Fréttablaðið - 04.01.2008, Blaðsíða 25
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
SKYNDIBITI VINSÆLL
Bretar, Bandaríkja-
menn og Kanada-
búar eru hrifnastir
allra þjóða af
ruslfæði.
MATUR 2
Matreiðslumeistarinn Friðgeir Ingi Eiríksson
hefur getið sér gott orð í heimi matreiðslumanna
og snemma á síðasta ári tók hann þátt í Bocuse
d‘Or-matreiðslukeppninni í Frakklandi með
góðum árangri. Þessa dagana stendur hann fyrir
miklum breytingum á eldhúsi Holtsins.
„Við létum sérsmíða fyrir okkur eldavél í Frakklandi
og er hún nákvæmlega eftir okkar eigin höfði,“ segir
Friðgeir Ingi Eiríksson, yfirkokkur á Holtinu og einn
rekstraraðila. Vélin er engin smásmíði, 3,7 metrar á
lengd og 1,7 metrar á breidd, og er unnið allan hring-
inn. „Það er svaka stæll á henni og hún er sprautuð
eins og bíll í rétta litnum. Markmiðið er að útbúa full-
komnasta eldhús sem völ er á og verður það vígt 16.
janúar næstkomandi,“ segir Friðgeir.
Friðgeir segir fjölda nýjunga að vænta. „Við vilj-
um reyna að skapa meiri heild á milli veitingastaðar-
ins og hótelrekstursins. Hér er mikið af málverkum
og list og leikum við okkur til dæmis með nöfnin á
verkunum í matseðlinum.“ Friðgeir segir að holl
fæða sé framtíðin. „Í sumum tilfellum finnst mér
eldamennska vera komin út fyrir það sem hún í raun
og veru snýst um, sem er að nærast og fá orku. Við
leggjum áherslu á klassíska matseld en færum hana í
nýjan búning.“
Friðgeir hélt snemma á síðasta ári í hina víðfrægu
Bocuse d‘Or-keppni sem er haldin í Lyon í Frakklandi
annað hvert ár. „Þetta er heimsmeistarakeppni ein-
staklinga í matreiðslu en einungis 24 þjóðir komast
að. Ég lenti í áttunda sæti og er ánægður með að hafa
verið á meðal topp tíu.“
Friðgeir stefnir þó enn hærra í keppninni 2011 en
Ragnar Ómarsson, yfirkokkur á Domo, ætlar að
reyna fyrir sér árið 2009. „Það er mikill undirbúning-
ur í kringum keppni sem þessa og ekki síst utan eld-
hússins. Ég ætla að aðstoða Ragnar næstu misserin
en hann verður mér svo innan handar þegar ég fer
aftur,“ segir Friðgeir.
Uppskrift á síðu 3. / vera@frettabladid.is
Klassík í nýjum búningi
Friðgeir tók þátt í Bocuse d‘Or-keppninni í Lyon snemma á síðasta ári og stefnir ótrauður að þátttöku á ný árið 2011.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÉTTARI RÉTTIR
Nýbakað brauð og
viðeigandi meðlæti
er tilvalið að bera
fram á þrettándan-
um þar sem flestir
eru enn að springa
eftir jólaátið.
MATUR 3
opið laugardag 10:00-18:00
Laugavegi 53 • s. 552 3737
opið mánudag til föstudag 10-18
laugardag 10-17
ÚTSALAN
HEFST Í DAG
Útsala
Síðkjólar í miklu úrvali
Stærðir 34-46
A
ug
lý
si
ng
as
ím
i
– Mest lesið