Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 72
52 6. desember 2007 FIMMTUDAGUR
folk@frettabladid.is
> ÚT ÚR SKÁPNUM
Victoria Beckham hefur fundið skýringu
á því hvaðan ást hennar á tísku kemur,
nefnilega úr innri „homma“ henn-
ar. „Ég er svo hýr. Í mér er algjörlega
hommi að reyna að brjótast fram.
Mér er skítsama hvað fólki finnst,“
segir hún í viðtali við Elle.
„Við erum að æfa á fullu núna og þessu
ferli fylgir mikil nostalgíutilfinning. Þetta
er náttúrulega allt öðruvísi en það sem ég
er að gera núna með Steed Lord en það er
ótrúlega gaman að rifja þessi lög upp,“
segir Svala Björgvinsdóttir, sem mun
syngja syrpu af öllum helstu jólalögum
sínum í gegnum tíðina ásamt föður sínum,
Björgvini Halldórssyni, á jólatónleikum
hans í Laugardalshöll um helgina.
Svala mun meðal annars syngja
smellina „Fyrir jól“, „Þú og ég jól“, að
ógleymdum smellinum „Ég hlakka svo
til“ sem Svala söng árið 1989, þá 12 ára
gömul. Síðastnefnda lagið hljómar ótt og
títt á öldum ljósvakans í desembermánuði
ár hvert en um helgina mun Svala syngja
lagið í sinni upprunalegu mynd í fyrsta
sinn í 18 ár. Og eðli málsins samkvæmt
hlakkar söngkonan mikið til. „Ég hef tekið
þátt í þessum jólaplötum hans pabba í
gegnum árin og þetta hefur orðið að
nokkurs konar hefð hjá okkur. Það verður
æðislegt að syngja þau saman uppi á
sviði.“
Svala kveðst aldrei hafa átt von á að
umrætt lag, „Ég hlakka svo til“, yrði að
jafn miklum smelli og raun ber vitni. „Það
er með ólíkindum hvað lagið hefur lifað
lengi og það virðist falla í kramið hjá
öllum kynslóðum,“ segir hún. Aðspurð
segist Svala ekki hafa þurft að fletta upp í
gömlum bókum til að rifja upp textann
við lagið. „Textinn hefur setið fastur í
kollinum öll þessi ár og ég er nokkuð viss
um að hann muni aldrei hverfa.“ - vig
Svala rifjar upp stærsta jólasmellinn
SAMRÝMD FEÐGIN Svala og Björgvin munu
syngja öll sín vinsælustu jólalög í Laugardals-
höllinni um helgina.
Viðburðurinn Movies Rock setti
mark sitt á Hollywood fyrr í vik-
unni. Þar komu margar skærustu
stjörnur samtímans saman til að
fagna því sambandi sem ríkir á
milli tónlistar og kvikmynda, en
viðburðinum er einnig ætlað að
afla fjár til handa stofnun
skemmtanaiðnaðarins, Enter-
tainment Industry Foundation.
Tónlistarstjörnur á borð við
Beyoncé, Elton John, Fergie,
Jennifer Hudson, Tony Bennett
og Carrie Underwood stigu á
sviðið í Kodak-leikhúsinu og
sungu nokkur þekktustu kvik-
myndalög allra tíma. Beyoncé
söng til dæmis lagið Somewhere
Over the Rainbow, úr Galdrakarl-
inum í Oz, og Carrie Underwood
söng titillag söngleiksins sívin-
sæla The Sound of Music.
Sýningin var vel sótt, en hún
var einnig tekin upp. Upptökur
frá henni verða sýndar í tveggja
tíma sérstökum þætti á sjón-
varpsstöðinni CBS á morgun.
Þetta var í fyrsta skipti sem
hátíðin var haldin, en búist er við
því að hún verði árlegur viðburð-
ur héðan í frá.
Kvikmyndatónlist hampað
OFAR REGNBOGANUM Beyoncé Know-
les söng hið klassíska lag, Somewhere
Over the Rainbow, á sviðinu í Kodak-
leikhúsinu. NORDICPHOTOS/GETTY
SÖNGVASEIÐUR Það féll í skaut Carrie
Underwood að elta Julie Andrews upp
á háu nóturnar í titillagi The Sound of
Music.
ÚTÚRDÚR Sex manneskjur úr íslenska myndlistarheiminum hafa stofnað bókabúðina
Útúrdúr. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sex manneskjur úr íslenska
myndlistarheiminum opna
á laugardaginn bókabúðina
Útúrdúr. Verður hún til
húsa á Njálsgötu 14.
„Við höfum tekið eftir því að það
vantar búð sem er með bækur um
myndlist og búð þar sem hægt er
að sýna fjölfeldi,“ segir Auður
Jörundsdóttir, einn af eigendum
nýju bókabúðarinnar, og á þar við
listaverk sem eru gerð í fleiri en
einu eintaki. Hinir eigendur búð-
arinnar eru Hildigunnur Birgis-
dóttir, Guðrún Benónýsdóttir og
þau Pétur Már Gunnarsson, Þór-
unn Hafstað og Sigurður Magnús
Sveinsson sem gefa út DVD-tíma-
ritið Rafskinnu.
„Það eru mjög margir íslenskir
listamenn sem hafa verið að gera
bókverk, þar sem bókin sem slík
er listaverkið. Það hefur ekki
verið staður á Íslandi þar sem
hægt er að kaupa þessi verk og
skoða yfirhöfuð. Okkur fannst
þetta spennandi og vissum að
þetta vantaði,“ segir Auður, sem
útskýrir að nafn búðarinnar sé
bæði vísun í óvenjulega staðsetn-
inguna og efnisvalið sem þar verð-
ur í boði. „Það er stefnan að þarna
verði eitthvað sem er ekki hægt að
fá annars staðar. Við vonum að
fólk leggi leið sína þarna til
okkar.“
Opnunin hefst klukkan 17 á
laugardag og af því tilefni mun
Benedikt Hermann Hermannsson,
maður Auðar, spila lög af sinni
nýjustu plötu, Ein í leyni. Auk þess
verður boðið upp á jólaglögg fyrir
gesti og gangandi.
freyr@frettabladid.is
Ný bókabúð opn-
uð í miðbænum
Finnar fagna 90 ára sjálfstæði
sínu í dag. Af því tilefni færði
Valur Gunnarsson rithöfundur
finnska sendiráðinu í Reykjavík
að gjöf nýútgefna bók sína, Kon-
ung norðursins. Bókin gerist í
Finnlandi og fjallar um skipaþrifa-
manninn Ilkka Hampurilainen
sem flækist inn í árþúsunda gamla
atburðarás þegar sænskur draug-
ur tekur sér bólfestu í líkama
hans.
„Eftir áramót fer ég til Finn-
lands að kynna bókina og hlakka
til að heyra hvernig Finnum líst á.
Eins og Íslendingar hafa þeir
gaman af að heyra álit útlendinga
á þeim,“ segir Valur.
„Ég hef fengið frábær viðbrögð
við bókinni en finnst mikilvægast
að finnski sendiherrann, Kai Gran-
holm, hafi gaman af henni. Mig
langar að skrifa framhald en von-
andi leiðir söguhetjan mig á ódýr-
ari slóðir næst, ég eyddi um þrem-
ur milljónum í ferðakostnað við
gerð bókarinnar,“ segir Valur.
Valur mun lesa upp úr bók sinni
í Norræna húsinu í hádeginu í dag.
- eá
Sendiherra fékk bók
BÓKIN AFHENT Valur Gunnarsson rithöf-
undur færði Kai Granholm, sendiherra
Finna á Íslandi, nýja bók sína að gjöf í
gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SMÁRALIND - S. 522 8380