Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 73
FIMMTUDAGUR 6. desember 2007 53
Systkinin KK og Ellen Kristjánsbörn
halda jólatónleika í Langholtskirkju í
kvöld klukkan 20. Þetta verður í fyrsta
sinn sem þau spila í þessari kirkju.
Að sögn KK verður dagskráin mjög
fjölbreytt. „Ellen er með nýjan disk og
við ætlum að spila lög af honum og
síðan spilum við lög af jólaplötunni sem
við gáfum út saman sem heitir Jólin
eru að koma,“ segir KK, sem ætlar
einnig að spila tvö ný lög af væntan-
legri plötu sinni sem kemur út á næsta
ári. Að öllum líkindum munu þau
systkini einnig spila lög af metsölu-
plötu Ellenar, Sálmar, sem kom út fyrir
þremur árum.
Þeim til halds og trausts á tónleikun-
um verða Guðmundur Pétursson
gítarleikari og bassaleikarinn Valdimar
Kolbeinn Sigurjónsson. Miðaverð er
2.400 krónur og fást miðar á midi.is.
Systkini í kirkju
KK OG ELLEN Systkinin halda
jólatónleika í Langholtskirkju í
kvöld. Með þeim á myndinni
er ellefu ára sonur Kristjáns,
Kristján Steinn Kristjánsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Nei, nei, nei, femínistarnir eru
ekki búnir að múlbinda mig,“ segir
Egill Einarsson, betur þekktur
sem líkamsræktarfrömuðurinn og
fyrirbærið Gillzenegger. Ríkisút-
varpið greindi frá því í vikunni að
Drífa Snædal, framkvæmdastýra
Vinstri grænna, hefði tilkynnt lög-
reglu um vafasöm skrif á síðu sem
Egill á, gillz.is. Þar er farið klám-
fengnum og hörðum orðum um
fjórar konur sem flestar hafa látið
jafnréttismál til sín taka – þeirra á
meðal Drífu. Í kjölfar fréttarinnar
tók Egill færsluna út sem er sér-
kennilegt í ljósi þess að áður hafði
hann haft uppi digurbarkaleg
ummæli á síðunni þess efnis að
femínistar hræddu hann ekki.
„Ég ákvað að kippa færslunni út
og sjá hvernig þetta þróast. Ég
leita lögfræðinga og hef ráðið
fjölmiðlafulltrúa sem heitir
Þorkell Máni Pétursson,“
segir Egill. Hann vill reynd-
ar meina að ábyrgðin á
ummælunum sé ekki
endilega hans heldur
vísar til þess að
skrifin séu í nafni
fréttastofu síðunn-
ar. Og þar séu menn
látnir heyra það.
„Ég er bara skítugur
blaðamaður og vil meina
að fréttastjórinn sé
„Kolbeins“ eða Ásgeir
Kolbeinsson,“ segir
Egill. Ljóst má vera
að hann er hvergi
sáttur við málflutn-
ing femínista.
„Þær vaða uppi með sínar ómál-
efnalegu skoðanir út um allt og ef
maður svarar þeim á þeirra plani
verður allt vitlaust. En ég er
tiltölulega rólegur,“ segir
Egill. Honum hefur ekki
borist kæra vegna máls-
ins. Hann heyrði fyrst af
því í fréttum RÚV og
segir að vænta megi
yfirlýsingar á vefsíð-
unni. - jbg
Gillz segir Kolbeins ábyrgan
GILLZENEGGER Hafnar því að
femínistar hafi nú múlbundið
sig þótt umdeild færsla hafi
verið fjarlægð – í bili.
Kvenkyns Bond-aðdáendur geta
glaðst, því Daniel Craig hefur lýst
því yfir að hann sé tilbúinn að
bera allt í næstu
Bond-mynd. „Ég
hef ekkert að fela,
og þegar öllu er
á botninn hvolft
biðjum við
stelpurnar
um að
fara úr
næstum
öllu. Af
hverju
ekki
karlmenn-
ina líka?“
segir leikarinn, sem vakti heilmikla
athygli í sundfataatriði í síðustu
mynd.
Turtildúfurnar
Sienna Miller
og Rhys Ifans
ætla að taka upp
dúett saman á
næstunni. Lagið
ku vera í anda
Oasis, en Rhys
er góðvinur
Gallagher-
bræðranna
Noels og
Liams og
hefur leikið
í myndbandi
við lag þeirra.
Þar með mun gamall draumur
Siennu rætast, en hana hefur víst
lengi dreymt um að verða fræg
söngkona.
Helena Bonham Carter segir
brjóstastærð sína hafa verið til
vandræða við gerð Sweeney Todd,
sem eig- inmaður hennar,
Tim Burton,
leikstýrir. Helena
varð ólétt á
meðan á
tökum stóð,
og eins og
verða vill
stækkaði
barmur
hennar
töluvert.
„Ef einhver
fylgist með
brjóstastærð
minni mun
hann sjá að
það er ekkert samhengi. Ég byrja
með risabrjóst, svo geng ég upp
stiga og er allt í einu komin með
mandarínur,“ segir leikkonan.
Nicole Richie og Joel Madden
héldu óvænta veislu fyrir 100
ungar mæður á heilsugæslustöð í
Hollywood á dögunum. Þau gáfu
mæðrunum allt frá
vöggum og fötum
upp í leikföng,
að andvirði um
12,5 milljónir
króna. Allar
vörurnar eru
eins og þær sem
Nicole og Joel
hafa sjálf keypt
fyrir væntan-
legan erfingja.
FRÉTTIR AF FÓLKI
afsláttur
af öllum yfirhöfnum
gildir til sunnudags
25%
Smáralind s. 522 8383 Kringla s. 522 8393