Fréttablaðið - 08.01.2008, Side 42
26 8. janúar 2008 ÞRIÐJUDAGUR
sport@frettabladid.is
FÓTBOLTI Chelsea og Everton
mætast í fyrri leik liðanna í
undanúrslitum enska deildarbik-
arsins á Stamford Bridge í kvöld.
Afríkukeppnin hefur sín áhrif á
leikinn þar sem Didier Drogba og
Salomon Kalou taka þátt í
undirbúningi með landsliði
Fílabeinsstrandarinnar fyrir
Afríkukeppnina og Michael
Essien leikur með Gana. Chelsea
vonast þó til þess að Jon Obi
Mikel fái leyfi til þess að spila
leikinn eftir að knattspyrnusam-
band Nígeríu gaf Everton grænt
ljós á að Yakubu og Joseph Yobo
spiluðu leikinn. Knattspyrnusam-
band Suður-Afríku var ekki jafn
skilningsríkt í sambandi við
Steven Pienaar og neitaði Everton
um leyfi til að spila honum í
kvöld, en enska liðið hyggst virða
þá tilskipun að vettugi. - óþ
Undanúrslit deildarbikarsins:
Afríkukeppnin
hefur sín áhrif
Pétur Már Sigurðsson og félagar í Skallagrími komu mörgum á
óvart með því að bursta Stjörnuna með 25 stigum í Borg-
arnesi á sunnudagskvöldið. Liðið lék án tveggja byrjunar-
liðsmanna, Axel Kárasonar og Milojica Zekovic, en sá
síðarnefndi hefur skorað 22 stig að meðaltali í vetur.
Pétur Már átti stórleik, skoraði 24 stig og setti
niður sex þriggja stiga skot.
„Við spiluðum mjög góða vörn og svo tóku
allir í liðinu meiri ábyrgð. Það voru allir að
spila vel og við vorum að hitta loksins fyrir
utan. Ég myndi segja að þetta hafi verið besti
leikurinn hjá mér í vetur og líka hjá Pálma sem
var svakalega góður. Darell Flake var líka algjör-
lega óstöðvandi og skoraði bara af vild,” segir Pétur.
„Mér fannst eins og þeir kæmu svolítið værukærir í
leikinn og við byrjuðum á því að spila rosalega stífa
vörn og stemningin var okkar megin frá byrjun,” segir
Pétur en Stjörnumenn skoruðu aðeins 11 stig á fyrstu
tólf mínútunum. Borgnesingum gekk vel að dekka
sinn gamla liðsfélaga Dimitar Karadzovski sem fann sig ekki.
„Við töluðum um það á æfingu hvernig við áttum að verjast
honum. Við vorum að tvídekka hann og þvinga hann í
léleg skot og það gekk vel,” segir Pétur en Dimitar tapaði
fimm boltum áður en hann skoraði sína fyrstu körfu þegar
Stjarnan var komin 20 stigum undir .
„Við erum búnir að æfa rosalega vel í jólafríinu. Ken
Webb er algjör fagmaður, hefur komið með nýja vídd í
þetta hjá okkur og leggur rosalega mikið upp úr varn-
arleik sem er að skila sér hjá okkur,” segir Pétur.
„Við Íslendingarnir í liðinu erum búnir að hitta frekar
illa í vetur en við eigum að geta notað þennan leik
til þess að fá aukið sjálfstraust,” segir Pétur en Borg-
nesingar settu niður 13 þriggja stiga skot í leiknum.
Skallagrímsmenn þurfa einnig að spila án þeirra
Zekovic og Axels í næstu leikjum. „Það er slæmt að
missa þessa menn en það sýnir kannski karakterinn í
liðinu að menn eru ekkert að leggjast í neitt volæði held-
ur þjöppum okkur bara saman,” segir Pétur Már að lokum.
PÉTUR MÁR SIGURÐSSON: SKORAÐI 24 STIG Í ÓVÆNTUM STÓRSIGRI SKALLAGRÍMS Á STJÖRNUNNI
Allir í liðinu tóku á sig meiri ábyrgð
Tími Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur
16.45
17.45
EÐL103
NÁT123
ÍSL503
SPÆ203
FRA203
ÍTA403
ÞÝS203
STÆ403
SAG173
EFN103
NÁT133
SPÆ403
STÆ313
FRA403
ÍSL303
ÍTA103
NÁT113
SAG263
STÆ203
ÞÝS403
17.55
18.55
EFN103
NÁT133
SPÆ403
STÆ313
FRA403
ÍSL303
ÍTA103
NÁT113
SAG263
STÆ203
ÞÝS403
EÐL103
NÁT123
ÍSL503
SPÆ203
FRA203
ÍTA403
SAG173
STÆ403
ÞÝS203
XXX XXXXXXXXXX XXXXXXXXXX XXXXXXXXXXX XXXXXXXXXX
19.10
20.10
DAN203
FÉL 103
ÍSL203
ÍSL403
ÞJÓ163
ÞJÓ263
ÞJÓ363
FÉL203
ÍSL3G3
LAN103
NÁT103
SAG203
ÍSL322/422
ENS503
FÉL263
HEI103
LÍF103
SAG3E3
SÁL103
ENS203
FÉL233
FÉL3036
ÍTA513
MYN153
ENS422/522
20.15
21.15
DAN203
FÉL 103
ÍSL203
ÍSL403
ÞJÓ163
ÞJÓ263
ÞJÓ363
FÉL203
ÍSL3G3
LAN103
NÁT103
SAG203
ENS503
FÉL263
HEI103
LÍF103
SAG3E3
SÁL103
ENS203
FÉL233
FÉL3036
ÍTA513
MYN153
Innritun í Öldungadeild MH fer fram þriðjudaginn 8. janúar, miðvikudaginn 9. janúar og
fi mmtudaginn 10. janúar 2008 frá 15.00 - 19.00. Símainnritun verður frá 09.0-12.00 í síma
5955207. Námsrágjafar verða við 9. og 10. janáur frá 16.00-18.30. Deildastjórar verða við
10. janúar frá 17.00-18.00. Vefræn skráning er opin á www.mh.is undir Öldungadeild
ÍSL322, ÍSL422, ENS422 OG ENS522 eru yndislestraráfangar og ekki á föstum tímum í töfl u.
Áfangarnir ÞJÓ 163/263/363 eru kenndir saman. Hægt er að velja LAN103 og SAG203
saman. Þeir eru kenndir í dreifmennt og í staðbundnum lotum.
Nánari uplýsingar varðandi innritun er að fi nna á www.mh.is
> Sverre á batavegi
Sverre Andreas Jakobsson, leikmaður íslenska landsliðs-
ins í handbolta, er á góðum batavegi eftir að hafa veikst
heiftarlega á æfingarmóti í Danmörku um síðustu helgi.
Einar Þorvarðarson, framkvæmdastjóri
HSÍ, sagði í samtali við Fréttablaðið
að Sverre væri á batavegi. „Sverre
var mjög slappur við heimkomuna
á sunnudagskvöld og hefur því
verið mikið til á sjúkrahúsi síðan.
Verið er að reyna koma í hann
vökvanæringu í æð svo hann
nái sér fljótt og vel. Við vitum
ekki nákvæmlega hvað amaði
að honum og vonum að það sé
ekkert sem gangi um hópinn,“
sagði Einar.
KÖRFUBOLTI KR-ingar hafa fengið
til síns Bandaríkjamanninn Jer-
emiah Sola sem er með ítalskt
vegabréf og var lykilmaður þegar
liðið vann Íslandsmeistaratitilinn
í fyrravor. Sola er kominn til
landsins og spilar gegn Grindavík
á fimmtudaginn.
Jeremiah Sola kláraði ófáa leik-
ina með KR í úrslitakeppninni í
fyrra og átti frábæran dag þegar
KR tryggði sér titilinn. Sola var
með 24 stig, 15 fráköst og 5 stoð-
sendingar í 83-81 sigri í fjórða
leiknum. Jeremiah Sola sá KR-
inga vinna níu stiga seiglusigur á
Fjölnismönnum í Grafarvogi á
sunnudagskvöldið og æfði með
liðinu í gærkvöldi.
„Hann á eftir að nýtast okkur
vel fyrst að Fannar er meiddur.
Hann sýndi það í fyrra að þetta er
töffari á velli,“ sagði Benedikt
Guðmundsson, þjálfari KR, og þá
á hann ekki bara við húðflúrin.
