Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 36
[ ]Loðhúfur og loðfeldir sameinist! Tími ykkar er senn upprunn-inn. Við höfum enga trú á öðru en að það kólni brátt og taki að snjóa aðeins fyrir jólin.
eurovisa
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16
Flauelskjóll með tölum og brydding-
um. Verð 14.800.
Verslunin Seyma er þekkt fyrir
vefnaðarvöru í ströngum. Nú
hefur hún hafið innflutning
á vönduðum barnafötum frá
Ítalíu.
„Við erum nýbyrjaðar að selja
ítölsk barnaföt sem okkur líst
svo vel á,“ segir Helga
Sigurðardóttir, annar eigenda
verslunarinnar Seymu. Hún
segir allan fatnaðinn vera úr
ekta efnum, eins og ull og bómull,
og handbragð og saumaskap
algerlega til fyrirmyndar. Helga
hefur þekkingu á þeim hlutum
eftir áralanga reynslu af því að
handfjatla tau og leggja sauma-
konum lífsreglur við meðhöndlun
þess því Seyma er þekkt fyrir að
selja efni í fatnað og allt til
saumaskapar eins og margir
þekkja.
Ítölsku barnafötin eru fóðruð
og brydduð og bera af sér góðan
þokka.
- gun
Kjóll úr bómullarflaueli, fóðraður með
stífu undirpilsi. Fæst líka í bláu, hvítu og
jólarauðu og kostar 13.000.
Stælföt á stelpurnar. Buxurnar úr ull og
kosta 7.500, vestið sem líka úr ull er
með ídregnum borðum og kostar 7.300
og blússan kostar 6.000.
Fóðraður galli á þau
minnstu. Verðið er
4.000.
Kjóll úr ullarefni, fóðraður með vöfflu-
saumi og bleikum bryddingum á
kraganum. Verð 19.000.
Prjónaður ullarjakki, fóðraður. Til
í hvítu, bláu og bleiku og kostar
9.900. Sett með húfu, trefli og vett-
lingum við kostar 4.300.
Drengjaföt. Bæði buxur og vesti úr ull.
Vestið er með öðru mynstri á bakinu.
Buxurnar kosta 7.400, vestið 6.800 og
skyrtan 4.900.
Ítölsk föt úr eðalefnum
Pilsin síkka
Í VETUR EIGA PILSIN AÐ NÁ RÉTT
NIÐUR FYRIR HNÉ EF MARKA MÁ
ÞÆR LÍNUR SEM LAGÐAR ERU Í
HELSTU TÍSKUHÚSUM HEIMS.
Helstu fyrirsætur og stjörnur
heims sjást í auknum mæli klæð-
ast dragtarpilsum og buxum í
þeirri sídd. Snið-
in eru mis-
munandi og
eru sum pils-
in aðsniðin
til að undir-
strika mjaðmir
á meðan önnur
eru víðari og
flaksa frjálslega
um hnén.
Stuttu pilsin
sem nutu vin-
sælda í sumar
virðast á und-
anhaldi, sem er
ef til vill í eðli-
legu samræmi
við árstíðina.
s: 557 2010