Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 32
32 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 947
6.510 -1,95% Velta: 10.227 milljónir
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 10,00 -3,10% ... Bakkavör
58,20 +0,00% ... Eimskipafélagið 36,30 -1,09% ... Exista 22,95 -
4,57% ... FL Group 16,35 -15,07% ... Glitnir 23,20 -2,32% ... Icelandair
27,60 -0,90% ... Kaupþing 881,00 -0,56% ... Landsbankinn 35,90
-0,42% ... Straumur-Burðarás 15,65 +0,32% ... Össur 100,00 +1,01%
... Teymi 6,08 -1,78%
MESTA HÆKKUN
ALFESCA 1,83%
ÖSSUR 1,01%
MAREL 0,84%
MESTA LÆKKUN
FL GROUP 15,07%
SPRON 5,91%
EXISTA 4,57%
Tíu dagar til stefnu
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL
Group og Baugs, sagði á fundi í gærmorgun
með fjárfestum og starfsmönnum fjármála-
fyrirtækja að æskilegt væri að Hannes Smárason
lyki kaupum á 23 prósenta hlut í Geysi
Green Energy innan tíu daga. Þá ætti
verðmat á hlutnum að liggja fyrir.
Tímaramminn sem Jón Ásgeir setur
miðar að því að þessari vinnu verði
lokið áður en hluthafafundur í FL
Group verður haldinn. Þá verður
ný stjórn félagsins valin og komið
hefur fram að Hannes muni taka
þar sæti. Þegar til stóð að sameina
Geysi Green Reykjavik Energy Invest
var félagið metið á rúma 27
milljarða króna. Hannes þarf
því að punga út rúmum sex
milljörðum króna fyrir hlut
sinn í félaginu.
Samkeppni um fundargesti
Tveir áhugaverðir fundir um viðskiptalífið voru
haldnir í gærmorgun. Viðskiptaráð stóð fyrir
fundi um þróun íslenskra fjármálamarkaða í
Háskólanum í Reykjavík. Um áttatíu manns
mættu á þann fund enda áhugaverð erindi í
boði. Á sama tíma kynntu Jón Ásgeir Jóhann-
esson og Jón Sigurðsson, forstjóri FL Group,
stöðu félagsins og framtíðarhorfur. Að
minnsta kosti 150 manns mættu á þann
fund. Það má með sanni segja að áhugi á
þessum breytingum sé mikill enda snertir
þetta alla á markaðnum. Nýi forstjórinn
svaraði spurningum skilmerkilega og kom
því vel á framfæri sem hann hafði heimild
til að greina frá. Jón hefur kosið að vera
fyrir utan kastljós fjölmiðla. Síðustu
tveir dagar hafa hins vegar
sýnt að hann höndlar það vel
að svara fyrir skráð félag í
Kauphöll Íslands.
Peningaskápurinn ...
Erlend eign í Kauphöllinni hefur
aukist mikið milli ára og nemur nú
41 prósenti. Mikið af þessu er í eigu
Íslendinga sem geyma sitt í erlendum
félögum. Forstjóri Kauphallarinnar
telur aukninguna milli ára skýrast af
aukinni erlendri fjárfestingu.
„Erlent eignarhald fyrirtækja í Kauphöllinni
var um 41 prósent í september en var 27 pró-
sent á sama tíma í fyrra,“ sagði Þórður Frið-
jónsson, forstjóri Kauphallarinnar, í pall-
borðs umræðum á fundi Viðskiptaráðs í
Háskólanum í Reykjavík í gær.
Þórður telur að hluti af skýringunni sé fólg-
inn í því að Íslendingar geymi hlutabréfaeign
sína í erlendum félögum. Það hafi kannski
frekar gerst áður. Hins vegar sé erfitt að meta
í hversu miklum mæli það sé.
„Meginskilaboðin sem tölurnar segja, það er
breytingin, er hins vegar að erlend fjárfesting
er að aukast,“ segir Þórður.
Friðrik Már Baldursson hagfræðiprófessor
segir að þetta geti gefið skakka mynd. „Við-
skiptahallinn sé ofmetinn og erlend eignar-
staða vanmetin. Þetta gefur neikvæðari mynd
af okkar stöðu út á við en ella,“ segir Friðrik
Már, sem nýlega lauk við skýrslu um íslenskan
fjármálamarkað ásamt Dr. Richard Portes.
Friðrik Már segir að erfitt sé að meta hversu
mikið sé um að félög Íslendinga séu skráð
erlendis. „En ég held að það sé vel þekkt að
þetta sé í töluverðum mæli. Til dæmis að farið
sé með eignir til Hollands. Það er augljóst að
þetta er af skattalegum ástæðum,“ segir Frið-
rik Már og bætir því við að æskilegast væri að
Íslendingar breyttu sínu skattaumhverfi til
þess að draga úr hvatanum til þessa.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftir-
litsins, segir að þetta auki umfang eftirlitsins,
en í sjálfu sér sé þetta hluti af alþjóðavæðing-
unni og þátttökunni í Evrópska efnahagssvæð-
inu. „Við þurfum stundum að vera í sambandi
við erlendar systurstofnanir. Það tekur tíma en
við fáum upplýsingar að lokum.“
Aðalatriðið sé að eignarhald sé gegnsætt,
segir Jónas, og vísar þar meðal annars til fram-
virka samninga og söfnunarreikninga. „Svo við
sjáum hver sé endanlegur eigandi. Ef þurfa
þykir þá verðum við að tryggja þetta með
lögum.“
ingimar@frettabladid.is
Erlenda eignin íslensk að hluta
FRÁ FUNDI VIÐSKIPTARÁÐS. Finnur Oddsson hjá Við-
skiptaráði, Þórður Friðjónsson Kauphöllinni, Jón Ingi
Þorvaldsson Glitni og Jónas Fr. Jónsson hjá Fjármála-
eftirlitinu.
Skuldir aukast
Skuldir heimilanna jukust um
ríflega fimm prósent milli ann-
ars og þriðja fjórðungs ársins,
að því er fram kemur í tölum
Seðlabankans. Fram kemur í
Morgunkorni Greiningar Glitnis
í gær, að skuldir heimilanna hafi
ekki aukist jafn mikið milli
fjórðunga frá því um mitt ár í
fyrra.
Greining Glitnis bendir á að
skuldir heimila hafi aukist mun
hraðar en ráðstöfunartekjur á
undanförnum árum. Þær hafi
numið 213 prósentum af ráðstöf-
unartekjum í fyrra, en 178 pró-
sentum árið 2000 og 144 prósent-
um árið 1995.
Ætla megi að hlutfallið hækki
frekar, þrátt fyrir verri lánakjör
og hækkandi ráðstöfunartekjur.
Samkvæmt tölum Seðlabank-
ans nema heildarútlán lánakerf-
isins um 5.386 milljörðum króna.
Þar af nema skuldir heimilanna
1.482 milljörðum. - ikh
MARKAÐSPUNKTAR
Samræmd vísitala neysluverðs hækk-
aði um 0,57 prósent á milli mánaða
innan aðildarríkja EES í október. Til
samanburðar hækkaði hún um 0,37
prósent hér. Hækkunin á ársgrund-
velli nemur 2,6 prósentum innan
EES-ríkjanna.
Framleiðni mældist 6,3 prósent á árs-
grundvelli í Bandaríkjunum á þriðja
ársfjórðungi. Þetta er talsvert meira
en sérfræðingar höfðu reiknað með
og þykja einkar jákvæðar miðað við
svartsýnisspár um samdrátt.
Kanadíski seðlabankinn ákvað í gær
að lækka stýrivexti um 25 punkta í
4,25 prósent vegna óvissuástands
í efnahagslífinu. Þetta er fyrsta
stýrivaxtalækkun bankans í fjögur og
hálft ár.
Ótrúlegt en satt, en hraðvirkasta
PC-fartölvan er Makki.
Vertu velkominn í hópinn
– hvort sem þú vilt nota Windows
eða Mac OS X þá er næsta tölvan
þín frá Apple.
Mac Book Pro
15,4” skjár / 2,2 GHz
Intel Core 2 Duo / 120 GB / 2 GB
1440 x 900 px / 128 MB skjákort
8x SuperDrive / iSight / Fjarstýring
209.990,-
Mac Book Pro
15,4” skjár / 2,4 GHz
Intel Core 2 Duo / 160 GB / 2 GB
1440 x 900 px / 256 MB skjákort
8x SuperDrive / iSight / Fjarstýring
249.990,-
Mac Book Pro
17” skjár / 2,4 GHz Z0ED
Intel Core 2 Duo / 160 GB / 2 GB
1680 x 1050 pixlar / 256 MB skjákort
8x SuperDrive / iSight / Fjarstýring
279.990,-
Apple IMC
Apple IMC | Humac ehf.
Laugavegi 182
105 Reykjavík
Sími 534 3400
www.apple.is
Kringlunni
103 Reykjavík
Sími 534 3400
www.apple.is
MacBook Pro
– hraðvirkasta fartölvan fyrir Vista*
*Skv. mælingum PC World: pcworld.com/article/id,136649-page,3-c,notebooks/article.html