Fréttablaðið - 08.01.2008, Side 33

Fréttablaðið - 08.01.2008, Side 33
ÞRIÐJUDAGUR 8. janúar 2008 17 KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] OMX ÍSLAND 15 Fjöldi viðskipta: 1.058 5.721 -3,75% Velta: 10.304 milljónir HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atorka 9,62 -0,62% ... Bakkavör 52,30 -5,77% ... Eimskipafélagið 34,00 +0,30% ... Exista 16,35 -6,04% ... FL Group 12,73 -2,82% ... Glitnir 20,40 -2,63% ... Icelandair 26,55 -0,19% ... Kaupþing 784,00 -4,39% ... Landsbankinn 32,45 -3,71% ... Marel 100,50 -0,99% ... SPRON 7,93 -2,1% ... Straumur- Burðarás 14,03 -3,77% ... Össur 97,00 -2,51% ... Teymi 5,80 -1,19% MESTA HÆKKUN 365 0,50% EIMSKIPAFÉLAGIÐ 0,30% ALFESCA 0,15% MESTA LÆKKUN EXISTA 6,04% BAKKAVÖR 5,77% KAUPÞING 4,39% Umsjón: nánar á visir.is Vísbendingar eru um að fjárfestar leiti úr hlutabréfum í skuldabréf eftir lækkanir í Kauphöll síðustu daga, að því er fram kemur í hálf- fimmfréttum greiningardeildar Kaupþings. Velta á skuldabréfamarkaði nam í gær rúmlega 42,5 milljörð- um króna og er það met. „Sam- hliða lækkaði ávöxtunarkrafa verðtryggðra bréfa um 8 til 15 punkta og óverðtryggðra bréfa um 39 til 91 punkts. Þessi áköfu viðskipti endurspegla án efa breyttar vaxtavæntingar markað- arins um hraðara vaxtalækkunar- ferli hjá Seðlabanka Íslands, sökum þess að íslenskt efnahags- líf muni nú kólna hraðar en áður var gert ráð fyrir,“ segir greining- ardeildin. - óká Flýja hlutabréf yfir í skuldabréf DIMMT YFIR KAUPHÖLLINNI Lækkanir í Kauphöll Íslands eru taldar ýta undir breyttar áherslur í fjárfestingum. Íslenska fjárfestingarfélagið Nordic Partn- ers hefur keypt Hamé, stórt matvælafyrir- tæki í Mið- og Austur-Evrópu. Starfsmenn Hamé eru um þrjú þúsund og veltan í fyrra nam sautján milljörðum íslenskra króna. Gísli Reynisson, forstjóri og aðaleigandi Nordic Partners, segir kaupverðið trúnaðar- mál. Beðið sé staðfestingar Samkeppnis- eftirlits og samþykki þeirra á endurskoðuð- um ársreikningi fyrir árið 2007. Hann segir að unnið hafi verið að samningnum frá því í mars á síðasta ári. Niðurstaðan sé ánægjuleg þótt ferlið hafi verið strangt. Helstu framleiðsluvörur Hamé eru unnar kjötvörur, tilbúnar máltíðir, samlokur, barna- matur, tómatvörur, sósur og grænmeti. Gísli segir kaupin styrkja ytri vöxt matvælastarf- semi Nordic Partners. Síðustu tvö árin hafi miklar fjárfestingar styrkt innri vöxt fyrir- tækjanna, meðal annars til að ná niður kostn- aði. Útlit sé fyrir að veruleg veltuaukning verði í matvælastarfseminni á næstu misser- um og aukinn hagnaður. Nordic Partners reka nú þegar margvís- lega matvælastarfsemi í Lettlandi, Litháen og Póllandi sem verður nú sameinuð undir merkjum Hamé. Velta sameinaðrar starf- semi er áætluð um 40 milljarðar króna á árinu 2008. Framleidd verða nálægt 170 þús- und tonn af unnum matvælum og ríflega 100 milljónir lítra af drykkjarvöru. - bg Veltan eykst um 40 milljarða króna FRAMLEIÐSLA Í SEXTÁN VERKSMIÐJUM Framleiðsla Nordic Partners fer fram í Tékklandi, Lettlandi, Póllandi, Litháen, Rúmeníu og Rússlandi. Í þessum löndum eru einnig helstu markaðir samsteypunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Rauði liturinn var nær allsráðandi í Kauphöllinni í gær, þriðja daginn á þessu ári sem Kauphöllin er opin. 21 félag lækkaði á meðan aðeins tvö hækkuðu. Mesta lækkun varð á bréfum í Bakkavör Group og Exista en stofnendur Bakka- varar, bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir, eiga meirihlut- ann í Exista. Gengi bréfa í Bakkavör lækkaði mest í gær, um 5,58 prósent, en fast á hæla þess er Exista en geng- ið á því lækkaði um 5,17 prósent. Tíu önnur fyrirtæki lækkuðu um meira en tvö prósent í dag og fór Úrvalsvísitalan niður um 3,59 pró- sent. Mesta hækkun var hins vegar á bréfum 365, um 0,50 prósent og í Eimskipafélagi Íslands en gengi þess fór upp um 0,29 prósent. - bg Meiri lækkun Stjórn Astraeus Limited, sem er alfarið í eigu Northern Travel Holding hf., hefur ráðið nýjan for- stjóra fyrir Astraeus Limited, sem þegar hefur hafið störf; eftir að fyrrverandi forstjóri sagði starfi sínu lausu í lok desember síðast- liðinn, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Nýr forstjóri heitir Mario Fulgoni og hefur starfað sem fram kvæm da- stjóri yfir flugrekstarsviði Astr- aeus frá júlí 2007. Northern Travel Holding hf. er íslenskt eignarhaldsfélag í eigu Fons hf. (44%), FL Group hf. (34%), og Sund hf. (22%). Megináhersla félagsins er rekstur flugfélaga og fyrirtækja í ferðaiðnaði á Norður- löndunum og í Norður-Evrópu. - bg Nýr forstjóri

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.