandi eignir
félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STJÓRNSÝSLA Lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins hefur enn ekki
tekið afstöðu til umsóknar þriggja
nektardansstaða í Reykjavík um
endurnýjuð rekstrarleyfi.
Eins og kunnugt er leggst borg-
arstjórn Reykjavíkur gegn því að
staðirnir þrír fái umbeðna undan-
þágu til að bjóða upp á nektardans.
Jákvæð afstaða hefur hins vegar
borist lögreglustjóra frá öllum
öðrum umsagnaraðilum; Heil-
brigðiseftirliti, Vinnueftirliti,
byggingarfulltrúa, og brunamála-
stjóra.
Halldór Backman, lögmaður
veitingastaðarins Óðals, segir að í
lögum sé kveðið á um að jákvæðar
umsagnir allra aðila þurfi fyrir
leyfi. Óðal byggi hins vegar á því
að lögreglustjóra sé í sjálfsvald
sett að virða að vettugi umsagnir
sem fari langt út fyrir valdsvið
viðkomandi umsagnaraðila.
„Þetta snýst um eðlileg valds-
mörk stjórnvalda. Lögreglustjóri
þarf ekki að hlýða á neikvæða
umsögn ef hún er um eitthvað sem
umsagnaraðilinn á ekki að tjá sig
um,“ segir Halldór sem enn kveðst
bíða bréfs frá lögreglustjóra þar
sem honum verði gefið tækifæri á
að koma að sjónarmiðum eigenda
Óðals áður en ákvörðun er tekin í
málinu.
„Við munum vitaskuld mótmæla
þessari umsögn borgarráðs á
þeirri forsendu fyrst og fremst að
hún sé byggð á ólögmætum sjón-
armiðum enda hafi borgin áður
veitt jákvæða umsögn um það sem
borgin á að veita umsögn um,“
segir Halldór. - gar
Lögreglustjórinn í Reykjavík íhugar enn umdeilda rekstrarleyfisumsóknir:
Nektardans enn hjá lögreglu
STEFÁN
EIRÍKSSON
Umsókn þriggja
veitingastaða
um leyfi til
nektardans er
óafgreidd hjá
lögreglustjóra.
VINNUMARKAÐUR Ólafur Örn
Haraldsson, fyrrverandi
forstjóri Ratsjárstofnunar, er
einn fimmtíu umsækjenda um
embætti ferðamálastjóra.
Magnús Oddsson lætur af
embættinu um áramótin eftir að
hafa gegnt því í fjórtán ár.
Ferðamálastjóri er forstöðu-
maður Ferðamálastofu, sem fer
með framkvæmd ferðamála
undir yfirstjórn samgönguráðu-
neytis. Skipað er í starfið til
fimm ára í senn. Á Ferðamála-
stofu eru alls um tuttugu
starfsmenn, en stofnunin rekur
fimm skrifstofur innan og utan
landsteinanna. - sþs
Auglýst eftir ferðamálastjóra:
Ólafur Örn einn
50 umsækjenda
RÚSSLAND, AP Meðal nýrra
þingmanna í Rússlandi er Andrei
Lugovoi, fyrrverandi starfsmaður
leyniþjónustunnar KGB, sem
breska lögreglan hefur grunaðan
um að hafa myrt Alexander
Litvinenko í
London á
síðasta ári.
Þegar
Lugovoi var
spurður hvort
hann teldi kjör
sitt á þing
jafngilda því að
hrækt væri
framan í
Vesturlönd sagðist hann vilja
ráðleggja þeim að þurrka
hrákann framan úr sér.
Lugovoi sest á þing fyrir
þjóðernisflokk Vladimírs
Sjírínovskís, sem verður þriðji
stærsti flokkur þingsins. Rússn-
esk stjórnvöld hafa neitað að
framselja Lugovoi til Bretlands.
- gb
Andrei Lugovoi á þing:
Meintur morð-
ingi nýr á þingi
ANDREI LUGOVOI
TRÚ Siðmennt, félag siðrænna
húmanista, biður biskup Íslands,
séra Karl Sigurbjörnsson, um að
biðjast opinberlega afsökunar á
orðum um félagið, sem höfð voru
eftir honum í fjölmiðlum. Öðrum
kosti dragi hann þau til baka.
Í viðtali við 24stundir kallaði
Karl félagið „hatrömm samtök
sem vilja að öllu leyti stöðva
aðkomu trúarinnar í skólum“.
Stjórn Siðmenntar telur
ummælin ærumeiðandi fyrir
félagið og þá foreldra sem hafa
fengið Siðmennt til að annast
borgaralega fermingu barna
sinna.
Félagið áréttar að það hafi
ávallt stutt öfluga trúarbragða-
Félag siðrænna húmanista:
Biskup Íslands
biðjist afsökunar
HAFRANNSÓKNIR Búið er að skipa í
faghóp sérfræðinga og aðila í
sjávarútvegi til að fjalla um
aðferðir Hafrannsóknastofnunar-
innar við stofnstærðarmælingar.
Sjávarútvegsráðherra fól Jóhanni
Sigurjónssyni, forstjóra stofnun-
arinnar, að koma á fót slíkum
hópi. Stefnt er að því að fyrstu
tillögur liggi fyrir í febrúar og að
lokaúttekt liggi fyrir 1. septemb-
er 2008.
Hópurinn er skipaður tveimur
fulltrúum frá Landssambandi
íslenskra útvegsmanna og Fiski-
og farmannasambandi Íslands og
einum fulltrúa frá Landssam-
bandi smábátaeigenda. Sérfræð-
ingar Hafrannsóknastofnunarinn-
ar munu leiða starf hópsins. - shá
Faghópur skipaður:
Togararallið til
skoðunar
LJÓSAFELL SU Er eitt þeirra skipa sem
hafa verið leigð í togararallið á síðustu
árum. MYND/LOÐNUVINNSLAN
NEPAL Stærsti asíski fíll heims
sem vitað er um, Raja Gaj, er
týndur. Hann hefur ekki sést í
konunglega Bardia-þjóðgarðinum
í Katmandú í Nepal, þar sem hann
dvelst, undanfarið ár. Raja Gaj
var eitt helsta aðdráttarafl
þjóðgarðsins vegna stærðar
sinnar, en sést nú ekki lengur.
Samkvæmt japanska fréttamiðl-
inum Japan Today hafa forsvars-
menn þjóðgarðsins áhyggjur af
því að veiðiþjófar hafi drepið
fílinn. Hann er þrír og hálfur
metri á hæð, samkvæmt mælingu
sem gerð var árið 1999. - sþs
Hefur ekki sést undanfarið ár:
Týndu stærsta
asíska fíl heims
SPURNING DAGSINS