Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 64
44 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
SINNEP
Atli Ingólfsson
„Jahhh, sko, mönnum þótti verðið á verkunum svolítið
hátt. En „they payed me a lot of respect“,“ segir
myndlistarmaðurinn Tolli og hlær, aðspurður hvort
hann væri búinn að selja Dönum og
Þjóðverjum myndlist í massavís.
Tolli opnaði mikla myndlistar-
sýningu í norrænu menningar-
miðstöðinni í Flensborg í
Norður-Þýskalandi í lok
síðasta mánaðar og mun
sýningin standa til 10.
desember. Á sýningunni
eru vatnslita- og
olíumyndir alls um 50
verk. Tolli er harla
ánægður með viðtök-
urnar. Í tilefni sýning-
arinnar var mikið
viðtal við Tolla í
Flensborg Avis sem
hefst með látum.
Blaðamanni þykir
þetta voldug verk en
Tolli svarar sem svo
að þá hefði hann átt
að sjá verk sín þegar
hann var í Kúnstaka-
demíunni í Berlín.
Þetta væru smámunir
í samanburði.
„Já, já, maður lét
bara vaða á súðum.
En þetta voru
einhverjir 200 manns
sem mættu við opnunina. Og góður gestagangur hefur
verið. Hvort sem það var nú kurteisi, gestrisni eða
eitthvað annað eru menn ánægðir með þessi verk og
þótti fengur í þessu. Þeir eru að kynna menningu
Norðurlandaþjóðanna og þarna hafa Einararnir lesið
upp, Vigdís og einhverjir fleiri auk þess sem
íslenskir listamenn hafa sýnt þarna.“ Bubbi
Morthens, bróðir Tolla, mætti og hélt tónleika fyrir
troðfullu húsi við þetta sama tækifæri. „Já, í
Slesvík Hallen. Þarna komu heimamenn auk þess
sem Íslendingar frá Jótlandi fjölmenntu til að hlusta
á meistarann. Gott partí? Já, já, þetta var nett
sveifla,“ segir Tolli.
Myndlistarmaðurinn segir að nú verði nokkurt
hlé gert á sýningarhaldi og við taki það að vinna í
sinni list og mála. Einhverjar samningaviðræður
eru yfirstandandi um sýningu í Kaupmannahöfn en
ekki er tímabært að ræða það á þessu stigi málsins.
„Það sem er fram undan hjá mér er að flytja í nýja
vinnustofu og nýja íbúð við Meðalfellsvatn. Núna
strax í næstu viku. Jú, jú, það er geðveikt húsnæði.
Svo er maður ekkert að hugsa lengra, en eitt og annað
er á döfinni.“ jakob@frettabladid.is
Tónlistarunnendur á höfuðborgarsvæðinu hafa tekið tónlistarhátíðinni
Tónað inn í aðventu, sem staðið hefur yfir í Neskirkju, fagnandi, enda
um afar metnaðarfulla og glæsilega hátíð að ræða.
Lokatónleikar hátíðarinnar fara fram í kvöld og eru afar spennandi, eins
og lög gera ráð fyrir. Hér eru á ferð sannkallaðir stórtónleikar þar sem
óratórían L’Allegro, il Penseroso ed il Moderato eftir G. F. Händel verður
frumflutt á Íslandi, en Händel samdi þessa óratóríu einu ári áður en
hann samdi meistaraverkið Messías.
Einsöngvarar á tónleikunum eru Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona,
Marta Halldórsdóttir sópransöngkona, Eyjólfur Eyjólfsson tenórsöngv-
ari og Hrólfur Sæmundsson baritónsöngvari. Auk þeirra syngur Kór
Neskirkju og barokksveit Neskirkju leikur. Konsertmeistari verður Martin
Frewer og stjórnandi Steingrímur Þórhallsson, sem einnig er listrænn
stjórnandi hátíðarinnar.
Hljómsveitin leikur á upprunaleg barokk-hljóðfæri og má líklegt telja að
um sé að ræða stærstu starfandi barokksveit landsins. Áhugi á því að
leika á upprunaleg hljóðfæri hefur talsvert aukist undanfarin ár og eru
tónleikar sem þessir ánægjuleg vísbending um að reynsla er að skapast
hjá hljóðfæraleikurunum í flutningi eldri tónlistar.
Haldinn hefur verið fjöldi tónleika í tengslum við hátíðina Tónað inn í
aðventu sem allir hafa verið vel heppnaðir. Það kemur vart á óvart að
svo áhugaverð tónlistarhátíð sé haldin innan Neskirkju enda eru þar
nú starfandi hvorki meira né minna en þrír kórar auk barokkhópsins
Rinascente. Því má með sanni segja að organisti kirkjunnar, Steingrímur
Þórhallsson, hafi lyft grettistaki í tónlistarlífi kirkjunnar.
Tónleikarnir fara fram í Neskirkju við Hagatorg og hefjast kl. 20. - vþ
Hljóðfall – í faginu er alltaf sagt rytmi – þar býr hin leynda sál tónlistar-
innar. Slagkraftur tónverksins felst í þessu jafna eða skrykkjótta
klukkutifi sem er eins og litur tímans, en er þó líka hinn holdlegi þáttur
lagsins, jarðtengingin. Á rytmanum flýtur allt hitt inn í afkima hugans:
Texti, laglína, hljómar.
Nútímamúsíkin hrærir í hljóðfallinu. Hún leysir upp púls, blandar púls-
um, umbreytir púlsi í tón eða mynstur eða hver veit hvað. Hún vinnur
gjarnan með hljóðfall eins og abstraktmálari með form, þótt útkoman
geti verið margvísleg og misjafnlega abstrakt. Hljóðfall í dægurtónlist er
ekki síður áhugavert. Þar birtist blær þess hreinn og klár og viss sálræn
og líkamleg tenging blasir við.
1) Flest dægurlög eru í fjórskiptum takti. Innan þess ramma rúmast þó
ótal tilbrigði sem skilgreina nánar hvernig tónlist þetta er: Hvað spilar
bassinn margar nótur í takti og hvar eru áherslur? Hvaða mynstur
myndar trommusettið ásamt smærri slaghljóðfærum, til dæmis tambúr-
íni eða hristu?
2) Þegar nýr stíll ryður sér til rúms er hljóðfallið alltaf það sem best
greinir hann frá annarri músík, þótt hljóðfæraskipan, inntak og hljómar
hafi líka mikið að segja.
3) Þegar rokkið breiddist út um heiminn fólst aðdráttarafl þess helst í
kraftmiklum hnykk á reglulegt taktslag í fjórkvæðum takti. Svo dæmi sé
nefnt hefur rokkabillí yfir sér ófyrirleitinn, fjörugan og jafnvel ósiðlegan
blæ: Fjögur þung og þrútin slög, aftur og aftur lagið á enda.
4) Smám saman dró svo úr þunga á 1. og 3. slagi. Léttari taktur með
aðaláherslu á 2. og 4. slag varð ofan á, enginn ágengur sláttur alveg
fremst í takti. Á vissum hraða fór þetta hljóðfall að tákna hreina,
áhyggjulausa skemmtun: Hér er poppið mætt, en þetta var líka lífseigt í
öllu rokki.
5) Diskó og pönk eru stundum álitin andstæður, en þau eru skyldari en
margan grunar. Bæði fæddust um miðjan 8. áratuginn sem andsvar við
þeim sjálfumglaða og smáborgaralega tón sem kominn var í rokkið.
Meginstoðin í þessu andsvari var hljóðfallið: Í báðum tilfellum eru þyngri
áherslur taktsins færðar aftur á 1. og 3. slag. Í diskóinu er það gert til að
endurheimta dans og erótík gamla rokksins, en pönkið vill höndla og ýkja
með þessu ögrun þess. Þau útfæra vitaskuld hljóðfallið hvort á sinn hátt,
en hið nýstárlega yfirbragð beggja var þessari taktbyltingu að þakka.
Reyndar eru þau líka lík í hljómagangi: Engar óþarfa flækjur, bara fáir
og beinskeyttir hljómar. Pönkið er bara aðeins hraðara … og saklausara.
Diskó er pönk!
Kl. 20
Þráinn Bertelsson, Ingibjörg
Haraldsdóttir, Þórarinn Leifsson og
Friðrik G. Olgeirsson lesa upp úr
nýútkomnum bókum sínum á
kaffihúsinu Súfistanum, Laugavegi
18, í kvöld kl. 20.
BAROKK Tónlistarmenn æfa af kappi fyrir tónleikana í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Frumflutningur í hátíðarlok
MORTHENSBRÆÐUR Í NETTRI SVEIFLU Fullt hús var við
opnun sýningar en þarna eru þeir Bubbi og Tolli ásamt
Jóhönnu Hauksdóttur og Þórunni Guðmundsdóttur.
MYND ÚR EINKASAFNI TOLLA
Jólatónleikar Drengjakórs Reykjavíkur fara fram í kvöld í Hall-
grímskirkju þar sem hann flytur fjölbreytta jólatónlist. Tónleikarnir
eru liður í jólatónlistarhátíð Hallgrímskirkju sem stendur sem hæst
um þessar mundir.
Með drengjakórnum koma fram félagar úr Karlakór Reykjavíkur
og Gunnar Guðbjörnsson óperusöngvari og verða það því karlaraddir
á öllum aldri sem fá að hljóma í kvöld.
Orgelleikarinn Lenka Máteova leikur fagra tóna undir söngnum og
Friðrik S. Kristinsson stýrir herlegheitunum.
Drengjakór Reykjavíkur er starfræktur við Hallgrímskirkju. Tón-
leikarnir í kvöld verða í fyrsta skipti sem kórinn kemur fram á jóla-
tónlistarhátíð kirkjunnar, en hann er annars afar virkur og kemur
meðal annars mánaðarlega fram við helgihald í Hallgrímskirkju. Það
bregst sjaldnast að við þau tækifæri fyllist kirkjan af áhugasömum
gestum sem vilja hlýða á söng drengjanna.
Kórinn gaf nýverið út geisladisk með flutningi sínum á nokkrum
fallegum lögum. Diskurinn verður til sölu á tónleikunum í kvöld.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og er miðaverð 1.500 kr. - vþ
Drengir syngja inn jólin
DRENGJAKÓR REYKJAVÍKUR Upprennandi söngvarar.
Tolli dýr en flottur í Flensborg
Í FLENSBORG AVISEN Flenni-
viðtal við Tolla í tilefni sýningarinnar
birtist í Flensborg Avis og þar lét
listamaðurinn vaða á súðum.