Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 38
[ ]
Haukur Magnússon setur hvítt brauð ekki inn
fyrir sínar varir og hefur alltaf átt gnótt græn-
metis og ávaxta í fórum sínum. Síðastliðin
fjögur ár hefur hann setið við stýri Ávaxtabíls-
ins, sem birtist fyrst á götunum fyrir eintóma
hugsjón.
„Ég hef alltaf verið hollustusælkeri, stundað
líkamsrækt og verið meðvitaður um að misbjóða
ekki líkama mínum með óhollri fæðu. Mér fannst
vanta að geta gengið að hollum skyndibita á
markaðnum svo ég stofnaði Ávaxtabílinn til að
framkvæma það sem mig sjálfan vantaði í dagsins
önn,“ segir Haukur, sem frá upphafi hefur fært út
kvíar Ávaxtabílsins; nú síðast með hollum sæl-
keramáltíðum á Skeljungs- og Olísstöðvum
höfuðborgarsvæðisins.
„Þetta byrjaði saklaust eftir galsafengna
hugmynd sem ég losnaði ekki við eftir samtal við
félaga minn um ávaxtaheildsölu til fyrirtækja, en á
hans vinnustað voru jafnan pantaðir ávextir og
grænmeti í miklu magni. Við veltum fyrir okkur
hví ekki væri sama í boði fyrir minni fyrirtæki því
heildsölurnar seldu svo stórar pakkningar,“ segir
Haukur, sem í kjölfarið þótti tefla djarft þegar
hann hóf heimsendingar með minni skammta af
sælgæti náttúrunnar.
„Ég hélt samt ótrauður af stað með óunna ávexti
og grænmeti og fór fljótlega að skera þá niður í
glös sem hentugt millimálasnakk með aukinni
dreifingu í matvöruverslanir. Ekki höfðu nú allir
trú á þessu, en Ávaxtabíllinn er kominn til að vera
og enn erum við að færa út kvíarnar, nú síðast með
hollustupasta- og salatréttum, brauðréttum og
ávaxtaskyrdrykkjum þar sem ekkert er til sparað í
gæðum og góðmeti,“ segir Haukur, sem í samvinnu
við Gæðabakstur lætur baka fyrir sig þétt, trefja-
mikið og grófkorna brauð, ásamt
því að setja í rétti sína lífrænt
heilhveitipasta, úrvals
grænmeti og ávexti, osta
og kjúklingakjöt.
„Með þessu förum
við inn á markað sem
enginn hefur sinnt
hingað til, undir
merkjum okkar;
Ávaxtabíllinn og Fit
Food. Við viljum
kenna fólki að fleiri
valkostir bjóðast í
skyndibita en hvítar
majónessamlokur og
sykur í eftirrétt. Þegar
fólk sér merki Ávaxtabíls-
ins getur það verið visst um að
varan er í lagi og ekkert blöff í
gangi; við notum engar
transfitur eða varasöm
gervisætuefni; eingöngu
náttúrulega og holla fæðu,“
segir Haukur, sem eftir
jólagleðina ætlar að markaðs-
setja hollustumáltíðir sínar í
matvöruverslunum og fleiri útsölu-
stöðum. thordis@frettabladid.is
Hollt og gott í hvert mál
Te er gott að drekka til að fá yl í kroppinn auk þess sem það
hefur oft ýmsa heilsubætandi eiginleika. Það fer hins vegar eftir
tegundinni og hvers konar jurtir eru notaðar. Gott er að drekka
te ef maður er með hálsbólgu eða kvef.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
Haukur Magnússon framkvæmdastjóri Ávaxta-
bílsins, með fangið fullt af gómsætri hollustu.
Þegar landsmenn hafa fengið fylli sína af
jólagóðgætinu munu hillur verslana
svigna undan heilnæmum og ljúffeng-
um hollustumáltíðum Ávaxtabílsins.
Algeng orsök stækkaðs
blöðruhálskirtils er skortur á
D-vítamíni. Sólarljós eða lampi
getur verið besta meðalið.
„Skortur á D-vítamíni eykur
áhættuna á stækkun blöðruháls-
kirtils,“ er haft eftir Jan-Erik
Damber, prófessor við Sahl-
grenska háskólasjúkrahúsið í
Gautaborg, í sænska Aftonbladet.
Þetta segir hann að lokinni stórri
rannsókn sem 3.000 karlmenn yfir
sjötugt tóku þátt í. Þrjú hundruð
þeirra gengust undir rannsókn á
blöðruhálsi og niðurstöðurnar
voru bornar saman við gildi D-
vítamíns í blóðinu.
Góðkynja blöðruhálskirtils-
stækkun var hægt að skýra í
tuttugu prósentum tilvika með
lágu D-vítamíngildi. Það virðist
því mjög veigamikill þáttur. Í
framhaldinu segir Jan-Erik að
skoðað verði hvort hægt sé að
meðhöndla góðkynja stækkun
blöðruhálskirtils með því að auka
D-vítamíngjöf. Einfaldast sé að
gera það með því að hvetja menn
til sólbaða, til dæmis með
lömpum, en einnig komi töflur til
greina. - gun
Sólin veitir vörn