„Hann getur skorað, er hörku
sendingamaður og þá setur hann
stóru skotin niður og getur stigið
upp í lok leikja,“ bætir Benedikt
við en Sola var mjög vinsæll í KR
og þá sérstaklega hjá Miðjunni
sem kemur örugglega til með að
syngja mikið til heiðurs honum.
„Þetta er leikmaður sem vann titil
með okkur og ég sem þjálfari
gleðst mikið yfir því að fá þarna
einn í viðbót úr sigurliðinu. Ég
veit að hann var vel liðinn innan
leikmannahópsins og sérstaklega
vinsæll meðal stuðningsmann-
anna. Ég held að það séu margir í
Vesturbænum sem fagna komu
hans,“ segir Benedikt.
Sola vildi sjálfur koma til KR og
var búinn að vera í sambandi við
KR-inga síðustu misseri. „Við töl-
uðum við hann eftir tímabilið í
fyrra. Þá var hann með óraunhæf-
ar kröfur og það gekk ekki upp.
Svo fór hann til Kýpur og var
óánægður þar snemma.
Hafði þá samband í nóv-
ember en var ennþá í
óraunhæfum kröfum
og við vorum því
ekkert að spá neitt
í því enda vorum
við með menn
sem við ætluð-
um að keyra
á. Svo hætti
hann á
Kýpur og
var farin að
vinna heima í
Kaliforníu og
sótti hart í það að fá að
koma aftur. Við létum
aldrei verða að því fyrr en
Fannar datt út. Þá var
þetta eiginlega orðið
rakið því við urðum bara
að bregðast við því okkur
vantaði meiri hæð og styrk
inn í teig,“ sagði Bene-
dikt.
Fyrsti leikur Sola verð-
ur á móti Grindavík í
DHL-höllinni á fimmtu-
daginn en Sola var með
24,5 stig að meðaltali í
tveimur deildarleikjum
liðanna í fyrravetur.
ooj@frettabladid.is
Sola er mættur í Vesturbæinn
KR-ingar hafa fengið til sín framherjann Jeremiah Sola sem var lykilmaður þegar liðið vann Íslandsmeist-
aratitilinn í fyrravor. Sola er kominn til landsins og spilar gegn Grindvíkingum á fimmtudaginn.
GÓÐUR Í FYRRA
Jeremiah Sola var
lykilmaður á bak
við Íslands-
meistaratitil KR í
fyrravetur.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
KÖRFUBOLTI Makedóníski körfu-
boltamaðurinn Jovan Zdravev-
ski hefur skipt yfir í Stjörnuna
og mun spila með nýliðunum úr
Garðabæ það sem eftir lifir tíma-
bilsins. KR-ingar létu Jovan fara
um leið og þeir fengu Jeremiah
Sola til sín.
Jovan Zdravevski var með 22,0
stig að meðaltali á þremur árum
sínum í Borgarnesi en hefur bara
skorað 10,5 stig að meðaltali með
KR í vetur. Jovan hitti úr 41,5
prósentum þriggja stiga skota
sinna með Skallagrími en hefur
aðeins hitt úr 22,8 prósentum
þriggja stiga skota í KR-bún-
ingnum. Það er því ljóst á þess-
um tölum að hann fann sig ekki í
Vesturbænum.
„Þetta er algjör öðlingsdreng-
ur, ég vona að honum gangi rosa-
lega vel og hann finni taktinn
sinn aftur sem hann fann aldrei í
KR. Hans verður sárt saknað og
þá sérstaklega félagslega. Það er
ekki hægt annað en að líka vel
við hann,“ sagði Bendedikt Guð-
mundsson, þjálfari KR, um brott-
hvarf Jovans.
Jovan mun því spila tvo leiki í
röð á móti Fjölni því hann var
með 9 stig á 18 mínútum í 94-85
sigri KR á Fjölni á sunnudags-
kvöldið og næsti leikur Stjörnu-
manna er einmitt gegn Fjölni í
Garðabæ á fimmtudagskvöldið.
- óój
Hrókeringar hjá Íslandsmeisturum KR-inga í gær:
Jovan til Stjörnunnar
FANN SIG EKKI Jovan Zdravevski var
ekki sami leikmaður í Vesturbænum
og hann var í Borgarnesi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON