Fréttablaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 44
6. DESEMBER 2007 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● smáralind og nágrenni
AFGREIÐSLUTÍMI SMÁRALINDAR UM JÓLIN
Frá og með morgundeginum, 7. desember, og til jóla, verður opið alla
daga til klukkan 22..
Laugardaginn 22. desember frá 10–22
Sunnudaginn 23. desember frá 10–23
Mánudaginn 24. desember frá 10–13
Mánudaginn 31. desember frá 10–13
Fimmtudag, föstudag, laugardag og sunnudag, 27. til 30. desember, er
opið samkvæmt hefðbundnum afgreiðslutíma Smáralindar.
VÍNBÚÐIN Í SMÁRALIND VERÐUR OPIN LENGUR FRÁ 20. DESEMBER.
Fimmtudaginn 20. des. frá 11–20
Föstudaginn 21. des. frá 11–20
Laugardaginn 22. des. frá 11–22
Sunnudaginn 23. des.
Þorláksmessa, LOKAÐ
Mánudaginn 24. des. frá 10–13
Þriðjudaginn 25. des. LOKAÐ
Miðvikudaginn 26. des. LOKAÐ
Fimmtudaginn 27. des. frá 11–18
Föstudaginn 28. des. frá 11–20
Laugardaginn 29. des. frá 11–22
Sunnudaginn 30. des. LOKAÐ
Mánudaginn 31. des. frá 10–14
Opið um jólin
Verslanir eru
opnar mun
lengur um jólin.
● STÆRRI OG ÞÆGILEGRI STÆÐI
Bílar landans verða ávallt stærri, og venjuleg bílastæði sem eru um 2,5
metrar að breidd virðast stundum ekki duga. Forsvarsmenn Smáralindar
hafa brugðist við með því að stækka hluta bílastæða við verslunarmið-
stöðina en við suðurenda Smáralindar, nánar tiltekið við Debenhams, eru
um 400 bílastæði sem eru þrír metrar að breidd.
Stæðin eru merkt með gulum línum og getur hver sem er lagt í stæð-
in endurgjaldslaust. Líklega mun þetta koma sér vel fyrir barnafólk, fólk á
jeppum og stórum bílum og þá sem vilja geta opnað hurðirnar vel til að
koma innkaupapokunum fyrir á þægilegan
máta.
Í framtíðinni verður stefnt
að því að stækka
öll bílastæði við
Smáralind til
að auka þæg-
indi viðskipta-
vina.
Glerturninn á Smáratorgi í
Kópavogi rís hratt. Byggingin
er þegar búin að teygja sig
allar tuttugu hæðirnar upp í
loft og verður hæsta bygging
á Íslandi, 77,9 m, eða rúmum
þremur metrum hærri en Hall-
grímskirkjuturn.
„Það er þegar búið að opna tvær
verslanir á fyrstu hæðinni og búið
að steypa upp turninn og verið
er að glerja efstu hæðina,“ segir
Ólafur Hermannsson bygginga-
tæknifræðingur en hann er verk-
efnisstjóri yfir framkvæmdinni.
Hann bætir við að verið sé að inn-
rétta þær tíu hæðir sem þegar
er búið að leigja út og verða átta
hæðir teknar í notkun um og eftir
áramótin.
Verkið hefur að sögn Ólafs
gengið vel og áætlanir standast
nokkurn veginn. „Já, þetta hefur
gengið ágætlega, við höfum þó
lent í vandræðum vegna veðráttu
síðustu mánuðina því við erum að
vinna þarna hátt uppi og það hefur
tafið okkur svolítið. Það eru áform
um að búið verði að glerja turninn
um miðjan desember og þá verður
farið að innrétta veitingastaðinn
á tveimur efstu hæðunum. Hann
verður þá opnaður upp úr miðjum
janúar,“ segir Ólafur.
„Það eru nokkur atriði sem
gera þetta nokkuð sérstaka bygg-
ingu. Í fyrsta lagi erum við með
svokallaða náttúrulega loftræst-
ingu sem er tölvustýrðir gluggar
sem taka við boðum frá veðurstöð
uppi á þaki. Þessu er öllu stjórnað
af tölvu sem segir hverjum glugga
hvað hann á að gera, hvort hann
eigi að opna mikið eða lítið, en með
þessu eru menn að spara sér tölu-
verðan kostnað við loftræstikerfi
og eins er þetta umhverfisvænt,“
útskýrir Ólafur og nefnir fleiri
tækninýjungar sem verða í turn-
inum. Meðal annars eru háhraða
lyftur sem fara fjóra metra á sek-
úndu, en venjulegar lyftur fara 1,6
metra á sekúndu, og á ferðin alla
leið upp að taka tuttugu sekúndur.
„Það má búast við því að fá
hellur fyrir eyrun þegar maður er
á fullri ferð en þetta á nú að vera
þannig að menn finni ekki fyrir
óþægindum,“ segir hann.
Húsið er byggt til að standast
íslenskt veður og vinda og vel er
hugað að öryggismálum. Ein af
lyftunum er sérútbúin þannig að
slökkviliðið getur yfirtekið stjórn-
ina á henni, handstýrt henni af
jörðu niðri.
Ólafur segist lítið hafa orðið var
við óánægjuraddir vegna þessa
háa turns en segist frekar finna
fyrir spenningi hjá fólki vegna
framkvæmdanna og vandalaust
hafi verið að finna leigjendur í
bygginguna. Aðeins fimm hæðir
eru óleigðar, menn líta á þetta sem
eftirsóttan vinnustað og þetta eru
stór og öflug fyrirtæki sem eru
búin að leigja sér þarna hæðir og
vilja vera á góðum stað.“ Hann
bætir því við að eftir að full starf-
semi hefjist í húsinu geti þessi
vinnustaður talið í kringum 800
manns en um það bil 150 manns
hafa unnið við sjálfa bygginguna
undanfarna mánuði. - rt
Í hæstu hæðum í Kópavogi
Ástþór Atli Haraldsson og Árni Kópsson
bora fyrir undirstöðum fyrir brú yfir
Fífuhvammsveg við Smáralind. Glerturninn teygir sig upp yfir Smáratorg í Kópavogi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM